Goðasteinn - 01.03.1965, Side 61

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 61
bezta úr dreifbýli landsins, er þar fékk sinn vaxtarbrodd. - Þeg- ar nú Jón Halldórsson, sem stóð af sér veðrin, er allur, hefur stofninn fallið. Staðreynd er, að ys og þys hins stóra heimilis er nú að mestu hljóðnaður, foringinn fallinn. Hér er lokið merk- um og miklum kapitula í lífssögu stórs staðar. En sagan hlýtur að hefjast á ný. - Jón var fæddur að Suður-Vík, hinn 23. des 1883. Þau hjónin Halldór og Matthildur, eignuðust 4 börn. Elzt þeirra var Guð- laug f. 1881, dáin ógift 1926. Þá Jón fæddur svo sem greinir, Sigurlaug f. 1887, dáin 1907 og Ólafur Jón fæddur 1893. Hann kvæntist 1929 Ágústu Vigfúsdóttur frá Flögu, hinni mætustu konu, eignuðust þau tvær dætur, Matthildi og Ólöfu. Ólafur lézt 1934. Jón ólst upp í foreldiahúsum. Tók hann snemma þátt í hinni fjölþættu búsýslu í Suður-Vík bæði við landbúnaðarstörf og nokkra sjósókn, auk verzlunarstarfa, sem faðir hans var að hefja í Vík á hans unglingsárum. Gekk hann í verzlunarskóla og lauk þaðan prófi. - Að því loknu var hann aðalstarfsmaður verzlunarinnar og annaðist hana að mestu, því faðir hans var oft bundinn við margháttaða aðra umsýsiu, bæði við búskapinn, sem var mjög umsvifamikill, póstafgreiðslu og sveitarstjórnarstörf. - Jón stund- aði verzlunina af mikilli elju og kostgæfni og ávann sér snemma tiltrú og virðingu viðskiptamanna verzlunarinnar, sem voru marg- ir og víða að. Vinnutími var þá oft langur í verzlunum, en Jón lét ekki þar við nema. Flest kvöld sat hann við skriftir og reikn- ingshald heima og lauk ekki fyrr en gengið var til náða. Var líf hans allt fastmótað reglusemi í hvívetna. Vetur, sumar, vor og haust, fetaði hann sömu slóðina frá Suður-Vík út undir, eins og sagt var í daglegu tali, í verzlunina, alltaf á sama tíma, svo lítt skeikaði. Meðan faðir Jóns var enn á lífi gaf hann sig lítt að öðru en verzluninni en er hann lézt, árið 1926, skiptu þeir að nckkru með sér verkum bræðurnir Jón og Ólafur. Tók Ölafur að mcstu við rekstri búsins, en Jón hélt áfram rekstri verzlunarinnar cg t:ók við sveitarstjórnarmálefnum m. fl. Var með þeim hið ágrtasta samstarf og fullkominn einhugur. Færðust þeir margt í fang einlcum á sviði ræktunar, stækkandi bú- Goðastehm 59

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.