Úrval - 01.08.1970, Page 28
26
ÚRVAL
landi, en fannst 31 mánuði síðar
á strönd Yucatan í Mið-Ameríku.
Hafði hana þá rekið yfir 6000 sjó-
mílur. Hún barst fyrst með austur-
straumi og vindi, því næst með
suður og vestur straumi, þar til
hana að lokum rak á strönd þessa
fjarlæga lands í hitabeltinu.
Hraði rekaflasknanna er að sjálf-
sögðu mismunandi, er það komið
undir vindum og straumi. Flaska
sem lendir á kyrrum stað, rekur ef
til vill ekki yfir eina mílu á mán-
uði. Önnur flaska, sem lendir í
Golfstraumnum þar sem hann er
sterkastur, nær ef til vill 5 hnút-
um, eða allt að 100 sjómílum á dag.
Enginn getur þó, með nokkurri
vissu, sagt fyrir um í hvaða átt
flöskurnar berast. Lítum á gagn-
stæða ,,breytni“ nákvæmlega sams-
konar flaskna, er látnar voru sam-
tímis á sama stað í sjóinn, stutt frá
strönd Brazilíu. Önnur flaut austur
eftir í 130 daga og fannst á strönd
Afríku. Hina flöskuna rak norð-
vestur og endaði ferð sína eftir 196
daga í Nicaragua. - Tvær flöskur,
sem flevgt var samtímis á miðju
Atlantshafi, lentu á Frakklands-
strönd með naumast eins meters
millibili eftir 350 daga sjóferð.
f bókstaflegum skilningi munu
nú þúsund’r flaskna með skilaboð-
um á reki um heimshöfin. Hver
getur um það sagt, hve mikilvæg-
a>' fréttir bær hafa að færa. f og
eftir fvrri heimsstyrjöldina voru
mörg flöskuskeyti, sem skipbrots-
m»nn höfðu flevgt í sióinn, og bár-
ust til allra hluta heims. ÞaS er bví
miög hupsanlegt, að miklu fleiri
skilaboð hafi verið falin hafstraum-
um og vindum til fyrirgreiðslu í
þeim stríðum, sem síðar hafa átt
sér stað, ekki einungis af sjómönn-
um, heldur einnig af nauðstöddum
flugmönnum, sem „skotnir hafa
verið niður“. Er því hugsanlegt, er
tímar líða, að nokkur þessara
,,bréfa“ komi í leitirnar og gefi
vitneskju um örlög sona, eigin-
manna og feðra, sem fóru í stríðið
og komu ekki aftur.
Ef til vill eru flöskur á reki lík-
ar þeirri, sem fleygt var í sjóinn
einn júnídag fyrir nokkrum árum.
Dr. T. R. Van Dellen og L. E. Ric-
kard frá Chicago, voru á skipi
stöddu út af norðurströnd Maine.
Þeir stöðvuðu brytann, sem var í
þann veginn að fleygja útbyrðis
tómri whisky-flösku, oghugkvæmd-
ist þeim nú að gera tilraun með
flöskuna (test the odds of nature).
Þeir rituðu með blýanti nöfn sín
og heimilisföng, ásamt ósk um, að
finnandi sendi þeim flöskuna aftur,
mundu þeir þá fylla hana á ný. Er
þeir höfðu látið seðilinn í flöskuna
og gengið frá tappanum, hentu þeir
henni útbyrðis, á hið stormasama
Atlantshaf. Ríflega tveimur mánuð-
um síðar barst bréf frá manni á
Nýfundnalandi. — Sagðist hann
hafa fundið flöskúna brotna á
ströndinni, meira en 1.000 mílur frá
þeim stað er henni var fleygt í sjó-
inn.
,,Ég vona að þér viljið fylla aðra
flösku í stað þessarar", skrifaði
hann.
Van Dellan og Rickard lögðu
fram 5 dali hvor, og sendu mann-
inum ávísun, með þeirri skýringu,
að áfengi væri ekki hægt að senda