Úrval - 01.08.1970, Page 101
N.TÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
99
samvinnunnar við óvinina. Hann
byrjaði að horast, og á næturnar
fékk hann stundum hræðilega mar-
tröð, sem hann vaknaði af með and-
fælum. Sérhver ókunnugur maður
á götunum varð í hans augum að
hugsanlegum morðingja frá Moskvu,
sem sendur hafði verið út af örk-
inni til þess að drepa hann. Sér-
hver símahringing eða hurðabar-
smíð hljómaði sem hættumerki.
Hann óttaðist næstu orðsendingu
frá Miðstöðinni, þar eð hann var
hræddur um, að hún hefði að
geyma dauðadómsyfirlýsingu.
Hann átti að fá þessa orðsend-
ingu þann 21. apríl. Strax og greina
mátti fyrstu skímu dögunarinnar í
Queens-hverfinu, þar sem hann
bjó, hélt Tuomi af stað og fylgdi
nákvæmlega þeim fyrirmælum, sem
hann hafði lært utan að í Moskvu.
Hann gekk í áttina að járnbraut-
arbrú, sem lá þvert yfir 69. stræti,
en sýndi ýtrustu varfærni, ef ske
kynni, að honum hefði verið veitt
eftirför. Einn af „felustöðunum“,
sem KGB hafði ákveðið, var ein-
mitt undir þessari brú. Þar átti
hann að skilja eftir orðsendingar
og taka orðsendingar, sem voru
skildar þar eftir handa honum. Það
var enginn á ferli við brúna og al-
ger kyrrð að undanskildu fótataki
hans. Hann beygði sig niður og
þóttist vera að hnýta skóreim .Enn