Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 67
67Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Afkvæmin eru viljug og þjál og
fara vel í reið með góðum fótaburði.
G róska hlýtur heiðursverðlaun og
sjöunda sætið.
V issa frá Holtsmúla 1
Hryssan í áttunda sæti er Vissa
frá Holtsmúla 1. Hún er undan
heiðursverðlaunahrossunum Orra
frá Þúfu og Vöku frá Arnarhóli.
Ræktendur og eigendur eru Miðsitja
ehf, Ása Hreggviðsdóttir & Birgir
Ellert Birgisson. Vissa er með 116
stig í kynbótamati aðaleinkunnar en
hún á 16 afkvæmi og hafa 5 þeirra
hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,05
í aðaleinkunn og voru þau sýnd við
meðalaldur 6,2 ár
Dómsorð afkvæma: Vissa gefur
hross í meðallagi að stærð. Höfuð
lýtalaust með beinni neflínu.
Hálsinn yfirleitt grannur og reistur.
Baklína oftast góð, lendin misjöfn,
stundum aðeins gróf. Afkvæmin eru
hlutfallarétt og fótahá. Fótagerð og
réttleiki í meðallagi. Hófar með
þykkum hælum en geta verið
heldur víðir. P rúðleiki í meðallagi.
T öltið er taktgott, skrefmikið með
góðri fótlyftu. Brokkið er oftast
takthreint og með góðri fótlyftu.
Afkvæmin eru öll, nema eitt, vel
vökur. Stökkið yfirleitt rúmt og
taktgott. Fetið er taktgott en stundum
fremur skrefstutt. Afkvæmin eru þjál
og með góða framhugsun. Fegurð í
reið einkennist af góðum fótaburði.
Vissa hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og áttunda sætið.
Ó lafía frá Læ kj amóti
Hryssan í níunda sæti er Ó lafía
frá Lækjamóti. Hún er undan
heiðursverðlaunahestinum Aðli
frá Nýjabæ og Rauðhettu frá
Lækjamóti. Ræktandi hennar og
eigandi er Sonja Líndal Þórisdóttir.
Ó lafía er með 114 stig í kynbótamati
fyrir aðaleinkunn en 121 stig í
kynbótamati aðaleinkunnar án
skeiðs. Hún á 9 afkvæmi og hafa
5 þeirra hlotið kynbótadóm að
meðaltali 7,94 í aðaleinkunn og voru
þau sýnd við meðalaldur 5,4 ár.
Dómsorð afkvæma: Ó lafía gefur
mjög stór hross. Höfuð er svipgott og
eyru fínleg en stundum aðeins djúpir
kjálkar. Hálsinn er reistur og langur.
Bakið er breitt og vöðvafyllt og
lendin öflug. Afkvæmin eru fótahá
og sívalvaxi n. Fótagerðin er traust
og réttleiki yfirleitt góður. Hófar
prýðilegir með hvelfdum botni.
P rúðleiki yfirleitt yfir meðallagi.
Afkvæmi Ó lafíu er klárhross. T öltið
er takthreint, skrefgott með góðri
fótlyftu. Brokkið er skrefmikið
og takthreint. Stökkið er rúmt og
skrefmikið en hæga stökkið er
sviflítið. Fetið er takthreint og
skrefmikið. Afkvæmin eru viljug
og fara vel í reið. Ó lafía hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
níunda sætið.
G erp la frá Hólabaki
Hryssan í tíunda sæti er G erpla
frá Hólabaki. Hún er undan
heiðursverðlaunahestinum G usti
frá Hóli og Eldingu frá Hólabaki.
Ræktandi hennar og eigandi er Björn
Magnússon. G erpla er með 113 stig
í kynbótamati aðaleinkunnar og 118
stig í kynbótamati aðaleinkunnar
án skeið. Hún á 14 afkvæmi og
hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm
að meðaltali 8,11 í aðaleinkunn og
voru þau sýnd við meðalaldur 6,6 ár.
Dómsorð afkvæma: G erpla gefur
stór hross. Höfuð er með beinni
neflínu og vel opnum augum en
eyrun stundum aðeins gróf. Hálsinn
er langur og reistur. Eitt afkvæmanna
hefur framhallandi baklínu en annars
er baklína góð og lendin oftast öflug.
Afkvæmin eru langvax in og sívöl.
Fótagerðin í meðallagi en sinaskil
eru stundum lítil. Réttleiki heldur
slakur en flest afkvæmanna eru
nágeng. Hófar yfirleitt efnistraustir.
P rúðleiki heldur slakur með einni
undantekningu þó. Afkvæmin eru
að uppistöðu klárhross þó sum
þeirra tæpi á skeiði. T öltið er
skrefgott með góðri fótlyftu, það
sama má segja um brokkið. G reitt
stökk er ferðmikið og teygjugott og
bæði hægt og greitt stökk eru með
góðri fótlyftu. Fetið er takthreint og
skrefgott. Afkvæmin eru viljug og
fara vel í reið, með mikilli reisingu
og fallegum fótaburði. G erpla hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
tíunda sætið.
K atla frá S teinnesi
Hryssan í ellefta sæti er Katla
frá Steinnesi. Hún er undan G ammi
frá Steinnesi og Kylju frá Steinnesi.
Ræktandi hennar er Magnús
Jósefsson og eigandi er Ágúst Þór
Jónsson. Katla er með 113 stig í
kynbótamati aðaleinkunnar en 118
stig í kynbótamati aðaleinkunnar
án skeiðs. Hún á 16 afkvæmi og
hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að
meðaltali 8,03 og voru þau sýnd við
meðalaldur 5,6 ár.
Dómsorð afkvæma: Katla frá
Steinnesi gefur frekar stór hross.
Höfuð er svipgott og eyru fínleg.
Hálsinn er hátt settur við háar herðar
og skásettum bógum. Baklína er góð
og lendin öflug.
Afkvæmin eru fótahá og yfirleitt
hlutfallarétt. Fótagerð er traust en
réttleiki tæpur, afturfætur nágengir
og framfætur snúnir. Hófar eru með
hvelfdum botni en efni í meðallagi.
P rúðleiki er góður. Afkvæmi Kötlu
eru klárhross að upplagi þó eitt
þeirra sé sæmilega vakurt. T öltið er
taktgott með góðri fótlyftu. Brokkið
er lyftingagott en rými í meðallagi.
Stökkið er með góðri fótlyftu en
stundum sviflítið. Fetið er misgott
en oft skrefmikið. Afkvæmin fara
vel í reið með góðum fótaburði
og framhugsun. Katla hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
ellefta sætið.
Þ ráinn frá F lagbj arnarholti
Þráinn frá Flagbjarnarholti
hlýtur nú viðurkenningu fyrir fyrstu
verðlaun fyrir afkvæmi. Hann er
undan heiðursverðlaunahestinum
Álfi frá Selfossi og Svartsdótturinni
Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum.
Ræktendur Þráins er Jaap G roven
og eigandi Þráinsskjöldur ehf.
Þráinn er með 13 0 stig í kynbótamati
aðaleinkunnar og 16 dæmd afkvæmi.
Meðaltal aðaleinkunnar sýndra
afkvæma er 8,07 og eru þau afar
ung að árum 4,6 ára að meðaltali.
Dómsorð afkvæma: Þráinn frá
Flagbjarnarholti gefur fremur stór
hross. Höfuðið er skarpt með beina
neflínu og vel borin eyru sem eru
stundum gróf. Hálsinn er reistur
og grannur við háar herðar. Bakið
er með nokkuð góða baklínu,
vöðvafyllt og lendin löng. Afkvæmin
eru samræmisgóð, bolurinn jafn og
sívalur og framhæð og fótahæð góð.
Fætur eru réttir, þurrir með fremur
góð sinaskil og öflugar sinar. Hófar
eru efnisgóðir með hvelfdan botn,
prúðleiki er í meðallagi.
Afkvæmin eru bæði klár- og
alhliðahross en vekurðin er ekki
mikil enn sem komið. T öltið er
skrefmikið með góðum fótaburði.
Brokkið, hæga og greiða stökkið
er skrefmikið. Fetið er takthreint.
Þráinn gefur myndarleg og
samræmisgóð hross sem fara vel í
reið bæði skrefmikil og með góðum
fótaburði. Þau eru ung að árum en
bæði viljug og þjál. Þráinn hlýtur
fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
Fjósbitar frá Andersbeton fyrir kýr
og ungviði.
Gólfplötur undir allar gerðir mjaltaþjóna.
Flutt heim á býli.
Flatgryfjur og fylgihlutir, ss. yfir, hliðar
og undirplast, fergingarnet, dekkjahringir
og jöfnunarvalsar.
Rúlluplast bæði með og án meindýravarna,
ss. vörn bæði fyrir fugli og músum.
Rúllunet og bindigarn.
Verð á plasti og neti miðað við
afhendingu á býli.
Haughrærur og dælur.
Litli Krummi ehf.
Benedikt Hjaltason
s.8946946
fjosbitar@simnet.is
ÖLL ALMENN MÚRVINNA
ÞJÓNUSTUM EINSTAKLINGA,
HÚSFÉLÖG OG FYRIRTÆKI
• Múr- og sprunguviðgerðir •
• Steypuslípun •
• Inndælingar •
• Filtering/Pússun •
• Flotun •
• Hleðslur •
• Flísalagnir •
781 7777
husrad@husradverktakar.is
Hafðu
samband á
stolpigamar.is
eða í síma
568 0100
stolpigamar.is
Sniðug lausn! Geymslugámar með bílskúrshurð
Við bjóðum í fyrsta sinn hentuga 20 feta sérútbúna geymslugáma
með bílskúrshurð sem auðveldar aðgengið mikið. Gámarnir eru
hentug geymslulausn undir búslóðir, frístundatæki eða í raun
hvað sem er. Komdu og skoðaðu.
Hafðu samband við
okkur og fáðu allar
nánari upplýsingar
eða kíktu í heimsókn.
KLETTAGARÐAR 3-5 | 104 REYKJAVÍK | STOLPIGAMAR@STOLPIGAMAR.IS
G erpl a frá H ól abaki. K atl a frá S teinnesi.