Goðasteinn - 01.03.1965, Side 93
Ir og glugga. ÍVÍýrafjara vár rekasæl, og plankarekinn var mik-
ill með öllum fjörum.
Guðrún í Holti, móðursystir mín, átti víst oft erfiða daga.
Einar maður hennar var lengi heilsuveill og þoldi illa áreynslu,
en var kvikur maður og ólatur. Þegar Guðrún, eftir lát
hans, tók sig upp og fór vestur um haf með nokkuð af börn-
um þeirra, sem þá voru að mestu uppkomin, voru þrjár dætur
hennar giftar hér: Kristín, átti Elías járnsmið í Reykjavík, sem
dáinn er, en hún á heima á Frakkastíg 24. Jónína, átti Vigfús
Isleifsson á Flókastöðum í Fljótshlíð. Mun búa þar enn. Ein-
arína, var gift Magnúsi Sigurðssyni á Leirubakka á Landi. Hún
dó á bezta aldri frá mörgum börnum.
Einar Bergsson hét hann bóndinn á Mýrum, sem drukknaði 1
Kúðafljóti sumarið 1918, við selveiði. Kona hans var Jóhanna
Jónsdóttir frá Hemru.
Á Mýrdalssandi austan til, við veginn úr Álftaveri, útyfir, er
klettur um axlarhár. Hjá honum var hnullungssteinn - reyndar
voru þeir tveir - kallaður Latur. Aflraun var það að setja hann
upp á klettinn. Margir höfðu gaman af að reyna afl sitt á Lat
og vita, hvað hátt þeir gátu lyft honum. Sjálfsagt er Latur til
enn, líklega sjaldan hreyfður, því fáförult mun um þennan veg.
En væri ekki gaman að koma Lat á byggðasafnið? Þá gætu
Skógamenn o. fl. reynt að takast á við hann. Eldri Veringar
þekkja Lat og vita, hvar hans er að leita“.
Frú Elísnbet Arnadóttir, Aragötu /5 í Reykjavík skrifar: „Ég var
að enda við að lesa tímarit ykkar Skógamanna, mér til mik-
illar ánægju. Við hjónin höfum keypt það frá byrjun. Það flytur
margt, sem annars myndi glatast. Þar sá ég m. a. þáttinn um
Tómas Eyjólfsson í Gerðakoti. Faðir minn og Tómas voru syst-
kinasynir og mágar. Fyrri kona föður míns, Anna Sigríður, var
systir Tóinasar, Hákonar á Stafnesi og Snjólfs í Busthúsum. Þau
bjuggu í Landlyst, rétt hjá Gerðakoti. Faðir minn flutti að Gerða-
koti cftir lát Tómasar og bjó þar, þar til hann drukknaði fram
undan bæ sínum, ásamt fimm mönnum af heimilinu. Ástæðan
til, að ég rifja þetta upp, er sú, að faðir minn var með Tómasi
mági sínum þessa umræddu ferð, þegar franska skútan sigldi þá
Godastehm
9i