Úrval - 01.08.1970, Page 91
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
89
hlotið mjög víðtæka þjálfun til und-
irbúnings njósnum í Bandaríkjun-
um. Hann notaði sitt rétta nafn,
vegna þess að hann fæddist íBanda-
ríkjunum. Fjölskylda hans hafði
flutzt til Sovétríkjanna árið 1933,
en KGB-menn höfðu soðið saman
mjög ýtarlega „ævisögu11, sem náði
yfir allan þann aldarfjórðung, er
hann hafði dvalið í Rússlandi. Og
samkvæmt henni átti hann alltaf
að hafa dvalið í Bandaríkjunum.
Síðan hann kom til Bandaríkj-
anna frá Sovétríkjunum fyrir tveim
mánuðum, hafði hann kynnt sér
hina ýmsu staði, sem hann átti að
hafa dvalið og starfað á samkvæmt
,,ævisögunni“. Hann hafði heimsótt
þá hvern af öðrum. Hann var ein-
mitt í þann veginn að ljúka heim-
sókn sinni til Milwaukee, þegar
rannsóknarlögreglumenn alríkislög-
reglunnar höfðu stöðvað hann.
Svo hófust yfirheyrslurnar aftur,
eftir að hann hafði fengið súpu og
nokkrar brauðsneiðar. Tuomi sat í
legubekk gegnt arninum. Hann ein-
beitti sér svo að því að hvika hvergi
frá „ævisögu" sinni, að harin gerði
sér sjaldan grein fyrir því, hver
mannanna spurði hverju sinni.
„Hvað ertu að gera hérna í Mil-
waukee“?
„Að leita að vinnu“.
„Hvern þekkirðu hérna í Mil-
waukee"?
„f rauninni engan. Eg vann hérna
á vélaverkstæði, og svo vann ég í