Úrval - 01.08.1970, Page 49
VERTU SÆL LITLA ÖND
47
hlýtt og glampandi sólskin næsta
morgun. Og ég leit út í garðinn til
þess að sjá, hvernig öndin okkar
brygðist við góðviðrinu.
Hún var horfin! Þarna var eng-
ar fjaðrir né fiður að sjá. Nú vakti
enginn fyrirgangur hana Amber. —
Vírnetið í stíunni var dregið niður
að innan. Öndin okkar hafði nú
safnað kröftum um hríð. Og mér
skildist nú, að það hefði því reynzt
henni auðvelt að taka sig til flugs
í sólskininu og logninu og fljúga
aftur niður til strandarinnar, sem
hún var þegar búin að fljúga til
áður, fljúga niður að hafinu, sem
hún elskaði.
Við viljum endilega trúa því, að
hún hafi komizt alla leið. Nágrann-
ar okkar, sem búa rétt fyrir ofan
fjöruklettana, skýrðu okkur frá því
nokkrum dögum síðar, að brún önd
hefði slegizt í hóp tveggja hálftam-
inna máva, sem þau ólu. Þeir sögðu
okkur, að hún hefði dvalið hjá
þeim um stund. „Ég hélt, að þetta
kynni að vera öndin ykkar,“ sagði
húsmóðirin. „Og því kallaði ég til
hennar: „Halló, önd, hvað ertu að
gera hérna?“ Og öndin synti í átt-
ina til mín og stanzaði svo og
hlustaði eftir rödd minni.“
Hún tók eftir hinum mikla áhuga
okkar, er við heyrðum þessar frétt-
ir. Og hún flýtti sér að bæta við:
„Hún virtist vera óskaplega sæl
með sig þarna úti á sjónum.“
Vertu sæl, litla önd. ☆
Sumar konur eldast á virðulegan og fínlegan hátt, aðrar ganga í síð-
buxum úr teygjuefni.
Gilbert Miller, hinn frægi leikhúsmaður, yfirgaf eitt sinn veizlu klukk-
an 3 að nóttu og bað húsfreyjuna afsökunar á því með þessum orðum:
„Læknirinn minn hefur sagt mér, að svo framarlega sem ég vilji halda
heiisu, ætti ég alltaf að fá mér 1—2 tima blund fyrir morgunverð."
Leonard Lyons.
Sandskíðaíþróttin nýtur stöðugt vaxandi vinsælda í Perú, en í því
landi er hin venjulega skiðaíþrótt næstum óþekkt þrátt fyrir himin-
gnæfandi, snævi þakin Andesfjöllin. Sandskíðagarparnir flytja inn skíði
þessi frá Þýzkalandi og renna sér á þeim niður sandhólana, sem teygja
sig meðfram ströndinni á 1400 mílna löngu svæSi.
Montague Burton heitir risavaxið fataframleiðslufyrirtæki eitt í Bret-
landi. Það er nú að gera tilraunir með sjálfvirka sniðtöku með hjálp
lasergeisla. Gert er ráð fyrir stereoseopiskri Ijósmyndavél ásamt raf-
reikni, sem skráir á segulband eins konar „landakort" með lýsdngum af
líkama viðskiptavinarins. Lasergeisla er síðan stjórnað með hjálp upp-
lýsinganna á segulbandinu, er hann ristir sundur efni í föt, sem hæfa
likamslögun einstaklings þess, sem um er að ræða.
The Insider’s Newsletter.