Goðasteinn - 01.03.1965, Side 14

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 14
Þórarinn Helgason í Þykkvabce Guiliniindiir Guðmundur var oftast manna á milli nefndur Gvendur kíkir. Kíkisnafnið fékk hann af því, að hann var einsýnn, hafði vagl á auga frá fæðingu. Hann var fæddur á Nýjabæ í Meðallandi 30. ágúst 1840. For- eldrar hans voru hjónin Sigríður Jónsdóttir og Guðmundur Er- lendsson. Sigríður var dóttir Jóns Þórarinssonar, Isleikssonar. Kona Jóns var Kristín Sigurðardóttir, Oddssonar. Sigríður var fædd 2. júlí 1803 en Guðmundur maður hennar 1. apríl 1807. Hann var tvíkvæntur, og var Sigríður fyrri kona hans. Með henni átti hann tvö börn en með seinni konunni, Þorbjörgu Bjarnadóttur, 12 börn. Sumir telja þó, að börn Guðmundar með konum þessum væru enn fleiri. Sjálfur taldi Gvendur kíkir, að systkini sín væru 30, og tei ég sennilegt, að svo hafi verið, sem hann sagði. Frá uppvexti Gvendar kíkis hef ég engar heimildir. Faðir hans bjó í ýmsum stöðurn, m. a. á Hraunbóli á Brunasandi, og við þann bæ kenndi Gvendur sig jafnan. Eitthvað var hann sem stráklingur í Mörtungu, cg á þeim bæ hafði hann ætíð mætur, enda bjuggu frændur hans þar um langt skeið, Eyjólfur Þórarinsson afabróðir hans og síðan Oddarnir, niðjar Eyjólfs. 12 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.