Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 35
ÓVÍNUR ÞJÓÐFÉLAGSÍNS NÚMER EITT 33
1. Ein kona er í hinni
nýju stjórn Heaths,
forsætisráðherra
Breta. Hvað heitir
hún og hvaða em-
bætti gegnir hún?
2. Hver var nýverið
skipaður . formaður
Æskulýðsráðs til
næstu fjögurra ára?
3. Eftir hvern er leik-
ritið „Betur má ef
duga skal“?
4. Hver á íslandsmet-
ið í hástökki og
hvert er það?
5. Hver er forsætisráð-
herra Ceylon?
6. Hverjum er Sofia
Loren gift?
7. Hvað heitir íþrótta-
fulltrúi ríkisins?
8. Hver hefur skrifað
bók á íslenzku um
Winston Churchill?
9. Hvað heitir höfuð-
borg Rúmeníu?
10. Hvert er nýjasta
flutningaskip ís-
lenzka kaupskipa-
flotans?
Svör á bls. 69.
„grunaður um manndráp" og tek-
inn fastur. Hann lét þá senda steikt-
an kjúkling til Barretts, þar sem
hann lá á sjúkrahúsinu. En í kjúkl-
inginn hafði verið bætt slatta af
stryknini. Barrett skildi „orðsend-
inguna“. Hann kastaði þessum ban-
eitraða fugli út um gluggann. Hann
neitaði síðan að bera vitni gegn
Lansky, og Lansky labbaði sem
frjáls maður út úr fangelsinu.
Upp frá þeim degi lét Lansky
jafnan þá undirmenn sína, er hann
treysti, um allt ofbeldi, þvinganir,
hefndarverk og fleira af slíku tagi.
Árið 1931 skutu leigumorðingjar
hans niður æðsta yfirmann banda-
rísku Mafiunnar, sjálfan Salvatore
Maranzano. Þannig gerði hann
,,Ungtyrkjunum“, en til þeirra töld-
ust þeir Lansky og Lucky Luciano,
það fært að styrkja mjög allsherj-
aryfirráð sín yfir ýmsum þáttum
skipulagðrar glæpastarfsemi um
gervallt landið. Árið 1947 tóku
„skotmenn“ Lansky Bugsy Siegel
af lífi innan sólarhrings frá því, að
að þeir höfðu rifizt ofboðslega um
stjórn Siegels á Flamingospilavít-
inu í Las Yegas. Þeir Bugsy Siegel
og Lansky höfðu verið samstarfs-
menn og félagar um langa hríð.
„STÍGIÐ í VÆNGINN VIÐ
STJÓRNMÁLAMENNINA"
í Nevadafylki létu „fjárfleyting-
armenn“ spilavítanna, þ. e. eigend-
ur þeirra og stjórnendur, af hendi
„stjórnmálabaráttuframlög“ við
frambj óðendur stj órnmálaflokkanna
og opinbera embættismenn, bæði
menn í lágum sem háum stöðum.
Þ. 9. nóvember árið 1962 átti Ed
Levinson úr Lanskysamtökunum