Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 74
74 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
LESENDARÝNI
Hvernig verður íslenskur
landbúnaður 2040?
M ér datt í hug að skella í smá
grein þar sem ég set á mig
spámannsgleraugun og horfi til
hvernig ég sé landbúnað hérlendis
þróast fram til ársins 2040.
Ég mun tak-
marka mig við
umfjöllun um
nautgriparækt,
sauðf já r rækt
og jarðrækt en
mjög spennandi
tímar eru fram
undan í öðrum
búgreinum líka
og við munum
einnig sjá nýjar búgreinar spretta
fram eins og t.d. skordýrarækt, sem
mun byggja á endurnýtingu lífræns
hráefnis.
Þessi grein byggir ekki á djúpum
vísindum og ætti því ekki að takast
of alvarlega en getur kannski verið
ágætis innlegg inn í hugrenningar
núverandi og verðandi bænda um
hvernig þeir sjá sinn rekstur fyrir
sér árið 2040.
N autgriparæ kt
Ef framhald verður á þróun
undanfarinna ára og ekki gripið til
sérstakra aðgerða til að draga úr
stækkun mjólkurkúabúa má gera
ráð fyrir að þeim muni halda áfram
að fækka hratt og verða komin niður
í kringum 150 framleiðslueiningar
árið 2040 og stór hluti þeirra í
meirihlutaeigu hagsmunaaðila og
fjárfesta.
Ef við gerum ráð fyrir svipaðri
fjölgun landsmanna og ferða-
manna á komandi árum og svipuðu
neyslumynstri má gera ráð fyrir
að heildarframleiðsla mjólkur-
afurða verði í kringum 200 milljón
lítra. Kyngreint sæði ásamt
erfðamengisúrvali og flutningi
fósturvísa mun gerbreyta ræktunar-
starfinu og búum með holdagripa-
hjarðir mun fækka þar sem hrein-
ræktaðir holdagripir sem koma
frá mjólkurframleiðslunni munu
auka mjög mikið hagkvæmni
kjötframleiðslunnar.
Miklar breytingar verða í fóðrun
og umhirðu gripanna þar sem
greining á ástandi gripanna með
gervigreind mun skipa stórt hlutverk
og alls konar sjálfvirkni við fóðrun
og umhirðu gripanna mun aukast.
T urnar munu koma sterkir inn sem
fóðurgeymslur enda passa þeir mun
betur inn í sjálfvirknipakkann en
gryfjur og rúllur. Einhverjir bændur
hefja notkun á þurrheyshlöðum með
upphituðu súgþurrkunarlofti sem lið
í minnkun metanlosunar búanna og
framleiðslu mjólkur með sérstaka
eiginleika til ostagerðar.
Nýting mykju mun snarbatna og
það verður algengt að köfnunarefni
og endurunnum fosfór úr seyru
verði blandað í mykjuna í stað
notkunar á tilbúinum áburði. Stór
hluti styrkja til búgreinarinnar mun
byggja á dýravelferð og lágmörkun
umhverfisspors framleiðslunnar.
Jar ðræ kt
Landverð mun hækka mjög mikið
vegna mikillar eftirspurnar bæði
innlendra og erlendra fjárfesta sem
munu sækjast eftir hlunnindum og
möguleikum á kolefnisbindingu
í t.d. skógrækt og uppgræðslu
illa gróins lands. Bylting mun
eiga sér stað í ræktun og umhirðu
ræktarlands samfara aukinni
áherslu á hámörkun uppskeru
með sem minnstu umhverfisspori.
Drenlagnir munu koma sterkar inn
og hefðbundnum opnum skurðum
verður lokað í stórum stíl sem mun
auka hagkvæmni við alla vinnslu
landsins mikið. G runnar vatnsrásir
munu koma í stað opinna skurða á
flatlendi þar sem þörf er á að koma
yfirborðsvatni af ræktarlandi.
Notkun á tilbúnum áburði eins
og við þekkjum hann í dag verður
mjög lítil en í staðinn verður mikil
áhersla á notkun annarra lífrænna
hráefna sem áburðargjafa eins
og t.d. húsdýraáburðar, seyru og
fiskimykju.
Köfnunarefni sem unnið er úr
andrúmslofti verður notað til að
hækka N hlutfall lífrænu hráefnanna
og farið verður að nota sérvirkar
örveruflórur til að auka umsetningu
jarðvegs og niðurbrot næringarefna
og losun fastbundinna efna eins og
t.d. fosfórs úr jarðvegi.
Akuryrkja mun aukast mikið og
verður áherslan þar bæði á aukna
kornrækt en ekki síður á aukna
próteinframleiðslu til að mæta
núverandi þörf en ekki síður þeirri
gríðarlegu viðbótarþörf sem skapast
með þeirri margföldun sem mun eiga
sér stað í umsvifum fiskeldis.
Ræktun á fóðurrófum/ næpum
verður umtalsverð til að mæta
innlendri fóðurþörf og ræktun á
hampi, líni, burnirót, kúmeni og
fleiri plöntum sem geyma verðmæt
heilsubætandi efni mun skapa góðar
tekjur fyrir klára og útsjónarsama
ræktendur.
Sala kolefniseininga verður
orðin stór hluti af innkomu margra
bænda og stór hluti núverandi
eyðimarka okkar á láglendi
verður komin í umbreytingu
yfir í framtíðarræktarland þar
sem umsjónarmenn landsins
fá greitt fyrir kolefnisbindingu
landsins og uppskera um leið
próteinríkan plöntumassa sem fer
í graspróteinframleiðslu og síðar
í lífkolagerð – en lífkolin verða
síðan notuð við landgræðslu þar
sem þau eru fullkomin til að bæta
rakaheldni í rýrum jarðvegi og
geyma næringarefni.
S auðfjárræ kt
Fjárbændur munu á þessum
tímapunkti hafa gjörbreytt sinni
nálgun og munu leggja áherslu
á sambærilega nálgun og bændur
gerðu í Kanada þegar sambærilegt
kerfi og viðgengst hér hafði siglt í
strand.
Markaðssetning lambakjötsins
mun byggja á áherslu á að
lambakjötið sé í sama flokki og
villibráð og stærstur hluti kjötsins
verður seldur ferskur bæði innan-
lands og erlendis og skilaverð
verður c a tvöfalt hærra en það er
í dag á núvirði. Stór hluti sauðfjár
verður alinn á láglendi og margir
bændur stunda framleiðslu með
þremur sauðburðum á hverjum
2 árum. Búskapurinn mun áfram
verða samsettur af litlum einingum
með tugi og hundruð fjár þar sem
aðaltekjur munu koma annars staðar
frá en stærri einingar með þúsundum
fjár munu skapa möguleika á góðri
afkomu án utanaðkomandi tekna.
F innbogi M agnússon
spámaður.
F innb ogi
M agnússon.
Landbúnaður – úr vörn í sókn
R íkisstjórnin samþykkti
föstudaginn áttunda desember
tillögur matvælaráðherra,
fjármála- og efnahagsráðherra
og undirritaðs um aðgerðir til
stuðnings þeim bændum sem
eiga í fjárhagserfiðleikum vegna
efnahagsástandsins.
Þet ta e ru
m i k i l v æ g a r
aðgerðir sem
leggur meðal
annars áherslu
á nýliðun og
kynslóðaskipti
með aðstoð við
yngri bændur.
Þessar aðgerðir
og frumvarp að
lögum sem heimilar aukið samstarf
og samruna afurðastöðva í kjöti
koma til með að bæta aðstæður í
einni af grundvallaratvinnugrein
okkar á Íslandi. Það er þó ekki nóg.
Horfa verður til framtíðar og rífa
greinina upp úr þeim hjólförum
sem hún hefur setið í, hjólförum
sem eru mótuð af afskiptaleysi og
hugsunarleysi á ákveðnum sviðum
í íslensku samfélagi.
Ég fullyrði að fáar atvinnugreinar
hafa þurft að berjast við jafnmikinn
skort á skilningi og landbúnaður
hefur gert hér á landi. Ef við lítum
út fyrir landsteinana, hvort heldur
er til annarra Norðurlanda eða ríkja
Evrópusambandsins, þá virðist ríkja
almennari skilningur á mikilvægi
þess að styðja þurfi við landbúnað,
duglega, til að styðja við blómlegt
atvinnulíf og byggðir. Að ekki sé
talað um mikilvægi fæðuöryggis
sem hér á eyjunni Íslandi er
augljóslega gríðarlegt hagsmunamál
allra landsmanna.
F æ ðu- og matv æ laöry ggi
Ég tel að við getum lært mikið
af Noregi sem er að mörgu leyti
á svipuðum stað og við hvað
varðar alþjóðlegar skuldbindingar,
dreifða byggð og norðlæga
breiddargráðu. Hægt er að skipta
umgjörð landbúnaðarins upp í
fjögur svið. Fyrst má telja fæðu-
og matvælaöryggi og er aukin
matvælaframleiðsla augljóst
hagsmunamál þegar kemur að þeim
þáttum. Við hér á Íslandi búum að
því að til dæmis notkun sýklalyfja
er hverfandi og á svipuðum stað
og Noregur en löndin tvö eru
einstök í alþjóðlegu samhengi.
Heimurinn getur lært af íslenskum
landbúnaði hvað þetta varðar og
einnig almenna dýravernd þar sem
verksmiðjubúskapur í landbúnaði er
afar sjaldgæfur.
L andbú naður um land al lt
Mikilvægt er að tryggja gott
ræktunarland. Nú stendur yfir vinna
við að skilgreina ræktunarland,
nokkuð sem er mikilvægt til að
standa vörð um vax tarmöguleika
landbúnaðar. Við þurfum einnig að
styðja og hvetja til landbúnaðar-
framleiðslu og búskapar.
Í þessu þarf pólitísk stefna að
taka mið af tækifærum mismunandi
byggðarlaga og þeirri mismunun
sem verður til vegna landfræðilegra
þátta og fjarlægða.
A ukin v erðmæ tasköpun
Búskapur er ekki eyland. Það er ekki
hægt að ætlast til þess að fólk leggi
allt sitt að veði til þess að stofna bú
meðan ekki er búið nægilega vel
að greininni. Ekki er langt síðan
fyrrverandi landbúnaðarráðherra
talaði um sauðfjárrækt sem lífsstíl.
Þau ummæli dæma sig auðvitað
sjálf. Það er þó ljóst að ef ekki verður
horft til framtíðar og lagður grunnur
að betri samkeppnishæfni þá verður
sauðfjárbúskapur dýr lífsstíll, þar
sem fólk leggur allt að veði fyrir
ánægjuna af því að rækta sauðfé
og viðhalda aldalangri menningu
íslenskra bænda. Ég óttast að þeim
fari fækkandi sem eru reiðubúnir að
fórna tekjum sínum og lífsgæðum
fyrir það að geta verið bóndi. Það má
ekki gleymast að það að vera bóndi
er atvinna, alveg eins og heildsali
eða bankastarfsmaður. Sömu gildi
ríkja í sveitum varðandi það að fólk
vill skapa áhyggjulausa framtíð
og lífsgæði fyrir börnin sín. Þess
vegna er mikilvægt að virðiskeðjan
sé samkeppnishæf og búin öflugar
einingar. Einnig þarf að hlúa vel að
þekkingu og hæfni í landbúnaði.
S jálfbæ r landbú naður
Bændur hafa frá landnámi verið
vörslumenn landsins. Það hefur verið
þeirra hagur að búa vel að bústofni
sínum og landi. Í þeim áskorunum
sem uppi eru í loftslagsmálum er
mikilvægt að landbúnaðurinn sé
hluti af lausninni en ekki sé reynt að
gera hann að hluta af vandamálinu.
Við höfum ákveðna möguleika til
að styðja við landbúnað og bændur
í þeirri vinnu sem þarf að ráðast í til
að berjast gegn loftslagsbreytingum
og einnig til að verjast áhrifum
þeirra.
U ppfæ rsla á tollum
Flestar þjóðir líta á það sem skyldu
sína að styðja við landbúnað
í löndum sínum með tollum á
innfluttar landbúnaðarvörur. Hér
á landi þurfum við að uppfæra
þær tölur sem eru til viðmiðunar í
tollskrám. Þá er einnig möguleiki
að nýta þær heimildir sem til dæmis
Noregur gerir og leggja á sérstakt
verðjöfnunargjald á innfluttar
landbúnaðarvörur til að vernda
íslenska framleiðslu – og bæta kjör
bænda á Íslandi.
Kæri lesandi. Jólahátíðin er að
ganga í garð. Þá munu vandaðar
íslenskar landbúnaðarafurðir vera
bornar á borð til að fagna fæðingu
frelsarans. Matur er mikilvægur
hluti af hátíðinni. Þá er mikilvægt
að við munum hvaðan gott kemur.
G leðilega hátíð.
S igurður I ngi Jóh annsson,
formaður F ramsóknar og
innviðaráðherra.
S igurður I ngi
J óhannsson.
Komið er að skuldadögum
Þ að er komið að skuldadögum
í orkumálum. Þ að er fyrir-
sjáanlegur orkuskortur í landinu
og fyrir Alþingi liggur fyrir
neyðarfrumvarp sem snýst um
að bjarga vetrinum.
Frumvarpið
felur í sér skamm-
tímalausn til
þess að tryggja
orku til heimila
og lítilla og
meðalstórra fyrir-
tækja en allir eru
sammála um að
slík trygging
sé nauðsynleg.
Staðan sem við horfumst í augu við
í orkumálum er heimagerður vandi.
Við höfum ekkert gert sem heitið
getur í grænorkumálum í 15 til 20
ár, bæði hvað varðar rafmagn og
heitt vatn.
Ég hef verið að benda á þetta í
tvö ár og það er kannski það eina
jákvæða í stöðunni að nú sé fólk
farið að hlusta.
Ég er gjarnan spurður hvenær og
hvort ég ætli ekki að virkja meira.
Ég mun ekkert virkja, það eru
orkufyrirtækin sem reisa og reka
virkjanir. Það má öllum vera ljóst að
við höfum stigið stór skref í því sem
snýr að okkur. Við rufum níu ára
pólitíska kyrrstöðu með samþykkt
Rammaáætlunar.
Stærsta einföldunarmál sögunnar
í orkumálum var samþykkt með
aflaukningarfrumvarpinu sem
felur í sér að hægt er að fara í
tæknibreytingar á þeim virkjunum
sem þegar eru til staðar með
það að markmiði að ná út úr
þeim meira afli, án þess að þær
breytingar þurfi að fara í gegnum
Rammaáætlun. Við samþykktum
orkusparnaðarfrumvarp, gjarnan
kennt við varmadælur sem tryggir
betri orkunýtni. Við höfum sett
af stað stærsta jarðhitaleitarátak
aldarinnar og það fyrsta í einn
og hálfan áratug, sem er löngu
tímabært. Þrjú frumvörp um
sameiningu átta stofnana í þrjár,
á málefnasviði umhverfis-, orku-
og loftslagsráðuneytisins, hafa
verið samþykkt í ríkisstjórn. Við
höfum unnið að einföldun leyfis-
veitingaferla varðandi græna
orkuöflun. Í vikunni verða kynntar
hugmyndir um nýtt einfaldað
fyrirkomulag um vindorku.
Niðurstaða starfshóps um
skattalegt umhverfi orkuvinnslu
mun væntanlega liggja fyrir á næstu
dögum en hópnum er m.a. ætlað að
kanna leiðir til að ávinningur vegna
auðlindanýtingar skili sér í ríkari
mæli til nærsamfélaga.
Neyðarfrumvarpið sem nú
liggur fyrir Alþingi tekur á skamm-
tímavandanum. Við erum löngu
byrjuð að taka stór skref til þess
að finna lausnir til lengri tíma.
Nú skiptir máli að orkufyrirtækin,
þingið og þjóðin standi saman um
öflun grænnar orku í landinu.
G uðlaugur Þ ór Þ órðarson
umhverfis-, orku- og
loftslagsráðherra.
G uðlaugur Þ ór
Þ órðarson.
Bændablaðið kemur næst út
11. janúar 2024
Mynd / Ú r safni B æn dab laðsins