Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
þá mikið gagn við könnun leyndar-
dóma hafsins.
Umboðsmenn ríkisstjórna setja
nú reglulega á flot rekaflöskur á
heimshöfunum. Er þeim stundum
fleygt frá skemmtisiglingaskipum,
verzlunarskipum eða þá rannsókn-
arskipum á vegum einkavísinda-
stofnana.
Fullgerð sjókort eru sérstaklega
gagnleg eftir stríð, til þess að leið-
beina um fund sprengidufla á aðal-
siglingaleiðum. Eftir seinni heims-
styrjöldina voru þúsundir af virk-
um og stórhættulegum tundurdufl-
um á reki á skipaleiðum. Mörg stór
tjón urðu þá á skipum, sem rákust
á þessi djöfullegu meinvætti. Það
var því bráðnauðsynlegt að komast
að því, hvar og hvenær líkur væru
til, að þau yrðu á leið skipanna,
ef siglingar áttu að vera öruggar
yfir Kyrrahafið. — Upplýsingar
sem rekaflöskurnar gáfu, leystu
vandann. Jafnvel á venjulegumtím-
um er hægt að get.a sér til um rek
hættulegra ,,flothylkja“, segja fyrir
með allnokkurri vissu, og má þakka
það vitneskju, sem safnað hefir ver-
ið með rekaflöskunum.
Bandarískir og kanadisk'ir rann-
sókna-vísindamenn fleygðu yfir
156.000 lokuðum sódavatns-flöskum
á Atlantshafi, frá Nýfundnalandi til
Florida á tímabilinu 1948—1962.
Vitneskja sem fengist hefir af end-
ursendum bréfspjöldum, hefir veitt
mikilvægar upplýsingar um yfir-
borðsstrauma á Atlantshafi. Þessar
yfirgripsmiklu rannsóknir verða
notaðar til þess að leiðbeina um,
hvar megi fleygja úrgangsefnum
frá kjarnorkustöðvum, svo ogskolp-
rennsli til sjávar, þá má og nokkuð
af þeim læra um göngur fiska.
Nákvæm þekking á hafstraum-
um getur orðið fiskimönnum bók-
staflega gulls ígildi í auknum veið-
um. Vísindamenn Bandaríkjanna
nota t.d. flöskurnar til að benda
fiskimönnum á, hvar líklegt sé að
veiða megi þorsk og ýsu. Egg þess-
ara fiska fljóta við yfirborð sjáv-
ar. Sé flöskum fleygt meðal þeirra
sem flotmerki, og beri þær til hafs,
er líklegt að egg fiskanna geri það
einnig.
Sjókort auðvelda siglingafræðing-
um að meta straumhraða og rek,
svo að þeir geti sneitt hjá mót-
straumi, og notað meðstreymi til
flýtisauka. Iðnfyrirtæki nota flösk-
ur til þess að finna eða fylgja úr-
gangsefnum. Gefa þær bendingu
um, hvort ákveðin svæði, eða sjáv-
arstrendur séu í hættu vegna meng-
unar.
Siglingafræðingar, sem „studera“
endursend flöskuskeyti, eru í mjög
góðri aðstöðu til að meta, hvaða á-
lit fólk víðsvegar hefir á Ameríku.
Almennt trúa menn því, að göturn-
ar í Ameríku séu lagðar gulli, og
þaðan sé að vænta ríflegrar þókn-
unar fyrir að finna flöskuskeyti —
þrátt fyrir athugasemd um að svo
sé ekki, sem prentuð er á eyðu-
blaðið.
Stúlka nokkur á Kanary-eyjum
heimtaði endurgreiðslu á ferða-
kostnaði til ameríska r.æðismanns-
ins (þar sem hún skilaði flösku-
skeytinu), ekki einungis fyrir sjálfa
sig, en einnig fyrir tilsjónarkonu
sína. Þessi’ unga kona mátti ekki
ferðast fylgdarlaust. frsk inn-