Bændablaðið - 14.12.2023, Side 78
78 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Þ essi orð rifjuðust upp fyrir
mér þegar ég las greinargerð
hóps ráðuneytisstjóra um
fjárhagsvanda landbúnaðar.
A ð d r a g -
andinn er sá
að árið 2016
strunsaði ég af
Búnaðarþingi
eftir að hafa
flutt mína ræðu
og m.a. spurt
þingsal „Er ég
ekki bóndi? “
Í þeirri ræðu gagnrýndi ég
harðlega þau hrossakaup sem
þáverandi forysta BÍ gerði í
aðdraganda búvörusamninga 2016.
Fyrir þá sem vilja kynna sér málið
betur má nálgast þá ræðu á bbl.
is undir fyrirsögninni „Fulltrúi
svínabænda gekk út af fundi
Búnaðarþings.“ Fyrir þá sem ekki
hafa tíma til að lesa ræðuna kemur
m.a. fram í henni að þáverandi
forysta BÍ gaf eftir tollasamning við
ESB til að fá 10 ára búvörusaming.
En aftur að greinargerð
starfshópsins. Mér dettur helst
í hug orðið rörsýn þegar ég er
búinn að kynna mér innihaldið.
Hvernig hægt er að fjalla um
stöðu íslensks landbúnaðar út frá
svona þröngu sjónarhorni er mér
algjörlega óskiljanlegt. Það er nú
einu sinni þannig að hvíti geirinn
( kjúklingur og svín) er með um
57% markaðshlutdeild á seldu kjöti
innanlands síðustu 12 mánuði skv.
mælaborði landbúnaðarins. Hvað
með eggjabændur? Orðið egg
kemur einu sinni fyrir í skýrslunni
sem telur þó alls 5.124 orð. Hver
er svo niðurstaðan, jú, enn einn
plásturinn á opið beinbrot. Það er
þó vissulega tilefni til að gleðjast yfir
því að stjórnvöld og skýrsluhöfundar
virðast vera að gera sér grein fyrir að
núverandi umgjörð um starfsskilyrði
landbúnaðarins gengur hreinlega
ekki upp og nauðsynlegt er að ráðast
í kerfisbreytingar.
Ég veit að maður á ekki að
vera neikvæður, sérstaklega ekki
á aðventunni sem er tími ljóss og
friðar. Ég spyr mig samt oft að því
hversu illa þarf að vera komið fyrir
íslenskum landbúnaði til að ráðist
verði að rót vandans? Vissulega
kemur margt til sem hefur skert
afkomu bænda síðustu misserin
eins og hækkandi vaxt astig, miklar
fjárfestingar vegna bætts aðbúnaðar,
heimsfaraldur, stríðsrekstur í
Ú kraínu o.s.frv. Stóra kýlið sem
enginn virðist samt þora að stinga
á er tollverndin og hvernig hún
hefur verið að þróast. Samningar
sem voru gerðir við ESB 2007 og
2015 ( tók gildi 2018) ásamt því
að magntollar hafi verið festir í
sömu krónutölu allt frá árinu 1995
hafa orðið til þess að tollverndin
virkar í besta falli mjög illa og
er stöðugt að rýrna að verðgildi.
Hvaða afleiðingar hefur þetta haft
í för með sér síðasta áratuginn eða
svo? Jú, innflutningur á kjöti var
nánast enginn fyrir 12-13 árum en
nú er innflutt svína-, kjúklinga- og
nautakjöt komið með um fjórðungs
markaðshlutdeild innanlands.
T il að bregðast við harðnandi
samkeppni við innflutning hefur
búum fækkað og einingar stækkað.
Þar með erum við í hvíta geiranum
að mati sjálfskipaðra sérfræðinga
ekki bændur lengur heldur
verksmiðjuframleiðendur. Því finnst
sumum í lagi að tollverndin haldi
áfram að þróast eins og verið hefur
síðustu misserin. Hverjar eru svo
afleiðingarnar? Enn frekari fækkun
búa og neytendur velja meira af
innfluttu kjöti sem aftur minnkar
eftirspurn á Ö LLU innlendu kjöti.
Allt er þetta gert í þágu neytenda
til að auka „frelsi“ á markaði. Er
mögulegt að frelsið verði svo mikið
að innlenda framleiðslan hopi alfarið
fyrir innfluttu kjöti? Hverju myndi
sú staða skila í pyngju neytenda til
lengri tíma litið?
Ég ætla að lokum að gera tilraun
til að lýsa íslensku landbúnaðarkerfi
í fáum setningum eins og ég upplifi
það. Stjórnvöld vilja styðja við
„hefðbundinn“ landbúnað – lesist
ær og kýr – en er nokk sama um
hvíta geirann. Þannig eru gerðir
búvörusamningar sem ganga
út á að styrkja „hefðbundnu“
greinarnar. Á sama tíma er slakað
á tollverndinni af því hvíti geirinn
má missa sín. Við hagræðum í
hvíta geiranum til að bregðast við
aukinni samkeppni. Neytendur velja
innflutt kjöt í síauknum mæli sem
bitnar á Ö LLU M bændum, líka
sauðfjár- og kúabændum. T il að
redda bráðavandanum eru skipaðar
nefndir og í framhaldinu greiddar
sprettgreiðslur og annað slíkt með
nokkuð reglulegu millibili.
Er ekki orðið tímabært að ráðast
að rót vandans?
Fyrir ykkur sem starfið fyrir
hönd bænda við endurskoðun á
búvörusamningum. Ekki láta segja
ykkur hvað má fjalla um og hvað má
EKKI fjalla um. Búvörusamningar
án skýrrar stefnu og framtíðarsýnar
í tollvernd eru álíka nytsamlegir og
salerni án skeinipappírs.
G óðar stundir.
I ngv i S tefánsson, formaður
búgreinadeildar svínabænda.
I nvgi S tefá nsson.
Er ég ekki bóndi?
Þ að er ýmislegt sem tengir saman
landbúnað og jól, fleira en það
að frelsari vor J esús K ristur
var lagður í jötu í fjárhúsum við
fæðingu.
Í minningunni
hjá mér er margt
annað sem tengir
saman landbúnað
og jól. Í sveitinni
þar sem ég var
uppalin var
jólamessa kl.
16, en ekki kl.
18 eins og víðast
hvar, til þess að
bændur gætu gengið til gegninga að
lokinni messu.
Bóndinn verður að ganga í sín
daglegu verk hvað sem dagatalið
og klukkan segir. Menn reyna þó
að hagræða störfum þannig að hægt
sé að njóta hátíðanna.
Á jólum hefur ávallt tíðkast að
gera sérstaklega vel við sig í mat og
drykk. Þá var einnig hugað að því
að allar skepnur fengju sem bestan
viðurgerning.
Mér finnst einnig að ákveðin
matarlykt fylgi jólunum, áður fyrr
var það sérstaklega af hangikjöti
og oft vegna matreiðslu á rjúpum,
nú síðar meir af hamborgarhrygg
og purusteik og síðan kalkún
og nautakjöt sem tengjast oft
áramótunum. Hér áður fyrr var
ekki mikið verið með grænmeti
sem meðlæti. Eplalyktin minnir
ekki lengur á jólin en „ilmurinn
úr eldhúsinu er svo lokkandi“
sem fyrr og minnir okkur á jólin
og gerir okkur eftirvæntingarfull.
Þannig eru flestar okkar
landbúnaðarvörur beint og óbeint
tengdar jólunum. Ekki má gleyma
rjóma og eggjum sem sérstaklega er
mikið notað af á þessum tíma í t.d.
kökubakstur og ísgerð. Jafnframt
eru bændur í dag farnir að rækta í
auknum mæli greni og furu sem
jólatré sem eru síðan upplýst með
íslenskri sjálfbærri orku.
Varðandi eggjaframleiðslu,
eða þá grein sem ég er í forsvari
fyrir, er þetta helst að segja að
framleiðslan gekk almennt vel
á árinu og markaðurinn virðist
vera í góðu jafnvægi. Heilbrigði
varphænsna er gott, þökk sé hversu
vel er staðið að uppeldi og ræktun
stofnsins.
Þá fagna ég því að eggja-
framleiðendur hafa nú lokið því
verkefni að hafa alla varpfulga
í lausagöngu. En um var að
ræða umfangsmiklar breytingar
á regluverki um aðbúnað og
hollustuhætti sem Matvælastofnun
hefur eftirlit með. Sú framkvæmd
krafðist verulegra framkvæmda
og var mjög kostnaðarsöm.
Eggjaframleiðsla, eins og flest allar
búgreinar í landbúnaðinum, eiga
nú í verulegum rekstrarerfiðleikum
vegna hárra vax ta ásamt miklum
hækkunum á öllum aðföngum.
Vonandi ber okkar ráðamönnum
gæfa til þess að skapa bændum það
starfsumhverfi sem nauðsynlegt er
með tollvernd og öðrum aðgerðum
þannig að við getum um ókomna tíð
gætt okkur á íslenskum gæðamat á
jólum sem og aðra daga.
Í tilefni jólaföstunnar læt ég
þessa fallegu vísu fylgja með.
J ólafastan bjartan ber
boðskap helgra tíða
fögnuð ríkan færir þér
frið og alúð blíða
( I ngólfur Ó mar Á rmannsson)
H alldór a Kristín H auksdót tir,
formaður búgreinadeildar
eggjabænda.
H alldóra K ristín
H auksdóttir.
Landbúnaður og jól
Á hugi á geitum og afurðum þeirra
eykst með hverju ári. S punnin
geitafiða, hágæða mjólkur-
eða kjötafurðir seljast vel og
eftirspurn oftast mikið meiri en
framboð.
Einnig hefur
þróast þó nokkur
ferðaþjónusta í
kringum geitina.
Enda geitin
s k e m m t i l e g
og vinaleg og
verðug til að
auka hróður
Íslands erlendis.
Aðdáunarverður
er óþrjótandi áhugi framtaksmikilla
einstaklinga um allt land með sínar
litlu hjarðir og vinnuna að baki við
alla ræktunina og afurðirnar.
„G eitin er kýr fátæka mannsins“,
er haft í flimtingum og líklegast rétt ef
leitað er á tekjulistum en sé litið yfir
ánægjuvogina má sjá geitabændur
svífa hátt um á glaðlegu skýi. Ég
fullyrði að allir geitabændur haldi
geitur sér til skemmtunar með það að
markmiði að viðhalda viðkvæmum
stofninum á lífi. T ekjur og hagnaður
eiga samt að fylgja með eins og í
öllum öðrum búgreinum.
Ef ekki væri fyrir hugsjón og
þrautseigju dugandi aðila værum
við ekki með íslensku geitina á
lífi því margt hefur dunið á. En nú
nálgumst við þann stað að hægt sé
að tala um sjálfbæra fjölgun geita
og bænda en betur má ef duga skal.
T il að grundvöllur sé fyrir að hjarðir
stækki, bændum fjölgi og hvati til
meiri nýtingu afurða, verður að
vera fjölþættur stuðningur í boði.
Fjármagn, ráðgjöf, pláss á markaði
og við umræðuborðið.
G eitabændur fagna hverju
nýfæddu kiði, hverjum mjólkurlítra,
afurðum á markaði og framþróun
en þó sérstaklega nýjum bændum.
Þó þýðir það að opinberar greiðslur
til þeirra minnki umtalsvert ár
frá ári. G leðin lifir ekki lengi ef
varnarbaráttan er endalaus og án sigra.
Það er því dapurt fyrir greinina þegar
umtalsverð hækkun er á nauðsynlegu
stílabókinni, eftirlitsaðilinn gleymir
að kíkja við eða að afurðastöðvar
bjóði sláturgripum einungis upp á
dagsparta til að komast að í vinnslu.
Þannig virðist stundum enn þá
litið niður á eða framhjá greininni
og er það mjög miður og ætti að vera
markmið allra aðila að breyta því til
batnaðar.
Við sem þjóð höfum tekið á
okkur skuldbindingar við að vernda
íslensku geitina sem við verðum þá
einnig að standa við og þétt að baki.
Því má það ekki enda að stórum
hluta á ábyrgð geitabænda með sínu
takmarkaða lausafé að halda lífi í
geitastofninum. Stofninn er enn þá
í bráðri útrýmingarhættu og ekki má
mikið út af bregða svo illa fari aftur.
Hjálpum bændum við ræktun og
í að koma afurðum sínum á markað
og virkjum þannig betur hlutverk
geitarinnar sem nytjadýr í matar- og
menningarflóru landsins.
Vel gerðir ostar, grafinn vöðvi eða
hægeldað geitalæri með ora grænum
og brúnni er herramanns matur sem
hentar við hvaða tilefni sem er. Því er
nauðsynlegt að við stöndum saman
í hvívetna þegar kemur að geitinni
og sláum hvergi af. T il geitabænda
segi ég, takk kærlega fyrir ykkar
óeigingjarna starf við að viðhalda
stofni af þrautseigju og hugsjón í
erfiðu umhverfi. Höldum áfram og
sýnum saman hvað í okkur býr.
Með hátíðarkveðju óska ég að
við sýnum geitabændum hvers
kyns stuðning og hjálpumst að við
að halda lífi í geitinni og sveitinni
á nýju ári.
B ry njar Þ ór V igfússon,
formaður búgreinadeildar
geitabænda B Í og
formaður G eitfjárræktar-
félags Íslands
Gleymum
ekki geitinni
B rynjar Þ ór
Vigfússon.
baendaged.bondi.is
Hugsaðu um þig - Hugsaðu um
geðheilsuna þína!
Geðheilsa bænda er mikilvæg.
Deildu þínum hugsunum og reynslu, leitaðu ráðgjafar
og stuðnings og taktu tíma fyrir þig.
baendaged.bondi.is
E n nú ná lgumst við þann stað að hægt sé að tala um sjá lfb æra fjö lgun geita
og b ænda en b etur má ef duga skal. Mynd / B Þ V
Mynd / Ú r safni B æn dab laðsins