Bændablaðið - 14.12.2023, Side 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464 - www.wendel.is - wendel@wendel.is
Gleðilega hátíð
og gæfuríkt komandi ár
með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Starfsfólk A.Wendel ehf.
NÝR VÉLABÆKLINGUR!
Kemur inn um lúgur landsmanna yfir hátíðarnar!
Frábær áramótaverð til 19. janúar!
Það ástand sem blasir þó orðið
við okkur í dag einkennist víða
af langri bið. T ímabili þar sem
bændur hafa haldið að sér höndum
einfaldlega vegna þess að skilaboðin
um að við ætlum virkilega að halda
í öflugan landbúnað til framtíðar og
raunverulegar aðgerðir þar að lútandi
hafa ekki verið til staðar, jafnvel þótt
stefnurnar og markmiðin séu til. En
ekki verður beðið endalaust og ljóst
er að eftir því sem biðin lengist þá
dragi úr viðnámsþrótti landbúnaðar á
Íslandi með hnignun innviða og hættu
á glötun þekkingar og mannauðs.
Áherslur stjórnvalda á nýliðun,
kynslóðaskipti bænda og eflingu til
framtíðar verður því mikilvæg til
að veita eldri bændum kraft til að
halda lífi í búum sínum, halda áfram
uppbyggingu og framþróun enda sé
nær öruggt að ungt og áhugasamt fólk
muni koma til með að taka við keflinu
og það muni í raun geta það.
Við vitum vel að hverju við búum
á Íslandi og erum stolt af því sem við
gerum. Það er drifkrafturinn sem hefur
haldið okkur bændum gangandi svo
lengi, ánægjan við starf okkar. Enn
fremur blasir svo greinilega við okkur
sem lítum um heiminn og nánasta
umhverfi að aðstæður hér með okkar
afbragðs góðu náttúruauðlindir og
framúrskarandi mannauð ætti ekkert
að standa í vegi fyrir því að við
getum haldið áfram á þeirri braut að
framleiða ein þau bestu og hreinustu
matvæli heims.
T æ kifæ rin eru í höndum okkar
Það er því til heilmikils að vinna svo
komandi kynslóðir geti notið góðs af
því að landbúnaður blómstri á Íslandi
enn betur um langa framtíð. Þar
þurfum við unga fólkið að taka það
til okkar að vera leiðandi í umræðunni
á komandi misserum. T il þess þarf að
koma hugmyndum og sjónarmiðum á
framfæri og vera óhrædd við að stinga
upp á nýjum lausnum eða áherslum.
Það verður því mikið tækifæri fyrir
ungt fólk sem hefur það að markmiði
að gerast bændur eða unga bændur
að taka þátt í málefnastarfi Samtaka
ungra bænda ( SU B) á næstu misserum.
U m þessar mundir eru landshlutafélög
ungra bænda að undirbúa málefni og
fulltrúa á aðalfund SU B sem haldinn
verður helgina 12.–14. janúar á
Hótel Dyrhólaey í Mýrdalshrepp
þar sem línurnar verða lagðar og
árshátíð ungra bænda verður haldin
sömuleiðis. Ég vil því eindregið
hvetja alla þá sem ætla sér að vera
hluti af framtíð íslensks landbúnaðar
að taka virkan þátt, vera hluti af þeirri
sterku rödd sem ungir bændur hafa
svo sannarlega í dag og finna sig í
félagsskap hver annars.
Að því sögðu vil ég óska bændum,
ungum sem öldnum, og öðrum
landsmönnum gleðilegrar hátíðar,
friðar og farsældar á komandi ári.
S teinþór Logi Arnarsson,
formaður S amtaka ungra bænda.
B jarni R únarsson fundarstjóri og H arpa R ut S igurgeirsdóttir voru glaðb eitt
á fundinum. Þ að er einmitt á nægja og b jartsýni sem knýr unga b ændur
hvað mest á fram.
Baráttan Laun fyrir lí fékk góða fjölmiðlaumfjöllun. uríður Lillý í
sjónvarpsviðtali.