Úrval - 01.08.1970, Page 126
124
ÚRVAL
hann þekktur sem hófsamlegur
repúblikani, safnaðarmeðlimur, sem
kemur stundum í kirkju, og hinn
mesti sómamaður í alla staði. Sama
brosið, sem hjálpaði honum svo oft
í Moskvu, í skartgripaverzluninni
Tiffany og í hafnarhverfum New
Yorkborgar, hefur enn haft sinn
töframátt og aflað honum góðra
vina. En jafnvel nánustu vinir hans
þekkja ekki sögu fortíðar hans.
Þrátt fyrir hina ágætu hæfileika
Tuomi sem njósnara er samt margt
dularfullt við sögu hans. Hvernig
vissi Alríkislögreglan, að hans var
von til Ameríku? Hvernig vissi hún
hver hann var? Tuomi hefur aldrei
getað fengið fullgild svör við þess-
um spurningum. Þau eru læst í
leynihólfum í hugarfylgsnum nokk-
urra manna innan Alríkislögregl-
unnar . . . líklega að eilífu.
Hubert H. Humphrey hefur ánægju af því að minnast þess tímabils,
er George M. Humphrey frá Ohiofylki var ráðherra í ríkisstjórn Eisen-
howers forseta og sífellt var verið að rugla saman póstsendingum til
þeirra nafnanna.
„HHH“ leysti vanda þennan loks með því að láta fjölrita eftirfarandi
yfirlýsingu á smámiða og festa hann við allan þann póst, sem honum
barst ranglega, en ætlaður var nafna hans: „Við George M. Humphrey
erum hvorki skyldir líffræðilega né stjórnmálialega. Það gleður okkur
báða mjög mikið!"
Hy Oardner.
Rilnum var ekið talsvert yfir hámarkshraða. Umjferðarlögregluþjónn
stöðvaði hann og spurði bilstjórann, hvers vegna hann væri að flýta sér
svona óskaplega.
Bílstjórinn gaf snjallt svar við þessari spurningu, að því er honum
fannst: ,,Mér þykir það leitt, lögregluþjónn, en ég var bara að reyna
að dragast ekki aftur úr hinum bilunum."
Lögregluþjónninn leit upp frá sektarmiðanum, sem hann var að skrifa,
og sagði:
,,Það er nú ágætt út af fyrir sig, en hinir bílarnir, sem þér eruð að
reyna að dragast ekki aftur úr, fóru bara hérna um í gær!"
Umœli „félaga Gilberts“ um tónlistina.
Ég held, að tónlistin sé sú listgreinin, sem hefur mest, almennust og
skjótust áhri-f.
Ég veit, að það er til margt menntað og gáfað fólk, önnum kafið í
viðskiptum, stjórnmálum eða við önnur viðfangsefni, sem álítur, að tón-
listin sé bara dægradvöl, nautn fyrri eyrað.
En tónlistin er afl, og hún hefur haft áhrif á mannkynið á sviði
stjórnmála og trúarbragða, á tímum friðar og stríðs. Enginn getur mót-
mælt því.
Sir Arthur Sullivan.