Úrval - 01.08.1970, Page 95
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
93
\
Mennirnir störðu á hann og biðu
átekta.
„Þið höfðuð að nokkru leyti rétt
fyrir ykkur í gær“, sagði Tuomi.
„Stjúpfaðir okkar fór í raun og
veru með okkur úr landi árið 1933.
En við fórum bara til Finnlands,
en ekki Sovétríkjanna. Ég hafði
samt alltaf í hyggju að snúa aftur
til Bandaríkjanna. í fyrrahaust
fékk ég svo starf sem háseti á
finnsku vöruflutningaskjpi. Þegar
við komum til Quebec í Kanada,
strauk ég af skipinu og hélt svo
án leyfis yfir bandarísku landamær-
in. Ég veit, að þetta er ólöglegt.
En ég gerði það vegna þess, að
mig langaði svo til þess að eiga
heima í mínu eigin landi“.
Nú ringdi tafarlaust yfir hann
ótal spurningum: Hvað hét skipið?
Hver var skipstjórinn? Hver var
fyrsti stýrimaður? Hvers konar
farmur var fluttur með skipinu?
Frá hvaða höfn í Evrópu fór skip-
ið? Hvaða mánaðardag kom það
til Kanada? Hvar hafði Tuomi feng-
ið öll þessi fölsuðu skilríki?
Nokkru síðar kom Don út úr her-
berginu, sem var á bak við arin-
vegginn, og sagði við Tuomi: „Ég
hef enn fleiri slæmar fréttir að
færa þér, Kaarlo. Stofnanir þær,
sem sjá um skráningu skipa og
hafnaryfirvöld, sem skrá hjá sér
brottför og komu skipa, segja okk-
ur, að það fyrirfinnist ekkert slíkt
finnskt skip eins og þú hefur lýst
fyrir okkur. Við höfum líka kom-
izt að dálitlu öðru“.
Hann setti litla flösku á borðið.
f henni voru hægðatöflurnar, sem
KGB-menn höfðu afhent Tuomi í
BJÖRGVIN SÆMUNDSSON,
BÆJARSTJÓRI
Björgvin Sæmundsson er fædd-
ur á Akureyri 4. imarz 1930.
Foreldrar hans eru Sæmundur
Steinsson og Magnea Magnús-
dóttir. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1950, fyrrlhlutaplófi í
verkfræði ifrá Háskóla Islands
1954 og tók loks próf í bygg-
ingaverkfræði í Kaupmanna-
höfn 1957. Hann var eitt ár að
námi loknu verkfræðingur hjá
Sigurði Thoroddsen, en gerðist
síðan bæjarverkfræðingur á
Akranesi og var það í tvö ár.
1960 setti ihann upp verkfræði-
stofu á Akranesi. 1962 varð
hann bæjarstjóri á Akranesi
og gegndi því starfi tvö kjör-
tímabil. Björgvin hefur nú
verið ráðinn bæjarstjóri Kópa-
vogS'kaupstaðar. Kona hans er
Ásbjörg Guðigeirsdóttir.