Úrval - 01.09.1969, Síða 79
STÓRKOSTLEGASTI SKÝJAKLJÚFURINN
77
rafmagnsleiðslum, símaleiðslum,
skolpleiðslum og vatnsleiðslum. Og
enn eitt vandamál þurfti nú einnig
að glíma við. 25 fetum fyrir neðan
yfirborðið, þ.e. niðri í öllu gumsinu,
voru tvaer neðanjarðarlínur Trans-
Hudsonkerfis Hafnarráðsins, þ.e.
línur, sem lágu undir Hudsonfljótið.
Og 80.000 farþegar feruðust daglega
með neðanjarðarlestum þessum til
og frá Manhattan. Risavöxnu rörin,
sem línurnar lágu í, komu smám
saman í ljós, þegar grafið var dýpra.
Og loks voru þau skilin eftir, hang-
andi í loftinu, en þó ekki í lausu
lofti, því að geysilega sterkum
stuðningspöllum var komið fyrir
undir þeim. En umferðin stöðvaðist
samt aldrei, ekki eina mínútu.
STAFLAÐ UPP
Tvö arkitektafyrirtæki höfðu
fengið það verkefni að teikna þetta
risabákn og skipuleggja þessa „borg
innan borgarinnar“ á allan hátt.
Minoru Yamasaki & Associates í
Troy í Michiganfylki skyldu verða
ábyrgir fyrir hinu fagurfræðilega
útliti báknsins. Emery Roth &
Sons í New Yorkborg, sem höfðu
reist tylftir af skýjakljúfum Man-
hattaneyjar, yrðu aðallega ábyrgir
fyTÍr framkvæmd hinna ýmsu und-
irþátta áætlunarinnar.
Arkitektinn „Yama“ Yamasaki,
sem fæddur er í Seattle, átti eftir
að starfa við þessa risaáætlun í 10
ár samfleytt. Og hann þurfti að
fást við ofboðslega yfirgripsmikið
og flókið verk, hvað teikningar og
val efnis og búnaðar snerti, jafnvel
val dyrahúna. Fyrsta árinu eyddi
hann aðallega í að taka ákvarðanir
um heildarútlit risabáknsins! í því
augnamiði geirði hann líkan af
bákninu í algerlega réttum stærð-
arhlutföllum. Næst bjó hann til all-
marga litla pappakassa, og táknaði
hver þeirra hluta úr byggingunum.
Svo tók hann að raða þessum köss-
um saman á alla hugsanlega vegu.
Hann raðaði þeim á yfir 100 vegu,
áður en hann fann heildargerð, sem
hentaði honum. Þar var um að
ræða 2 himinháa turna, fjórar lág-
ar byggingar og rúmgott torgsvæði.
Það eru ýxnsir erfiðleikar því
samfara að reisa skýjakljúfa. Það
eru ýmis atriði, sem takmarka þá.
Eitt þeirra er hinn hái kostnaður
stálsins. Því hærra sem þeir teygja
sig, þeim mun sterkari verður und-
irstaðan að vera. Lyftur eru líka
annað vandamál. Það getur endað
þannig, hvað geysiháa skýjakljúfa
snertir, að allt rúm á neðri hæðun-
um fari undir lyftugöng. Það var
ýmislegt, sem hjálpaði arkitektum
Heimsviðskiptamiðstöðvarinnar til
þess að ryðja þessum hindrunum úr
vegi. Síðan Empire Statebyggingin
var reist rétt eftir 1930, hafa komið
fram nýjar gerðir af stáli, sem eru
þrisvar sinnum sterkari en hinar
eldri. Því mundi ekki þurfa nærri
því eins mikið stál og áður. Einnig
notuðu þeir nýja byggingaraðferð,
sem er fólgin í því, að útveggirnir
bera mestallan þungann. Hinar lóð-
réttu súlur útveggjanna eru tengd-
ar saman með risavöxnum láréttum
bjálkum og tengdar við innri kjarna
byggingarinnar með gólfstyrktar-
bindingum. Þannig fæst meiri
stinnleiki, þótt notað sé minna magn
af stáli.