Bændablaðið - 14.12.2023, Side 71

Bændablaðið - 14.12.2023, Side 71
71Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Vinnupallar ehf. – Vagnhöfða 7 – s. 787 9933 – vpallar@vpallar.is – www.vpallar.is Við færum þér öruggar lausnir á aðventunni. Þ egar kerfið refsar þeim sem leggja sig fram um að gera allt rétt. Þ að er opinbert leyndarmál að villibráðamarkaðurinn er að stærstum hluta undir yfirborðinu og enginn vilji virðist vera til að gera neitt í því. Hins vegar er þeim sem sækja um leyfi, vinna sínar afurðir í vottuðum vinnslum, setja saman ítarlega gæðahandbók og reyna í öllu að fara eftir þeim reglum sem um starfsemina gilda, íþyngt fram úr öllu hófi. Í þessari grein verður sagt frá reynslu villibráðaframleiðanda, félagsmanni í Samtökum smáframleiðenda matvæla sem er að framleiða í vottaðri vinnslu, ásamt öðrum framleiðendum. Við höfum fengið fjölmargar sambærilegar reynslusögur frá félagsmönnum í annars konar framleiðslu, en einnig stærri aðilum innan matvælageirans og vonum að þetta dæmi hreyfi við kerfinu. Í úttektina fyrir skilyrt leyfi mættu þrír eftirlitsaðilar. Einn þeirra hafði allt á hornum sér og var þegar búinn að ákveða að leita allra leiða til að finna eitthvað að til að geta stöðvað starfsemina. Ein af kröfunum hans var að fjaðrir fuglanna mættu ekki snerta kjötið sem er ógerlegt. Einn var jákvæður og opinn fyrir því að finna lausnir á því hvernig best væri að gera þetta. Þriðji aðilinn var hlutlaus. Þessi heimsókn sýndi vel hið mikla ósamræmi sem er á milli eftirlitsaðila og hversu mikið persónulegt vald þeir hafa. Framleiðandinn fékk skilyrt leyfi eftir þessa heimsókn, þökk sé eftirlitsaðilanum sem var tilbúinn til að hugsa í lausnum. Eftir að skilyrt leyfi er fengið tekur við reglubundið eftirlit. G æ ðahandbókin yfirfarin í hverri heimsókn Þegar framleiðandinn fékk fyrstu reglubundnu eftirlitsheimsóknina var hann nýbúinn að ganga í gegnum strangt og sligandi leyfisveitingaferli sem hafði tekið heilt ár – meðal annars vegna þess að villibráð var hreinlega ekki til í kerfinu hjá Matvælastofnun. Samhliða því hafði hann unnið ítarlega gæðahandbók með aðstoð fagfólks. Eftirlitsaðilinn biður um gæðahandbókina, flettir í gegnum hana og segist þurfa að fara yfir hana. Þegar eftirlitsþeginn hváir og segir að MAST sé nýbúið að samþykkja hana og spyr hvers vegna hann þurfi líka að gera það, var svarið: „Vegna þess að ég má það.“ Og til að sýna mátt sinn og megin hefur eftirlitsaðilinn eftir það tekið gæðahandbókina til yfirlestrar og rukkað fyrir það í hvert sinn sem hann hefur komið í eftirlit, þó stutt sé síðan síðast og ekkert hafi breyst í bókinni eða framleiðslunni. S tórkostleg ofrukkun Sami eftirlitsaðili rukkaði viðkomandi framleiðanda fyrir fjögurra klukkustunda eftirlit, þrátt fyrir að hafa verið á svæðinu í einn klukkutíma; plús akstur. T ímagjaldið eru 25.000 kr. Í ofanálag rukkaði hann annan aðila sem átti ekki að fá eftirlit þann dag, fyrir klukkutíma í eftirlit plús akstur, vegna þess að þeir áttu stutt, óformlegt spjall inni á kaffistofunni. Sem sagt tvöfaldan akstur og samtals fimm klukkustunda eftirlit fyrir heimsókn sem stóð yfir í eina klukkustund. Sem betur fer hafði framleiðandinn þor til að kvarta til MAST og var tímunum á hann fækkað í tvo. Framleiðandinn þurfti að undirgangast óeðlilega strangt reglubundið eftirlit fyrstu árin. Komið var í eftirlitsheimsókn í hvert skipti sem hann var að framleiða sem var í 3 -4 daga í senn og magnið lítið. Auk þess var salmonellusýni tekið í hvert skipti ( sem hann þurfti að greiða fyrir) , þrátt fyrir að allt hafi verið í góðu lagi í fyrri heimsóknum, hann aðeins fengið minni háttar athugasemdir og öll sýnin fram að því verið neikvæð. Eins voru áherslur ólíkar milli eftirlitsaðila og skortur á samræmingu og skipulagi. Eftir að hafa gert ítrekaðar athugasemdir um þetta óhóflega eftirlit og kostnað var nýlega dregið úr því. Letjandi og dregur ú r nýsköp un Það kemur því ekki á óvart að margir matvælaframleiðendur hafi gefist upp og hætt, hikað við að útvíkka starfsemi sína eða hreinlega ekki treyst sér til að fara út í matvælaframleiðslu. Jafnvel sjálfur Fiskikóngurinn er nú búinn að gefast upp af þessum ástæðum, eins og hann greindi frá í nýlegu útvarpsviðtali. Það að svona íþyngjandi kröfur og kostnaður sé settur á smáframleiðendur sem oft eru í árstíðabundinni starfsemi og eru að leggja sig alla fram um að framleiða einstakar, hágæða afurðir, oft samhliða fullu starfi, er með öllu ólíðandi. Maður láir þeim ekki sem eru í þessari árstíðabundnu villibráðaframleiðslu að hika við að sækja um leyfi þegar þeir heyra sögur eins og þessa. Það er kannski það sem eftirlitskerfið helst vill. Sliga þá sem taka skrefið upp á yfirborðið og láta sem það viti ekki af þeim sem eru á svarta markaðinum. Við biðlum til matvælaráðherra, sem er æðsti yfirmaður matvælaeftirlitskerfisins, að finna leiðir til að tryggja að svona vinnubrögð fái ekki að viðgangast lengur. O ddný Anna B jörnsdóttir framkvæmdastjóri. Meira um báknið O ddný A nna B jö rnsdóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.