Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 80
80 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Eins og siður er kastaði völva Bændablaðsins beinum sínum og opnaði fyrir flæði þess
kynngikrafts sem árið 2024 ber í skauti sér. Hæst ber þar sú geta okkar til þess að framkalla
þann veruleika sem við þráum innra með okkur. Munum að við höfum – með þeim hugsunum
og mætti sem töfrað geta allt – alla burði til þess að veita óskum okkar kjölfestu.
T unglstaðan í ársbyrjun er minnkandi og það er ekki fyrr en þann 25. janúar sem tunglið er
í fullu veldi, svokallaður úlfamáni. Veitir það þeim sem vilja, nokkurn tíma til að líta í eigin
barm og hefja vegferð sína í lok hins fyrsta mánaðar með þöglum styrk úlfsins.
Leysum úr læðingi þá töfra sem okkur ber og löðum að okkur þá veröld sem við viljum.
Völvuspá Bændablaðsins:
Kraftur komandi árs
Stöðugleiki í tilfinningamálum verður sérstaklega áberandi á nýju ári. Vatnsberinn hefur ekki alltaf tekið
skynsamlegustu ákvarðanirnar er kemur að ástinni og getur verið heldur fljótfær sem kemur honum illa.
Hann mun leita undir yfirborðið eins og vatnsmerkjum sæmir og með vorinu finna þá manneskju sem
honum er ætlað. Vatnsberinn fær ótal tækifæri til að víkka út sjóndeildarhringinn yfir árið, þá helst innra með sér, enda kemur
það ferðalag sífellt á óvart. Ferðalög utan landsteinanna eru jafn mikilvæg og ferðir innan hugans og ætti vatnsberinn að nýta
hvert tækifæri til að opna nýjar víddir í líf sitt. Hann þarf þó að gæta þess að halda geðheilsunni í jafnvægi og vera duglegur
að leita lausna ef vandamál koma upp. Vera óhræddur við að deila sinni líðan og hafa í huga að þannig gengur best að vinna úr
hlutunum. Vatnsberinn er heillandi og heiðarlegt merki að upplagi og hugljúfi sinnar nánustu.
Vatnsberi
Fiskarnir munu upplifa ríka þörf fyrir aukna virðingu þetta árið en þeir hafa gjarnan átt það til að upplifa að
þeir tali gegn tómum eyrum þótt þeim liggi mikið á hjarta. Ó vægin sjálfsskoðun er mörgum nauðsynleg og rétt
er að taka skrefið í þá áttina þó óþægileg sé. Fisknum er ráðlagt að hægja á sér og velta fyrir sér hvað skiptir
hann raunverulega máli, hvað veitir honum hamingju og frelsi. Árið mun færa fisknum dýpri sjálfsþekkingu og
andlegan vöx t í bland við skemmtilegar áskoranir. Nokkur skref fyrir utan þægindarammann eru jákvæð og æskilegt er að setja
sér markmið sem hægt er að ná. Fjölskyldan er fisknum mikilvæg og þarf hann að rækta sambönd sín þar líkt og annars staðar
þó auðvelt sé að gleyma þeim sem standa manni næst. Fjárhagslegur stöðugleiki einkennir stjörnumerki fisksins fyrstu mánuði
ársins og getur hann farið vax andi með árinu ef vel er að gætt.
Fiskur
Árið 2024 verður ár fullt orku og frumkvæðis. Sköpunargáfan eykst til muna og því fullkomið tækifæri til
að hefja ný verkefni, áhugamál eða jafnvel að hefja nám. Hrúturinn hefur tekið út tilfinningalegan þroska
síðastliðið ár sem snýr að honum sjálfum og hvernig hann kýs að vinna með þau sambönd sem að honum
standa. Aukið hugrekki veitir honum tækifæri til þess að styrkja tengslanetin og endurnýja kynni við gamla vini auk þess sem
hrúturinn þarf að vera opnari fyrir samskiptum og takast á við þær áskoranir sem rísa, fyrr en síðar. Ferðalög eru í kortunum og
ýmis verkefni, bæði andleg og annars eðlis þeim tengd. Ástin er á rólegu nótunum og ekki er gæfulegt að hrófla við neinu þar
heldur njóta þess sem veitir gleði og öryggi. Áframhaldandi áhersla á heilsufarið er í forgrunni, þá helst með hreyfingu hvort
sem er að takast á við andlega líðan eða líkamlega hreysti.
Hrútur
Árið mun bera með sér breytingar, bæði í starfi og einkalífi, en til þess að það gangi eftir þarf nautið að vera
sveigjanlegt og opið fyrir nýjum tækifærum. Fjárhagslegur stöðugleiki verður lykillinn að árangri og fyrstu
mánuði ársins mun nautinu bjóðast verkefni sem glæða sköpunargáfu þess og um leið auka flæði peninga.
Nautið hefur staðið í flutningum og rúmruski síðastliðið ár og getur glatt sig við það að nú er tími rólegheita sem ætti að nýta
til endurnýjunar á þeim hliðum sjálfs þess, hvort sem er líkama eða sálar. Rólegt hefur verið í ástarmálum nautsins, einhverjar
glæður lifa í óreyndri ást og er sjálfsagt að blása í þær á næstu mánuðum. Eldri naut eru þó afar staðföst og ekki þekkt fyrir að
vera með galgopahátt í ástarmálunum svo gæta þarf að seinagangur hamli ekki glæðum að verða að báli. Ferðalög eru í kortunum
á fyrsta ársfjórðungi nýs árs þar sem nautið ætti að styrkja tengslanet sitt með tilliti til starfa í framtíðinni.
Naut
Félagsleg samskipti nýs árs verða í brennidepli hjá tvíburanum sem aldrei fyrr, auk þess sem öll tengsl munu
blómstra. Ný og gömul sambönd þarf þó að rækta og leysa skyldi úr öllum þeim samskiptaörðugleikum sem
hafa hlaðist upp síðastliðin misseri. T víburinn kann illa við deilumál, en slík óleyst geta lagst á taugakerfi þeirra
með óskemmtilegum afleiðingum. Haldast andleg líðan og líkamleg þétt í hendur, ekki síst hjá tvíburanum sem
stundum fer allan tilfinningarússíbanann á tveimur klukkutímum og því nauðsynlegt að þar séu öll mál á hreinu. Starfsvettvangurinn
er jákvæður enda tvíburinn hamhleypa til verka ef svo ber undir, lausnamiðaður og vinsæll, en þessir eiginleikar gefa honum byr
með ný tækifæri í sjónmáli. Að vera opinn fyrir nýjungum svo og skoðunum annarra getur opnað fyrir áhugaverða möguleika
síðla sumars sem munu breyta lífssýn tvíburans sem um munar. Sveigjanleiki og listin að hlusta eru í forgrunni á árinu auk þess
sem tvíburinn ætti að rækta innri ró.
Tvíburi
Árið 2024 verður tilfinningalega sveiflukennt og þarf krabbinn að finna jafnvægi milli einkalífs og vinnu.
Eitthvað verður um að sambönd gliðni og þá er að vinna í málunum og finna lausn sem hentar öllum. Þetta er
þó ekki endilega neikvæð upplifun heldur gætu þarna opnast skemmtilegir möguleikar á opnara líferni. Heilsa
og vellíðan verða mikilvæg og gæta þarf þess að að stoppa og anda djúpt við og við. Ástin er í kortunum og þá helst virðist sem
máltækið „Lengi lifir í gömlum glæðum“ eigi vel við. Krabbar eiga að vera óhræddir við að stíga út fyrir þægindahringinn og
njóta þess að upplifa allt sem þeir þrá, enda lífið stutt. Að vera opinskár um tilfinningar sínar og opinn fyrir nýjungum getur haft
jákvæð áhrif á krabbann eftir áralangan doða. P ersónulegur þroski kemur í kjölfarið sem mun opna ýmsar dyr og glæða áhuga
á fjölbreyttum sviðum. Starfsframinn siglir lygnan sjó og ekki verður mikið um breytingar fyrr en mögulega rétt í árslok þegar
óvæntar uppákomur rugga einhverjum bátum.
Krabbi