Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 25
BRJÓTTU EKKI SJÓREKNA FLÖSKU
23
ritaðar tilkynningar í flöskur og
fleygt þeim í sjóinn. Þetta var gert
í þeirri von, að þær mundu finnast,
og þannig færa þeim hjálp. Flösku-
skeyti hafa og upplýst endalok
löngu horfinna skipa.
Árið 1902 leituðu tvö herskip á
Atlantshafi í þrjá mánuði að ein-
hverju merki um eimskipið „Hur-
onian, sem var saknað. Leitin bar
engan árangur. Fimm mánuðum
seinna fannst flaska, vel frá geng-
in, á strönd Nova Scotia. f flösk-
unni voru skilaboð sem hljóðuðu
á þessa leið: ,,Huronian“ hvolfdi á
Atlantshafi sunnudagsnóttiná. Fjór-
tán okkar erum í bát“. Engin und-
irskrift var á skeytinu. Fyrst var
haldið að þetta væri gabb, en fimm
árum seinna var gildi þess staðfest,
er annað skeyti fannst í flösku sem
rak á strönd Norður-írlands. Það
skeyti hljóðaði á þessa leið: „Hur-
onian“ er að sökkva, toppþung,
önnur hliðin í kafi. Yerið þið sælar
mæður og systur — Charlie Ms-
Fell, smyrjari".
Nú eru þau flöskuskeyti mikil-
vægust sem send eru til þess að
auðvelda vísindamönnum að kort-
lepgja strauma og reka á heims-
höfunum.
Fyrstu tilraunir í þá átt er að
finna mörgum árum fyrir Krists-
burð eftir Theophrastus, grískan
heimspeking. Hann fleygði flöskum
í Miðjarðarhafið við rannsóknir á
fallstraumum.
Mörgum öldum síðar fleygði
Benjamín Franklin flöskum í Golf-
strauminn. f flöskunum var miði
með nafni hans og heimilisfangi.
Biður hann finnandann að láta sig
vita um stað og stund, þegar flask-
an fannst. Með söfnun þeirrar
vitneskju, er þannig barst, gat
Franklín kortlagt bæði hraða og
stefnu Golfstraumsins. Hafastraum-
kort hans þurft lítilla breytinga við
hingað til.
Um 1860 fór brezka flotastjórnin
að gefa út prentuð eyðublöð, er af-
hent voru yfirmönnum á skipum
til þess að fleygja í sjóinn. Á eyðu-
blaðinu var gefið upp nafn skips-
ins, staður og stund er flöskunni
var fleygt í sjóinn. Finnandi var
beðinn að rita á eyðublaðið stað og
stund er flaskan fannst og senda
eyðublaðið til baka.
Um 30 árum seinna tók flota-
stjórn Bandaríkjanna upp samskon-
ar kerfi, og er það ennþá notað. —
Hafrannsóknar-skrifstofa Banda-
ríkjaflotans sendir út nokkur þús-
und slíkar flöskur árlega. Eru flösk-
urnar afhentar skipstjórum á amer-
ískum skipum ásamt fyrirmælum
um, að láta þær í sjóinn á ýmsum
stöðum á hnettinum. í sérhverri
flösku er bréfspjald, á það ritar
skipstjórinn nafn skips, dagsetn-
ingu, stað skipsins (breiddar- og
lengdargráðu), þar sem flöskunni
var fleygt. í flöskunni er einnig
annað bréfspjald með leiðbeining-
um fyrir finnanda. Eru leiðbeining-
arnar prentaðar á sjö mismunandi
tungumálum, þar á meðal Esper-
anto. Um 350 eyðublöð endurheimt-
ast ár hvert. Eftir þeim hafa verið
dregin ágæt straumkort.
Slíkum flöskum er fleygt í tug-
þúsundatali árlega i heimshöfin,
því að, þrátt fyrir bætt vísindatæki
nútímans, gjöra rekaflöskurnar enn-