Goðasteinn - 01.03.1965, Page 38
feðgatali. Margt bar fyrir augu um daginn, þvt að fjölbreytni
gljúfranna er engin takrxiörk sett. Hins vegar er erfitt að lýsa.
þessari furðusmíð með orðum, og verð ég að láta nægja að
rifja upp fáeinar tölulegar staðreyndir, sem segja þó aðeins
hálfa sögu:
Gljúfrin eru á fjórða hundrað kílórnetra löng, og af þeim
eru um i6o km svæði nú þjóðgarður. Ncrðurbrún gilsins er
talsvert hærri en suðurbrúnin, eða um 2600 m á móti 2200 m
hæð yfir sjó. Á suðurbarmi gilsins var ég staddur í aðeins
meiri hæö en t. d. á Hvannadalshnúki á Öræfajökli. Breidd
gilsins að ofan er breytileg, og þar sem ég kom að því, er hún
víða 8-10 km. Frá giibrún niður að ánni er dýptin um 1500
m, eða sem svarar til hæðar Heklutinds yfir sjó. Loftslag, jurta-
grcður cg dýralíf er afar breytilegt í gijúfrunum, og má finna
flest gróðurbelti jarðar og annað eftir því.
Frá sjónarmiði jarðfræðinnar er gilið afar merkilegt, því að
í berglögum þess má lesa langa kafla í sögu jarðar betur en í
nokkurri bók. Út á það svið mun ég samt ekki hætta mér, held-
drepa iauslega á helztu kenningar fræðimanna um það, hvernig
Miklagil varð til: Fyrir meira en átta milljón árum rann Kolor-
adoáin á þessum sömu slóðum, sent þá voru láglendar sléttur.
Áðu.r höfðu sléttur þessar legið á mararbotni, og þess vegna
finnast víða steingerfingar skelja og annarra sjávardýra í efri
lögum Miklagils. Fyrir átta milljón árum var ekkert gil að ánni,
heldur bugðaðist hún þarna um sléttuna, straumlítil og hljóðlát
milli lágra bakka. En sakir einhverra ókunnra hræringa í jarð-
skorpunni, tók sléttan að rísa. Þessi hreyfing landsins upp á
við var afar hæg, svo að áin hélt sínum gamla farvegi að
mestu. Hinsvegar hamlaði hún gegn hækkuninni og fór að grafa
sig niður. Hafði hún þannig í fullu tré við landrisið, og sífellt
dýpkaði gilið. Um þessar mundir voru víða hræringar í jörðu.
Hófst þá m. a. myndun Klettafjallanna. Þessi þróun stendur
yfir enn þann dag í dag, þótt hún láti lítið yfir sér í fljótu bragði.
Þar sem áin nú veltur áfram í klettaþröngum í iðrum gilsins, hef-
ur hún grafið sig niður í dökkleitt forngrýti, sem mun vera eldra
en nokkurt annað þekkt berglag.
36
Goðasteinn