Goðasteinn - 01.03.1965, Side 79

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 79
tími til heilabrota, bara vinna, vinna af kappi að heyskapnum, því „stundarglöggur er slátturinn“ sagði gamalt fólk. Nýjar kenndir tóku að gera vart við sig, er halla tók sumri. „Tónaregnið táramjúkt“, „Lóan í flokkum flýgur“, „Sumardaga brott er blíða“ o. fl. í þeim dúr, tregablandinn söknuður, sum- arið var að kveðja. Inn á milli tregans og saknaðarins féll ein fagnaðarbylgja - fjallferð, réttir, Landréttir, höfuð- og raunar eina skemmtun ársins utan heimilis. Fátæk myndi hún að vísu þykja nú á öld hins mikla gleðskapar. Og óblandin var réttatilhlökkunin ekki. Kannske var úti mik- ið af heyi, og svo kom þurrkurinn daginn, sem átti að ríða í réttirnar. Þá þýddi ekki að tala um réttir. En ef þurrkur var um fjallferð og búið var að ná inn öllu heyi fyrir réttir, þá var líka ánægjan og hjartansgleðin tvöföld og réttaferð ekki eftir talin, sem annars gat komið fyrir. Svo kom haustið með kyrrð og frið og aukinn hvíldartím.i, nóg störf eigi að síður og áhyggjur fyrir vetrinum en engin glögg vegarmerki, fyrr en jólin nálguðust. Og nú reyndi á þetta: „Áttirðu sumar innra fyrir andann, þó ytra herti frost og kingdi snjó“? Og til var það hjá góðu og glaðværu fólki. En misjafn var sá auður, líklega misjafnari en nú? Ég veit það ekki. Með hjartans kveðju til æskuáranna. Guðlaugur E. Einarsson. Godasteinn 77

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.