Úrval - 01.08.1970, Page 81
EÐALSTEINAR OG SAGNIR UM ÞÁ
79
verið kunnir. Fannst í gröf Tutank-
hamens, er getið í rituðu máli fyrir
sex þúsund árum. Er frá Afgahnist-
an og þótti áhrifaríkur verndar-
gripur gegn öllu illu.
Mánasteinn: Dregur nafn sitt af
geislandi röndum, sem minna á
tunglskinsgeisla. Hann átti að vera
til framdráttar í ástarmálum og
eigendur hans að verða skyggnir
við fullt tungl.
Nefrite: Kínversgkur jaði, dökk-
grænn.
Ópal: Ópalar geta verið í öllum
regnbogans litum, en dýrmætastir
eru þeir, sem eru svartir — nánar
tiltekið dumbrauðir. Lengi var
hann talinn óheillasteinn, en sú trú
er hverfandi. Heillasteinn október-
barna.
Perlur: Perlur hafa löngum ver-
ið með dýrmætustu skartgripum og
nú er farið að rækta þær með góð-
um árangri. Séu perlur vanhirtar,
glata þær ljóma sínum og skemm-
ast. Heilla-„steinn“ júníbarna.
Peridot: Fallegur gulgrænn
steinn, heillasteinn ágústbarna. Er
þeim hollur, sem þjást af minni-
máttarkennd.
Raf: Finnst rekið á fjörur, er í
öllum gulum litum. Stælingar af
rafi eru algengar, en vilji menn
reyna hvort steinninn sé ekta, þá
þarf ekki annað en nudda hann
rösklega og bera hann að þunnu
blaði, þá dregur hann blaðið til sín.
Rúbín: Litur þeirra er alltaf
rauður. Þeir beztu koma frá Burma
og gerast nú mjög sjaldséðir, því
að gimsteinagröftur er lítill í
Burma. Rúbín á stærð við baun var
ekki alls fyrir löngu seldur fyrir
um fjórar milljónir ísl. króna. Ekta
rúbína má þekkja á því, að svo er
að sjá sem silkiþræðir séu innan í
þeim. Heillasteinn júlíbarna. Rúb-
íninn er tákn ástar, tryggðar og
gleði. Hann á líka að gefa á fert-
ugasta hjúskaparafmæli.
Safír: Dýrustu safírar eru dökk-
bláir og frá Thailandi. Stjörnusa-
fírar draga nafn af því, að það er
eins og geislandi stjarna sé innan
í þeim, þegar horft er á þá ofan
frá. Heillasteinn septemberbarna og
á að veita skýra hugsun. Safír á að
gefa á 45 ára hjúskaparafmæli. —
(Hér ætla ég að skjóta því inn í,
að mér finnst ég aldrei hafa séð
fegurri gimstein en stjörnusafír,
sem ég sá hjá gimsteinasala í Nýju-
Delhi. Manni fannst stafa geislum
langt út úr honum gegnum milda
blámóðu).
Tópaz: Gulur, brúnleitur, bleik-
ur, blár eða litlaus og er þá oft
ruglað saman við aðra steina. ■—•
Heillasteinn nóvemberbarna, vernd-
ar fyrir svefnleysi og styrkir vin-
áttubönd.
Túrmalín: Finnst í mörgum lit-
um, þeir grænu eru stundum kall-
aðir brazilíanskir smaragðar. Er
vinsæll í hringi.
Túrkis —■ eða Tyrkjasteinn, hafði
mikla töfranáttúru, afstýjrði slys-
um, jók frjósemi og hjónabands-
tryggð. Stundum eru gallar á lé-
legum túrkisum faldir með því að
vaxbera þá. Heillasteinn desem-
berbarna.
Vatnsópal: Mjólkurhvítur steinn
með sindrandi litbrigðum, glærari
en venjulegur ópal.
Zircon: Stundum hvítur eins og