Bændablaðið - 14.12.2023, Page 86
86 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Að þessu sinni tekur B ændablaðið
til kostanna bifreið af gerðinni
L and R over S eries I I I , framleidda
árið 1981. Þ etta eru margreyndir
jeppar sem voru birtingarmynd
íslenskra sveita og hálendisferða
á áratugum áður.
Þegar Land Roverinn er skoðaður
að utan sést að útlitið einkennist
nánast alfarið af skörpum hornum
og flötum hliðum. Mest er þetta
áberandi ef horft er á bílinn frá
hlið, en afturendinn er alveg flatur
og lóðréttur og myndar níutíu gráðu
horn við þakið. Þá gefa kringlótt
framljósin bílnum góðlegt útlit.
Myndirnar tala sínu máli, en ekki
er hægt að segja annað en að þetta
sé afar fögur bifreið.
Þegar inn er komið tekur á móti
manni innrétting sem er óraveg frá
því sem tíðkast hefur í nýjum bílum
undanfarna áratugi. Allt er klætt
með svörtum vínyl og ekkert gert
til að gera útlitið áhugavert. Þetta
er þó merkilega praktískt, enda er
stór og rúmgóð hilla þvert yfir allt
mælaborðið.
Sætisstaðan er ekki upp á marga
fiska, en mjúkur svampurinn bjargar
því sem bjargað er. Þegar bíllinn
var nýr var sjálfsagt hægt að stilla
sessuna eitthvað en bakið er alveg
fast. Ö kumaðurinn þarf því að sitja
í hálfgerðri fósturstellingu með
risastórt stýrishjólið í fanginu.
L ítil truflun
Ekkert útvarp er í þessum bíl eða
önnur afþreying sem leiðir hugann
frá akstursánægjunni. Athyglin getur
því verið óskert við að fylgjast með
umhverfinu, hlusta á vélina eða öll
hin fjölmörgu hljóð sem heyrast víðs
vegar um bílinn.
Nokkrar stillingar eru á
miðstöðinni. Að sumri til er hægt
að opna litla hlera rétt fyrir neðan
framrúðuna, sem hleypa inn fersku
og köldu lofti. Bíllinn þarf þó að
vera á ferð til að blásturinn hafi
einhver áhrif. Síðan er miðstöð sem
nýtir hitann af vélinni til að blása
inn heitu lofti. Á henni eru tvær
stillingar, annars vegar andvari og
hins vegar gola.
Í vatnshríð ræður heiti blásturinn
ekki við að þurrka upp móðuna á
framrúðunni og er því gott að hafa
klút innan handar til að geta séð í
gegnum glerið. Í þessu samhengi
er rétt að benda á rúðuþurrkurnar
sem hafa tvær stillingar: hratt og
geysihratt. Því þarf stöðugt að
slökkva og kveikja á þeim ef ekki
er stórrigning.
A lls konar stangir og takkar
Það er ákveðinn sjarmi yfir tökkunum
og stöngunum í svona gömlum Land
Rover. Vinstra megin við stýrið eru
þrír veltirofar sem stjórna miðstöð
og ljósum og einn snúningsrofi fyrir
rúðuþurrkurnar. Þá er kveikjulásinn
vinstra megin við stýrið, öfugt við
flesta bíla. Við hliðina á honum er
svo sérstakur rofi sem þarf að draga
út til að drepa á bílnum, en það er
ekki hægt að gera með lyklinum.
Hægra megin við stýrið er svo stöng
fyrir stefnuljós og flautu.
Á gólfinu fyrir miðjan bíl eru
svo fimm stangir. Sú stærsta er fyrir
almennar gírskiptingar, sú gula er
til að virkja fjórhjóladrifið og sú
rauða til að setja bílinn í lágadrifið
eða til að aftengja fjórhjóladrifið.
Þá er ein lítil stöng fyrir yfirgírinn,
sem er aukahlutur. Aðalgírarnir
eru fjórir og sá hæsti frekar lágur
og kemur það sér vel að hafa
overdrive úti á þjóðvegum. Síðasta
stöngin er svo fyrir handbremsuna.
Framan við allar þessar stangir er
handolíugjöf sem getur gagnast í
þeim tilfellum sem bíllinn er notaður
við landbúnaðarstörf.
Þessi bifreið er firnastór, enda
um lengri gerð af Land Rover að
ræða. Það er sætispláss fyrir tólf
manns, þó bifreiðin sé ekki skráð
fyrir nema níu. Þá stendur einungis
farþegunum þremur á fremsta bekk
til boða að nýta sér öryggisbelti.
Þeir sem sitja á miðjubekknum geta
ríghaldið í járnrör sem hefur verið
soðið fyrir aftan sætisbök fremsta
bekksins. Ö ftustu sætin eru tveir
bekkir þar sem farþegarnir sitja þvert
á akstursstefnuna.
P rýðilegt geymslupláss er í
bílnum og tekur hann lengi við
farangri. G eymslurýmið er hins
vegar alls ekki praktískt með öll
þessi sæti og lítinn afturhlera. Því
getur verið þrautin þyngri að koma
fyrir stærri hlutum eins og reiðhjóli.
N æ r 100 e ftir dú k og di sk
Að flestu leiyi er gott útsýni úr bílnum,
enda allir gluggabogarnir örþunnir
og sætisstaðan há. Helsti gallinn
er að efri ramminn á framrúðunni
er akkúrat í sjónlínunni. Því þurfa
fullvaxni r ökumenn að sitja hoknir
til að sjá langt fram á veginn. Þetta
er sérstaklega mikið vandamál þegar
stoppað er við umferðarljós og þarf
að beygja sig vel fram til að sjá
hvenær ljósið verður grænt.
Aksturseiginleikar bílsins mótast
að miklu leyti af því að Land Rover
á margt skylt með dráttarvél.
U pplifunin er því mun nær því að
aka I nternational Harvester 434 en
T esla Model 3 . Dísilmótorinn er
ekki með nema 67 hestöfl og vegur
bíllinn tæp tvö tonn. Hann nær því
ekki upp í hundrað kílómetra hraða
nema eftir dúk og disk, að því gefnu
að hann aki niður í móti með vindinn
í bakið. Ef það er hins vegar brekka
eða mótvindur þá er mikil barátta
að halda bílnum á þjóðvegahraða.
Hávaðinn er geipilegur við nær
allar akstursaðstæður, nema þegar
ekið er í rólegheitunum innanbæjar.
Standi til að leggja í langferð er
nauðsynlegt að vera með eyrnatappa,
því vélin öskrar þegar ekið er á áttatíu
kílómetra hraða úti á þjóðvegi, enda
engin hljóðeinangrun, og þegar ekið
er á malarvegi hringlar í öllu.
Land Rover er afar óheppilegur
sem borgarbíll þar sem hann er með
víðan beygjuradíus. Þá fylgir því
líkamlegt erfiði að koma bílnum fyrir
í þröngt stæði þar sem stýrið er nær
óyfirstíganlega þungt, sérstaklega
þegar bíllinn er kyrrstæður.
Ó líkt því sem oft er fleygt fram
um Land Rover, þá fjaðrar þessi
tiltekni bíll nokkuð vel. Það skýrist
í fyrsta lagi af því að þetta er lengri
týpan sem gerir hreyfingar yfir
ójöfnur ekki eins kvikar og á þeim
stuttu. Í öðru lagi er búið að skipta
út upprunalegu fjaðrablöðunum
fyrir svokallaðar parabolic fjaðrir,
sem gefa meiri mýkt á kostnað
burðargetu. Þá eru dekkin belgmikil
og auðvelt að minnka loftþrýstinginn
til að gera bílinn enn þýðari, hvort
heldur sem áætlunin er að aka yfir
hraðahindrun eða hálendisveg.
Kemst allt á seiglunni
Þegar malbikinu sleppir koma í ljós
hinar sterku hliðar bílsins. Hann er
rásfastur þegar búið er að virkja
fjórhjóladrifið og eins og áður segir
nokkuð mjúkur. Land Roverinn er
með hásingar að framan og aftan
og veghæðin einstaklega góð, þótt
þetta sé óbreyttur jeppi. Drifkúlurnar
á hásingunum eru staðsettar aðeins
til hliðar og getur ökumaðurinn því
miðað við að allra stærstu steinarnir
fari undir bílinn þar sem hann er
hæstur. Það eru samt hverfandi
líkur á því að reka upp undir bílinn
á venjulegum fjallaslóðum, enda er
hann það hár að fullorðinn maður
getur skriðið undir hann. Þá er hann
merkilega öflugur í grófum torfærum
og virðist hann ná endalausu gripi,
þrátt fyrir að vera á frekar fíngerðum
dekkjum. Hann fer ekki hratt yfir en
kemst nánast allt á seiglunni.
A ð lokum
Þrátt fyrir alla sína ókosti er Land
Rover uppfullur af yndisþokka sem
vegur upp á móti öllu því neikvæða.
Það er ekki hægt að mæla með
þessum jeppa ef hann er eini bíllinn
á heimili. Sem aukabíll er hann hins
vegar stórskemmtilegur og hver
ökuferð upplifun. Þá vekur bíllinn
jákvæða athygli hvert sem hann fer,
hvort sem það er frá fimm ára piltum
eða áttræðum konum.
Lesendur þurfa að gera ráð
fyrir talsverðri slagsíðu í þessum
bíladómi, enda sá sem þetta
skrifar eigandi bílsins og vitaskuld
ekki alveg hlutlaus. Þeir sem eru
áhugasamir um að sjá fleiri myndir
og myndbönd af bílnum geta flett
upp @ landroveradventuresic eland
á I nstagram.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
L and R over voru algengir b ílar á á rum á ður en eru nú orðnir sjaldgæf sjón. Þ rá tt fyrir að vera gamaldags og uppfullur af ókostum þá er hver ö kuferð
upplifun. Þ etta er rúmgóður b íll sem kemst ná nast allt á seiglunni. Myndir / Á L
I nnréttingin er óraveg frá nútímab ílum. S ætisstaðan er óeðlileg en mjúkur
svampurinn vegur upp á móti.
H ö nnuðir L and R over hafa líklega notast mikið við vinkil þegar b íllinn var
teiknaður, enda níutíu grá ðu horn víða.
– Prufuakstur á Land Rover Series III