Úrval - 01.08.1970, Síða 59
57
ÁHRIF ÁFENGISINS
Á LÍKAMANN
Áður en við. athugum og meturn
nánar þessar nýju upplýsingar,
skulum við athuga, hvað gerist í
raun og veru í líkama okkar, þegar
við drekkum áfengi. Hvort sem við
svelgjum í okkur bjór, létt vín,
whisky eða vodka, þá er efnið, sem
hefur áhrif á okkur, hið sama, þ.e.
ethylalkohól, sem er mjög auðveld-
lega uppleysanleg't í því vatni, sem
er aðalhluti næstum allra vefja lík-
ama okkar. Það er svo auðveldlega
uppleysanlegt, að hiuti af hverjum
sopa áfengis síast beint í gegnum
tunguna og góminn, áður en manni
gefst tími til þess að kyngja honum!
Og afgangurinn leysist ekki upp
eða meltist eins og venjulegar fæðu-
tegundir. Þess í stað síast hann beint
inn í blóðrásarkeirfið í gegnum
rragaveggina eða þekjuhúðina í efri
hluta meltingarfæranna, með svo
mikium hraða, að drekki maður
áfengi á fastandi maga, geta allt að
90% þess komizt inn í blóðrásar-
kerfið innan klukkustundar. Upp-
leyst í blóðinu flyzt áfengið fljótt til
hvers líffæris líkamans, og þá sér-
staklega þeirra, sem hafa mikið
vatnsmagn og mikið aðstreymi
blóðs, t.d. heilans.
Sérfræðingar á sviði líkams- og
heilsufræði hafa lengi gert sér grein
fyrir því, að ýmis af hinum þekktu
óhrifum áfengisneyzlu eru í raun-
inni ytri tákn um áhrif áfengis á
heilann. Þeir hafa sannreynt, að það
eru bein tengsl milli áfengismagns-
ins, sem við dembum inn í blóð okk-
ar, og þess svæðis heilans, sem
áfengið hefur áhrif á. Ef 135 punda
maður drekkur t.d. tvær flöskur af
áfengum bjór' á fastandi maga, mun
alkohólmagn það, sem leysist upp í
blóði hans, nema um 5/100%. Slíkt
alkohólmagn það í blóðinu mun hafa
áhrif á eðlilega starfsemi ytra lags
heilans, heilabörkinn (cortex), sér-
staklega á þeim svæðum hans, sem
eru miðstöðvar kvíða og áhyggja..
Maðurinn mun finna til gervigleði
og gervifjörs. Honum finnst sem
bjórinn hafi „lífgað sig við“, vegna
þess að hömlurnar, sem halda hon-
um venjulega í jafnvægi, hafa í
rauninni lamazt.
Drekki hann nóg til þess að hækka
alkohólmagnið í blóðinu upp í um
10/100%, mun starfsemi hreyfi-
stöðvanna í afturhluta heilans dvína
og hann byrjar að missa stjórn á
vöðvabreyfingum sínum.*
* Karlmenn álíta yfirleitt, að konur ,,þoli
ekki vel áfengl“. Kvenréttindakonur
munu kannske taka þessa skoðun ó-
stinnt upp, en samt er sannleikskorn í
henni. 90 punda kona hefur til dæmis
aðeins um tvo þriðju hluta þess blóð-
magns, sem 135 punda maður hefur.
Drekki hún jafnmikið áfengi og hann,
mun hún því hafa hærri hlutfallstölu
alkóhóls uppleyst í blóði sínu og því
mun áfengið hafa sterkari áhrif á hana.
z'------------------------------\
Fjölmargar athuganir hafa
sýnt, að þegar flugmaður
kemst upp fyrir 9000 feta
hæð, fer hann að finna til
taumlausrar gleði, sem lík-
ist mjög þeim áhrifum, sem
evtt eða tvö hanastél hafa
á fnlk.
V_______________________________J