Bændablaðið - 14.12.2023, Page 68
68 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Í lok síðasta árs var að mestu lokið
við forritun á forystufjárhluta
F járvís þar sem lokið var við
útreikninga á forystufjárhlutfalli,
yfirlit yfir forystufé búsins,
möguleiki á skráningu á dómum
á forystufé og mati bónda á
forystuhæfni og yfirlitssíða í
gripaupplýsingum forystufjár.
Auk þessa er hægt að taka út yfirlit
yfir allt lifandi forystufé á landinu,
staðsetningu þess og forystu-
fjárhlutfall fyrir þá sem þurfa að
vinna með slíkt.
Sjálfkrafa útreikningar á
forystufjárhlutfalli í Fjárvís er
lykillinn að því að halda utan um
forystufjárstofninn til framtíðar.
T il að hægt sé að reikna út
forystufjárhlutfall gripa á réttan
hátt þurfa upplýsingar um ætterni
gripsins að vera réttar og að ekki
séu göt í ættartré gripsins og að
forfeður séu skráðir með rétt
forystufjárhlutfall.
Þar sem hingað til hefur ekki verið
haldið með reglubundnum hætti utan
um forystufé í gegnum skýrsluhaldið
eru þau gögn sem voru inni í Fjárvís
þegar útreikningarnir voru virkjaðir
ekki nægjanlega góð til að hægt væri
að reikna rétt forystufjárhlutfall á
alla gripi í kerfinu. Ástæðan er fyrst
og fremst eins og áður var nefnt, göt
í ætternisfærslum þessara gripa eða
að hluti af forfeðrum gripsins hafa
ekki verið skilgreindir sem forystufé
í skýrsluhaldinu.
Með því að uppfæra skráningar
á gripum sem hafa verið mikilvægir
í ræktun forystufjárins í gegnum
tíðina s.s. þeim forystufjárhrútum
sem verið hafa í notkun á
sæðingastöðvunum teljum við þó
að náðst hafi utan um megnið af
því forystufé sem er lifandi í dag
og þar með að finna flest þau bú
sem halda forystufé. Þar með er
björninn þó ekki unninn því af
ofangreindum ástæðum er reiknað
forystufjárhlutfall þessara gripa ekki
alltaf rétt og til þess að hægt sé nýta
Fjárvís sem tæki til utanumhalds
um íslenska forystufjárstofninn er
mikilvægt að við náum að leiðrétta
og uppfæra sem flesta lifandi gripi í
kerfinu því það eru jú þeir sem munu
leggja grunninn að næstu kynslóðum
forystufjár.
Þegar talað eru um forystu-
fjárhlutfall erum við að tala um hversu
stórt hlutfall af erfðavísum gripsins
komi úr forystufjárstofninum. Þetta
mat byggjum við á upplýsingum
um forfeður gripsins. Lamb þar
sem báðir foreldrar eru skilgreindir
sem hreinræktað forystufé
myndi þá reiknast með 100%
forystufjárhlutfall en lamb þar
sem annað foreldri er hreinræktað
forystufé en hitt ekki, reiknast þá
aðeins með 50% forystufjárhlutfall.
Réttar ætternisfærslur og skráningar
eru því lykilatriði í að ná að halda
utan um forystufjárstofninn.
G ripur sem er undan hreinræktaðri
forystuá en hefur ekki skráðan
föður reiknast því eingöngu með
50% forystufjárhlutfall, þar sem við
getum gengið að því vísu að allir
gripir eigi tvo foreldra en við getum
ekki gengið að því vísu að báðir séu
forystufé ef upplýsingar vantar.
Það er því mikilvægt fyrir
eigendur forystufjár að yfirfara
sína gripi inn í Fjárvís þannig að
hægt sé að leiðrétta og uppfæra
skráningar þannig að þeir fái rétt
forystufjárhlutfall. Y firlit yfir
forystufé búsins er hægt að sjá í
skýrslunni „Forystufé“ sem finna
má undir valmyndinni „Y firlit“. Þar
sést einnig hvert forystufjárhlutfall
gripsins er í kerfinu. Mikilvægt er
að láta vita af þeim gripum sem ekki
hafa rétt forystufjárhlutfall eða ef
einhverjir gripir koma alls ekki fram í
yfirlitinu. Einnig er mjög mikilvægt
að þeir sem af einhverjum ástæðum
hafa valið að halda sínu forystufé
utan skýrsluhaldsins láti skrá það inn
í Fjárvís þannig að það komi inn í
skrásetningu á forystufjárstofninum.
Nú stendur yfir sérstakt átaks-
verkefni í að ná utan um forystu-
fjárstofninn í landinu. Markmiðið er
fyrst og fremst að ná vel utan um það
forystufé sem er lifandi í dag þannig
að hægt verði að nýta Fjárvís til að
halda utan um forystufjárstofninn
til framtíðar og að það verði
einfaldlega eðlilegur hluti af góðu
skýrsluhaldi. Hægt er að senda
tölvupóst með athugasemdum og
ósk um leiðréttingar á netfangið
forystufe@ rml.is eða hafa samband
í síma 5165000. Þeir starfsmenn
sem fyrst og fremst munu aðstoða
við leiðréttingar og skráningar á
forystufé eru Árni B. Bragason,
G uðfinna Harpa Árnadóttir og
G uðrún Hildur G unnarsdóttir.
Erfðanefnd landbúnaðarins og
Fræðasetur um forystufé hafa styrkt
og stutt við þetta verkefni.
G unnfríður E lín
H reiðarsdóttir,
verkefnastjóri Þróunar og
verkefnastofu hjá R ML .
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Utanumhald um
forystufé í Fjárvís
F orystuhrúturinn F rakki 2 0 - 8 9 5 frá H olti. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir
K ynbótamat fyrir tvo nýja eigin-
leika hefur nú litið dagsins ljós
í skýrsluhaldskerfi nautgripa-
ræktarinnar, H uppa.is, og á
nautaskrá.is.
Eiginleikarnir sem um ræðir
kallast „lifun kálfa“ og „gangur
burðar“ og er matið þróað af
Agli G autasyni, lektor hjá LbhÍ.
Við vonumst til að birting þessa
kynbótamats geti hjálpað okkur
í baráttunni gegn allt of miklum
kálfadauða í íslenska kúastofninum.
Mat fyrir lifun kálfa ( L K ) byggir
á gögnum sem ná aftur til 2004 og
flokkast mælingar í tvo flokka;
dauðfæddir kálfar og kálfar sem
fæðast lifandi. Í mati fyrir gang
burðar ( G B ) eru til gögn frá árinu
2018 þegar byrjað var að safna
upplýsingum um burðarerfiðleika í
burðarskráningum gripa í Huppu og
skiptist burðarerfiðleikaskráningin
í fjóra flokka. Mat fyrir LK og G B
skiptist í einkunnir fyrir 1 ) burð
hjá 1 . kálfs kvígum og 2) burði hjá
eldri kúm. Að auki skiptist matið
í einkunnir fyrir mæðraáhrif og
feðraáhrif/bein áhrif. Ástæða þess
er sú að við hvern burð fá tveir
einstaklingar mælingu: Móðir
kálfsins og kálfurinn sjálfur.
Mæðraáhrif eru áhrif móður á
burðinn en feðraáhrif/ bein áhrif eru
áhrif kálfsins á eigin fæðingu. Mat
fyrir LK og G B skipist því í átta
undireinkunnir: LK 1 feðraáhrif,
LK 2 feðraáhrif, LK 1 mæðraáhrif,
LK 2 mæðraáhrif, G B 1 feðraáhrif,
G B 2 feðraáhrif, G B 1 mæðraáhrif
og G B 2 mæðraáhrif.
T il þess að gera matið skýrara í
framsetningu, meðal annars, eru auk
þess birtar tvær samsettar einkunnir:
B urður feðraáhrif ( B F A) og
burður mæðraáhrif ( B M A) ( sjá
mynd 1) . Samsettu einkunnirnar eru
birtar á nautaskra.is en í Huppu má
sjá allar einkunnir með því að velja
grip, flipann kynbótamat og svo
allar einkunnir. Ef litið er til þessara
einkunna hjá sæðinganautum lýsir
B F A getu afkvæma nautanna til
að fæðast lifandi og auðveldlega.
Því hærri einkunn, því meiri líkur
á að kálfar undan viðkomandi nauti
fæðist vandkvæðalaust og lifandi.
Ef horft er á þessar einkunnir hjá
kúm gildir í raun það sama, hærri
einkunn þýðir meiri líkur á að kálfar
sem kýrin eignast fæðist lifandi og
án átaka vegna áhrifa kálfsins á
eigin burð. Einkunn fyrir B M A lýsir
getu dætra nautanna til að eignast
lifandi kálfa á auðveldan hátt. Því
hærri einkunn, því meiri líkur á að
dætur viðkomandi nauts muni bera
lifandi kálfum án vandkvæða. Ef
verið er að horfa á þessa einkunn
hjá kúm þýðir hærri einkunn meiri
líkur á að kýrin beri lifandi kálfum
vandkvæðalaust vegna eigin áhrifa
á burðinn.
Mikilvægt er að hafa í huga að
mat fyrir þessa eiginleika er spá fyrir
gripi sem ekki hafa reynslu, eins og
er raunin með allt kynbótamat ungra
gripa. Hátt mat þýðir ekki að allir
kálfar fæðist lifandi né heldur að
lágt mat segi til um að allir kálfar
fæðist dauðir. Matið segir til um
ákveðnar líkur og lág einkunn þýðir
þá meiri líkur á dauðfæddum kálfum
og hátt mat minni líkur.
Nýju einkunnirnar eru ekki hluti
af heildarkynbótaeinkunn gripa.
N ýting við bú stjórn
Kynbótamat þessara eiginleika
er hægt að hagnýta sér sem
bústjórnartæki. Naut sem fá lágt
mat fyrir B F A ætti sem dæmi að
forðast að nota á kvígur og nota þau
frekar á eldri kýr sem hafa borið
einu sinni eða oftar. Á sama hátt er
hægt að horfa á matið fyrir B M A
á þann hátt að dætur nauta með
hátt mat fyrir þann eiginleika eiga
auðvelt með að fæða lifandi kálfa.
Þannig er hægt að vega og
meta eiginleikana saman til þess
að minnka líkur á dauðfæddum
kálfum. Kynbótamatið á því að geta
hjálpað okkur til þess að draga úr
tíðni dauðfæddra kálfa.
K á lfadauði á Íslandi
Of mikill kálfadauði, sér í lagi hjá 1.
kálfs kvígum, hefur verið viðvarandi
vandamál í íslenska kúastofninum.
Í gagnaskrá kynbótamatsins, sem
nú spannar 20 ára tímabil aftur í
tímann, fæðast eingöngu 74% kálfa
undan 1. kálfs kvígum lifandi. Í
tilfelli kálfa sem fæðast við annan
og þriðja burð er hlutfallið 91% .
Engin ein skýring er á þessu
vandamáli en ýmis umhverfisáhrif,
s.s. bústjórn, virðast eiga stóran þátt.
Árið 2021 birti RML skýrslu um
þessi mál: „Kálfadauði hjá fyrsta
kálfs kvígum“ en hana má finna
á þessari vefsíðu https:/ / w w w .rml.
is/ is/ kynbotastarf/ nautgriparaekt/
fagrad-i-nautgriparaekt/ verkefni.
Einhver hluti virðist þó vera
erfðatengdur en arfgengi fyrir
„lifun kálfa“ hjá 1. kálfs kvígum
( LK 1) er 7-9% . Þá er erfðaþróun
LK 1 feðraáhrif neikvæð sem þýðir
að aukning á kálfadauða er ekki
einungis vegna umhverfisáhrifa
heldur einnig erfðaþátta. Vegna
þessa vega LK 1 feðraáhrif og LK
1 mæðraáhrif 70% í samsettum
einkunnum fyrir burð feðraáhrif
( BFA) og burð mæðraáhrif ( BMA) .
D æ mi um naut með reynslu
Í meðfylgjandi töflu má sjá nokkur
naut með reynslu og einkunnir
þeirra fyrir samsettu einkunnirnar,
B F A og B M A. Bolti 09021 og
Dropi 10077 fá lágar einkunnir fyrir
B F A en hlutfall lifandi fæddra kálfa
undan þeim og 1. kálfs kvígum er
undir meðallagi. Loki 12071, Ý mir
13 051, Risi 15014 og Jötunn 17026
fá hins vegar góðar einkunnir fyrir
B F A þar sem hlutfall lifandi kálfa
undan þeim og 1. kálfs kvígum er
yfir meðaltali.
Ef litið er á einkunn fyrir B M A
fá Bolti 09021, Loki 12071 og
Ý mir 13 051 lágar einkunnir enda
er hlutfall dætra þeirra sem eignast
lifandi kálf við fyrsta burð undir
meðaltali. Í tilviki Dropa 10077,
Risa 15014 og Jötuns 17026 snýst
dæmið við og hærra hlutfall dætra
þeirra eignast lifandi kálfa við 1.
burð. Einkunnir þeirra eru því hærri.
Þórdís Þórarinsdóttir og
G uðmundur Jóh annesson,
ráðunautar á búfjárræktar-
og þjónustusviði.
Kynbótamat fyrir „lifun
kálfa“ og „gang burðar“
M ynd 1 . K ynb ótamatið fyrir „l ifun ká lfa“ og „g ang b urðar“ skiptist í á tta undireinkunnir. Ú tb únar hafa verið tvær
samsettar einkunnir úr undireinkunnunum: B urður feðraá hrif og b urður mæðraá hrif.
Þ órdís
Þ órarinsdóttir.
G uðmundur
J óhannesson.
Þú finnur Bændablaðið
á www.bbl.is,
Facebook & Instagram
Bolti 9021 72 69% 77 62%
Dropi 10077 84 69% 127 78%
Loki 12071 117 87% 82 70%
Ýmir 13051 127 82% 88 71%
Risi 15014 110 79% 121 81%
Jötunn 17026 120 78% 113 83%
* Hlutfall lifandi fæddra kálfa undan nautunum þar sem mæður eru fyrsta kálfs kvígur
** Hlutfall lifandi fæddra kálfa undan dætrum nautanna við þeirra fyrsta burð
Burður feðra-
áhrif (BFA)
Hlutfall lifandi
fæddra kálfa
undan kvígum *
Burður mæðra-
áhrif (BMA)
Hlutfall lifandi
fæddra kálfa
undan dætrum
við fyrsta burð **