Goðasteinn - 01.03.1965, Page 31

Goðasteinn - 01.03.1965, Page 31
Kampastaðir var það býlið, sem bezt var í sveit sett af hjá- lcigum Oddastaðar. Alllöng bæjarleið var heim á höfuðbólið, fiskisæl veiðivötn voru skammt undan garði, grösugar engjar lágu þar út frá túni. Menn hafa ekki gert það að gamni sínu að ganga burt af þeirri jörð. Sögnin um reimleikann er því líklega sönn. V Svo til í hverri sveit á íslandi eru til rústir eyðibýla, fleiri eða færri. Sum féllu úr byggð fyrir fáum árum, sum voru ból- staðir landnámsmanna og lengi höfuðból. Svo var urn Stóruvelli og Klofa í Landsveit. Af öðrum er því nær engin saga, svo sem Kampastöðum. Þó er eitt og hið sama um ö'l að scgj.t, þau cru leifar liðins tíma, nafn og minjar, sem ekki má að skaðlausu glata. Rústir gamalla eyðibœja má enginn bafa rétt til að eyðileggja. Allar tóftir eyðibýla cetti að friðlýsa og merkj i með nafm, böggnu í klett eða festu á steinlímdan varða. TILHALD Guðmundur Guðnason sveitardrengur á Minna-Hofi á Rang- árvöllum fór einu sinni til sóknarkirkju sinnar í Odda. Hann var þá að „byrja að vakna til lífsins“. Áður en hann fór til kirkjunnar, nuddaði hann sápu vandlega á hendur sínar. Þetta þótti undarlegt uppátæki, því sparlega var þá farið með sáp- una, eins og allt, sem þurfti að kaupa úr kaupstað, en Guð- mundur var ekki í vandræðum með skýringuna: „Ég geri þettn til þess, að hendurnar verði lyktarbetri og mýkri, þegar ég fer að heilsa stúlkunum við kirkjuna“. Af þessu tilefni var kirkju- ferð Guðmundar minnistæð. Guðmundur Skúlason frá Keldum Goðasteinn 29

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.