Goðasteinn - 01.03.1965, Qupperneq 7
Íð og bjó þar góðu búi. Hann var kunnáttumaður, og var ckki
gott að gjöra móti honum. Hann átti galdrabók, sem brennd
var að honum látnum. Eitt barna Sighvats var Einar, faðir Ein-
ars, er síðast bjó á Bjólu, dáinn 1900 eða lítið fyrr, greindur
gerðarkarl. Annað barn Sighvats var Jórunn móðir dbrm. al-
þingismanns Sighvats Árnasonar frá Eyvindarholti, nú (1903) í
Reykjavík.
2. Sigurður, bjó í Kerlingardal. Kona hans Ástríður (minnir
G- J.).
3. Jón, bjó í Steinum undir Eyjafjöllum. Hans kona Sigurveig
Einarsdóttir frá Kerlingardal, Þorsteinssonar. Hans afkomendur
í Steinum um aldamót.
4. Vigfús. Hann var yngstur bræðranna, átti Sigríði Einars-
dóttur frá Lambafelli. Bjuggu fyrst í Hlíð móti Skúla, þótti
þar of þröngt fyrir tvo og fluttu þá að Höfðabrekku. Vigfúsi
líkaði þar ekki. Hann fór eftir fá ár að Blesahrauni og bjó þar
lengi, var dugnaðar- og ríkisbóndi. Hann gaf hverju hjúa stekk-
lamb að vori (eins og G. B.1 nýkomnum). Eftir niðurskurðinn,
reiddi hann hingað heim, 1859, aðdáanlega fallega lambgimbur
og gaf hana systur sinni, Ingibjörgu (móður Þuríðar), sem þá
var hingað komin (1858 65 ára). Oftar gaf hann henni. Kom
hér árlega, eftir að hann komst að Blesahrauni. Vigfús Guð-
mundsson heitir eftir honum. „Þeir bræður voru engir prakt-
menn, en allt þetta fólk var mesta tryggðafólk.“ (Halldóra
Bjarnadóttir).
Vigfúsar er minnzt í Þjóðólfi 1867, bls. 71: „1 Maí og má-
ske í öndverðum Júnímán. þ. á., dó á Síðu (Kirkjubæjarsókn)
í Vestur-Skaftafellssýslu í hinni almennu kvefsótt, er þá gekk
víðsvegar yfir land, Vigfús Jónsson bóndi á Blesahrauni (Norð-
mörk) nálægt 60 ára aldri, ættaður undan Eyjafjöllum, hafði
búið þar og á Vestri-Höfðabrekku, en um hin síðustu 18-20 ár
þar eystra. Hann var hinn duglegasti og uppbyggilegasti bóndi
þar í sveit, hjálpsamur, einarður, og hispurslaus við hvern, sem
í hlut átti. Hann lét eftir sig ekkju og tvö börn.“
5. Kristín, giftist ríkum ekkjumanni Bjarna að nafni. Þau
^ þ. c. Guðmundur Brynjólfsson.
Goðasteinn
5