Bændablaðið - 14.12.2023, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Á FAGLEGUM NÓTUM
Aukum kvígusæðingar – bætum árangur
L engi hefur verið hamrað á
mikilvægi kvígusæðinga fyrir
ræktun íslenskra mjólkurkúa. Þ ví
miður hefur allt of lítið áorkast.
Í frétt á vefsíðu NB Í ( nautaskra.
is) 20. nóvember sl. mátti lesa
eftirfarandi: „ V ið horfum líka upp
á þá dapurlegu staðreynd að innan
við 30% kvígna eru sæddar í dag,
nokkuð sem íslensk nautgriparækt
fær algjöra falleinkunn fyrir.“
Sæðingar gegna
lykilhlutverki
í ræktuninni. Í
litlum stofni er
mikilvægt að
sem flestir gripir
séu virkur hluti
af ræktunar-
s t o f n i n u m .
Ræktun verður
alltaf langhlaup,
en stytting ættliðabils er eitt
öflugasta tækið sem við höfum til
að hraða erfðaframförum. Ræktunin
er samstarfsverkefni allra kúabænda.
Allir njóta ávinningsins og æskilegt
að sem flestir leggist á árarnar.
Ö ruggara erfðamat með
arfgerðargreiningu hvetur enn frekar
til sæðinga á kvígum.
Sæðingar eru skráðar og því
er meiri vissa um væntanlegan
burðardag. Þetta einfaldar mikilvægt
eftirlit með kvígunum þegar kemur
að burði!
Íslenskar kýr standa höllum fæti í
samanburði við erlend kúakyn. Þeim
mun mikilvægara er, að beita öllum
ráðum til að flýta erfðaframförum.
Því eru bændur eindregið hvattir til að
sæða kvígur í auknum mæli og leggja
þar með sín lóð á vogarskálarnar.
Eftirfarandi upplýsingar eru
hugsaðar sem hvatning og gagn-
legar upplýsingar, til þeirra sem
sjá möguleika á að hefja eða auka
sæðingar á kvígum. Engin tvö
bú eru eins. Því getur þurft að
skipuleggja eftir aðstæðum hvers
og eins. Hér verður reynt að lýsa
grundvallaratriðum sem vonandi
gagnast öllum.
Skynsamlegt er að setja raunhæf
markmið út frá fjölda gripa og
aðstöðu. Í sumum tilvikum kann að
vera skynsamlegra að velja úr bestu
kvígurnar og geta sinnt þeim vel.
Þó verður að gera ráð fyrir
afföllum m.a. vegna ófrjósemi.
G ott getur verið að skilgreina
tímaramma fyrir verkefni eins
og þetta. G róflega má segja að
upphaf tímarammans markist af
kynþroskaaldri. Lok rammans
markast af efri mörkum aldurs við
sæðingu.
T il að undirstrika mikilvæga
þætti í ferlinu, er hér valið að skipta
rammanum í 2 tímabil. Annars vegar
undirbúningstímabil og hins vegar
sæðingatímabil.
U nd irbúningstímabil
H venær þarf að hefja undir-
búning?
Segja má að undirbúningur
hefjist strax við fæðingu kvígunnar.
Vel heppnað eldi kvígukálfa allt
frá fæðingu verður seint ofmetið.
Lokaundirbúning fyrir sæðingar
ætti að hefja eigi síðar en við
kynþroskaaldur kvígnanna.
T alsverður breytileiki getur verið
á kynþroskaaldri. Nefndar eru tölur
frá 7-15 mánuðum. Æ skilegur aldur
kvígna við fyrsta burð er 22-24
mánuðir. Miðað við það þurfa
kvígurnar að festa fang við 13 -15
mánaða aldur. T il að ná því marki
þyrfti sennilega að hefja fyrstu
sæðingar á vel þroskuðum kvígum
við 12-13 mánaða aldur. Athugið að
samkvæmt reglugerð er óheimilt að
kelfa kvígur yngri en 11 mánaða!
Æ skilegt er að gefa kvígum a.m.k.
1-2 mánaða undirbúningstímabil
við kjöraðstæður áður en byrjað er
að huga að sæðingum.
U ndirbúning ætti því að hefja
við 10-12 mánaða aldur.
Almenn atriði sem gott er að hafa
í huga:
G ott er að velja kvígur í hóp
eða hópa strax í upphafi og
halda samsetningu óbreyttri út
sæðingatímabilið. Ef kvígurnar
fá að venjast saman raða þær sér
í virðingarröð og jafnvægi næst
innan hópsins. Kvígurnar verða
þá öruggari með sig. Þetta getur
haft margvísleg jákvæð áhrif og
m.a. aukið líkurnar á greinilegum
beiðsliseinkennum.
Hafa hæfilegan fjölda í hópi/
stíu. G æta þess að legu- og átpláss
sé nægjanlegt fyrir alla gripi. G ott
er að nota undirbúningstímann til
að spekja kvígurnar og venja við
læsigrindur.
Of stórir hópar auka hættu á að
einstakar kvígur verði afskiptar eða
útskúfaðar. Það tefur fyrir því að
jafnvægi náist innan hópsins og hefur
truflandi áhrif á beiðsligreiningu.
Of litlir hópar geta líka haft þau
neikvæðu áhrif að kvígurnar sýna
ekki eins glögg beiðsli. Oft verða
einkennin ákafari og greinilegri
þegar fleiri kvígur eru að beiða á
sama tíma.
F óðrun
Meta verður ástand hvers hóps
við upphaf undirbúnings. Æ skilegt er
að kvígurnar taki hæfilegum bata allt
undirbúnings- og sæðingatímabilið
án þess þó að verða of feitar.
Þegar kemur að sæðingum ættu
kvígurnar að vera í meðalholdum.
Fróðleikur um uppeldi kvígna er
aðgengilegur víða.
Í samtölum við frjótækna hefur
komið fram að í dag séu margar
kvígur óhóflega feitar þegar
kemur að sæðingu. Þetta hefur
bein neikvæð áhrif á frjósemi
en gerir líka sæðinguna sjálfa
erfiðari í framkvæmd. Líklegasta
skýringin er að kvígurnar séu að
jafnaði orðnar óþarflega gamlar.
Samkvæmt gögnum er meðaldur
íslenskra kvígna við fyrsta burð nú
27 mánuðir. T il að fleiri kvígur nái
að bera 1. kálfi á kjöraldri þyrfti að
jafnaði að hefja sæðingar fyrr en gert
hefur verið.
O rmalyf?
G era má ráð fyrir því að
nautgripir smitist af iðraormum á
beit. Mismikið eftir aðstæðum. Hafi
kvígur, sem á að sæða, verið á beit
en ekki fengið ormalyf, er eindregið
mælt með að gera það.
V ítamín, steinefni og snefilefni
Skortur á þessum efnum getur
m.a. haft neikvæð áhrif á frjósemi.
Því er mikilvægt að huga vel að þessu
á undirbúningstímanum og tryggja
aðgang og upptöku eftir því sem
hægt er. T aka þarf tillit til gæða og
efnasamsetningar heyja hverju sinni.
Ef kvígunum er gefið kjarnfóður eða
korn getur verið valkostur að blanda
við það steinefnablöndu.
Algengt er að láta kvígurnar hafa
frjálsan aðgang að snefilefnabættum
saltsteinum og/ eða bætiefnafötum.
Einnig má benda á þann kost að
gefa forðastauta. Þeir hafa þá kosti
umfram fötur og steina að tryggja
öllum gripum jafna upptöku yfir
lengri tíma.
L ýsing
Þrátt fyrir að kýr haldi að jafnaði
uppi gangmálum allt árið, er þekkt
að myrkur getur haft neikvæð áhrif
á frjósemi. Sérstök ástæða er til að
huga að þessu yfir vetrartímann.
Mælt er með fullri lýsingu ( 75 lux)
12-16 tíma á sólarhring en daufri
næturlýsingu. Sjálfvirk tímastilling
er góður kostur.
S æ ðingatímabil
H vað þarf sæðingatímabilið að
vera langt?
Ef vel tekst til, ættu flestar kvígur
að vera farnar að sýna beiðsli að
loknu undirbúningstímabilinu. Þá
er ekki óraunhæft að koma kálfi
í meirihluta þeirra á 2-3 mánaða
sæðingatímabili. Eflaust munu skiptar
skoðanir á því hve lengi er
skynsamlegt að halda áfram sæðingum
á kvígum sem ekki halda innan
skikkanlegs tíma. Færa má nokkur
rök gegn því að þráast of lengi við.
Með hækkandi aldri er hætt við að
þessar kvígur verið óhóflega feitar
við burð. Þær taka líka pláss í fjósi og
éta fóður sem e.t.v. væri betur varið í
annað. Svo má spyrja sig hvers vegna
þær hafa ekki haldið. Er skýringa að
leita í erfðaþáttum? Er skynsamlegt
að framrækta þannig galla?
H venær á að byrja að sæða?
Farsælast er að byrja ekki að
sæða fyrr en regla er komin á
beiðsli kvígunnar. Því er æskilegt
að hefja eftirlit með beiðslum strax
á undirbúningstíma.
Skrá á gangmáladagatal eða halda
sérstaka skrá.
Kvígurnar geta að sjálfsögðu
haldið við sæðingu á fyrsta beiðsli
en almennt er ekki mælt með að
reyna það.
Fyrstu beiðsli geta verið
óregluleg og erfitt að tímasetja
sæðingu rétt. Æ skilegt er að kvígan
sé farin að halda upp reglulegum
beiðslum og sæða fyrst þegar kvígan
hefur sýnt 2 eða fleiri greinileg
beiðsli með eðlilegu millibili.
G óð beiðslisgreining er
forsenda fyrir árangri. Bændur
eru hvattir til að kynna sér og
fylgjast með þróun á sjálfvirkum
skynjurum. Skynjaratæknin hefur
þróast þannig að margir bændur
t.d. bæði í Danmörku og Noregi
byggja beiðslisgreiningar nánast
alfarið á slíkri tækni og hafa góða
reynslu af því.
Eftir að sæðingar hefjast er rétt
að minna á mikilvægi þess að vera
á varðbergi gagnvart uppbeiðslum.
Fylgjast vel með þegar líður að því
að kvígan gæti beitt upp. Vonast eftir
því besta en gera alltaf ráð fyrir hinu.
S amstillingar
Samstillingar geta verið
valkostur sérstaklega þar sem
kvígur eru ekki hýstar með kúm í
fjósi og beiðsliseftirlit e.t.v erfiðara
í framkvæmd. Samstillingar
eru þó engin töfralausn en hafa
líka stundum fengið ósanngjarna
gagnrýni. Mikilvægt er að þekkja
kosti og takmörk samstillinga.
Ástæðan fyrir lakri útkomu
sæðinga eftir samstillingar er í
mörgum tilvikum sú, að kvígurnar
hafa ekki verið nægjanlega vel
undirbúnar. Samstilling er tæki
til að stýra tímasetningu beiðsla
hjá kvígum með virk og regluleg
beiðsli. Stundum heyrist talað um
að gangsetja kýr/ kvígur. Í því getur
falist sá misskilningur að lyfin geti
sett í gang beiðsli hjá óvirkum
kvígum. Kvígum sem annaðhvort
eru ekki orðnar kynþroska eða eru
með óvirka eggjastokka af öðrum
orsökum. Forsenda fyrir góðum
árangri við samstillingu er að
kvígurnar séu þegar með virkan
gangferil!
Aðstaða til sæðinga
Við hönnun á aðstöðu ætti að hafa
eftirfarandi markmið að leiðarljósi:
a) Að sæðing geti farið fram
átakalaust og valdi kvígunni sem
minnstri streitu.
b) Að frjótæknir hafi þægilega og
örugga aðstöðu til verksins.
c ) Að fyrirhöfn bóndans við
einstakar sæðingar sé sem minnst.
Þar sem kvígur eru lausar í stíum
er eindregið mælt með að koma upp
læsigrindum. Helst þannig að hægt
sé að læsa allan hópinn í stíunni
fram í grind samtímis. Best er að
geta fyrirhafnarlítið lokkað allan
hópinn fram í læsigrind t.d. með því
að strá fyrir þær korni eða kögglum.
Verkið verður einfaldara, fljótlegra
og öruggara. Við slíkar aðstæður
stendur kvígan sem er sædd yfirleitt
róleg með stuðning til beggja hliða.
K vígur og kyngreint sæði:
Kvígur eru markhópur nr.1 við
sæðingar með kyngreindu sæði.
Rökin fyrir því felast í styttingu
ættliðabils og því að þær eru
almennt frjósamari en eldri kýr.
Árangur sæðinga með kyngreindu
sæði hefur fram að þessu verið
lakari en með hefðbundnu sæði.
Því er almennt mælt með notkun
þess á frjósömustu gripina. Þar eru
kvígurnar efstar á blaði!
Forsenda fyrir því að hægt sé
að réttlæta framleiðslu og notkun
á kyngreindu sæði fyrir okkar litla
markað er að fleiri kvígur verði
sæddar!
H öskuld ur J ensson,
dýralæknir á N autastöð
B ændasamtaka Íslands
YLEININGAR
Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús
þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
H ö skuldur
J ensson.
E ftirfarandi upplýsingar eru hugsaðar sem hvatning og gagnlegar upplýsingar,
til þeirra sem sjá mö guleika á að hefja eða auka sæðingar á kvígum.
Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir