Bændablaðið - 14.12.2023, Side 57

Bændablaðið - 14.12.2023, Side 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Skýring getur átt rætur að rekja til margra þátta en oft eru þessi lönd þannig í stakk búin að nokkuð auðvelt er fyrir íbúa þessara landa að lifa af landinu. Fyrir vikið hefur verið lítill akkur í því að auka framleiðsluna umfram hóflega þörf heima fyrir. Í þessum löndum er landnýtingin oft frekar léleg og þó svo að rækta mætti nánast árið um kring eru landnotendur ekki að nýta landið þannig. Nú er aftur staðan að breytast og þá vantar mögulega bæði þekkingu, tæknibúnað og fjármagn til þess að stíga skrefið í rétta átt. Bætt nýting landsins gæða fæst fyrst og fremst með aukinni þekkingu og bættri tæknivæðingu, bæði hvað varðar vélbúnað en ekki síður hvað varðar þær tegundir sem kúabændur nota til að sinna búskapnum. Þannig eru margir bændur enn að nota plöntur sem eru á engan hátt nógu afkastamiklar. Nefna má dæmi að margir bændur í hlýjum löndum nota maísafbrigði sem nær þroska á 120 dögum en í dag er samt til afbrigði sem nær sama þroska á 90 dögum. Þarna munar um 25% , ætti að muna um minna en samt eru til bændur sem kaupa hið seinþroska afbrigði líklega af gömlum vana og/ eða vanþekkingu. Þá eru til ótal kúakyn í heiminum í dag sem eru í raun alls ekki heppileg til mjólkurframleiðslu en eru samt notuð í þeim tilgangi. Skýringarnar fyrir áframhaldandi notkun kúakyns, sem er hreint ekki öflugt mjólkurframleiðslukyn, geta verið margs konar en mín reynsla er að oftast er um að ræða skort á ytra umhverfi. Þessir bændur eiga oft lítið annað val. Mögulega hafa þeir ekki gott aðgengi að landi eða fóðri, enginn að bjóða upp á sæðingarstarfsemi eða dýralækningar á svæðinu þar sem þeir búa, mögulega er engin afurðastöð í nágrenninu og því óvíst með sölu mjólkurinnar og fleira mætti nefna. Sé ytra umhverfið til staðar, þá ýtir það við flestum bændum og auðveldar þeim að gera betur. Þá kemur það svolítið af sjálfu sér að betra sé að vera með afkastamikil framleiðslutæki enda geta landkynin sem eru í notkun víða um heim í dag ekki nærri því komist með framklaufirnar þar sem afurðameiri kýr eru með lágklaufirnar. En það er ekki nóg að vera með afurðamiklar kýr ef ekki er um leið til staðar tækni til að mjólka þær. Líklega standa handmjaltir undir 80-90% þeirrar mjólkur sem fer á markað í dag í þróunarlöndunum. Á meðan meðalframleiðsla hvers bús eða fjölskyldu er mögulega ekki nema um 10 lítrar á dag þá er þessi aðferð við mjaltir í raun mjög skynsamleg. Þegar mjólkurframleiðslan vex þarf þó að bæta úr og tæknivæða mjaltirnar. Mögulega fyrst með einföldu mjaltafötukerfi, þá rörmjaltakerfi o.s.frv. Þetta er þó á engan hátt sjálfgefin þróun, enda þarf töluverða tæknilega kennslu og þjónustu til þess að innleiða mjaltatækni í löndum þar sem mjaltatæki hafa vart sést áður. Þetta verkefni sem er fram undan verður töluverð brekka en er vel fær og ætti að geta gefið neytendum um heim allan kost á því að njóta hollrar mjólkur og góðra mjólkurvara. Stór áhrifavaldur á minni aukningu heimseftirspurnar er þróunin sem varð í Kína árið 2022 ...“

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.