Goðasteinn - 01.03.1965, Qupperneq 15

Goðasteinn - 01.03.1965, Qupperneq 15
Gvendur kíkir var mikill á velli, bæði hár og gildur. Sein- legur var hann og stirðlegur í hreyfingum og ekki fríður sýn- um. Útlimi hafði hann ákaflega stóra. Handleggirnir voru lang- ir mjög og hendurnar geysimiklar en ekki ófríðar. Talinn var hann burðamaður en sparneytinn á krafta sína, enda þungur til allrar vinnu. Sjóróðra stundaði Gvendur á Suðurnesjum framan af ævi en var í kaupavinnu á sumrum í austursveitum Vestur-Skaftafells- sýslu. Eitt sumar réðst hann þó í kaupavinnu að Svínafelli í Oiæfum til Sigurðar Jónssonar. Ekki gat Gvendur sér gott orð í Öræfum, cg Öræfingum bar hann því síður góða sögu, kall- aði hann þá skrælþjóð. Aldrei fór hann öðru sinni austur yfir Skeiðarársand. Ekki mun Gvendur hafa verið kominn mikið yfir fimmtugt, þegar hann hætti að mestu allri vinnu og lagðist í flakk. Lengi vel lét hann þó heita svo sem hann væri á vertíð á Suðurnesj- um og í kaupavinnu á sumrum. Alltaf kom hann á svipuðum tíma austur í sveitir. Var það litlu fyrr en siáttur hófst. Reiddi hann þá með sér amboðin, minnsta kosti orf og ljá. Hélt hann þeim sið lengi, eftir að allir vissu, að hann var hættur að bera ljá í gras. Eina kaupavinna Gvendar í mörg ár var að siá húsa- garðinn hjá Þórarni Þórarinssyni á Seljalandi í Fljótshverfi. Var hann að því eina til tvær vikur, að sagt var. Ekki lét Gvendur þess getið á öðrum bæjum, hve lengi húsagarðurinn stóðst á- hlaup hans, en hann þóttist mikill sláttumaður og kvaðst bæði höggva og renna í senn. „Á ég ekki að sópa af húsagarðinum, Þórarinn frændi"? var eftir honum haft. Á Seljalandi dvaldi Gvendur lengur en á nokkrum bæ öðr- um, og engum manni hældi hann til jafns við Þórarinn. Allan sláttinn var Gvendur á flakki um sveitirnar milli Sanda (Mýrdalssands og Skeiðarársands). Alltaf valdi hann sömu bæi til gistingar og var að venju eina til þrjár nætur á bæ. Við- komu hafði hann ekki á mörgum bæjum, sem hann ekki gisti. Heldur valdi hann úr efnaheimili til gistingar, einnig nutu viss- ar ættir hylli hans. Fátæklinga leit hann niður á, og heimskt fólk vildi hann hvorki heyra né sjá. Godasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.