Goðasteinn - 01.03.1965, Page 92

Goðasteinn - 01.03.1965, Page 92
Raddir lesenda Gcðasteini berast jafnt og þétt vinsamlegar kveðjur frá les- cndum. Athugasemdir hafa borizt varðandi einstaka atriði í síðasta hefti. Björn Guðmundsson frá Rauðnefsstöðum skrifar: „Ekki er það rétt hermt í Annál Markúsar í Hjörleifshöfða með hestinn hans Árna, sem úti varð á Gásasandi (Sbr. Njálu með nafnið á Laufaleitum 1868). Hesturinn fannst um haustið eftir í Brenni- vínskvíslinni, en hún er vestan við Mælifellssand, og frá henni er fjögra stunda ferð að næstu bæjum í Skaftártungu. Allbreið en lág alda er á milli Gásasands og Mælifellssands. Og þó hest- urinn hafi komizt yfir áðurnefnda kvísl, þá var Hólmsá miklu austar. Og á þessu svæði gat ekki verið um neinn haga að ræða, þvi þar eru eingöngu sandar og algróðurlausar melöldur, aðeins rápsnapir fyrir kindur að sumarlagi. Um þetta hefur verið skrifað. Merkast af því er máske ritgerð Guðmundar í Múla“. Einar Sigurfinnsson á Kirkjuvegi 29 í Vestmannaeyjum skrifar: „Goðastcin, 3. hefti f. á. þakka ég. Hann færir, eins og áður, ýmislegt til fróðleiks og skemmtunar. Vil ég þar nefna þátt Kjartans L. Markússonar um Álftaver og Álftveringa. Þar hitt- ir maður frændur og kunningja, sem vissulega mætti margt segja um, greiðvikna dugnaðarmenn og kjarnakonur. Þar var áning- arstaður cg oft gististaður okkar, sem bjuggum austan Kúða- fljóts, í ferðum til Víkur m. a. Ekki var það einungis grindin í húsið, sem sr. Bjarni Ein- arsson byggði á Mýrum, sem var af rekaviði, meiri hluti borð- viðar, a. m. k. ytri þiljur, var flettir plankar, einnig efni í hurð- 90 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.