Goðasteinn - 01.03.1965, Side 95
Uppgjör vetrarins var á þessa leið:
Eg vil geyma mínar gleðiríku stundir,
ég vil gleyma því, sem mér var leitt og strítt.
Ég vil syngja, þar til sólin gengur undir.
Mér er sama þó að ár við bætist nýtt“.
Ávarp til áskrifenda
Goðasteinn þakkar öllum, sem veitt hafa honum brautargengi.
Eiga þar margir hlut að máli. Ritið á stóran og vaxandi hóp
tryggra áskrifenda og fórnfúsa umboðsmenn. Mörg fyrirtæki hafa
styrkt það með auglýsingum. Nokkrir aðilar hafa veitt beinan
fjárstyrk, svo sem áður hefur verið getið. Síðast en ekki sízt
skal þakka þeim ágætu mönnum, sem hafa látið ritinu í té frum-
samið efni til birtingar. Bíður nokkuð af því næstu hefta. Allt
þetta hefur tryggt Goðasteini líf í fjögur ár, og enn eru engin
dauðamörk á honum.
Þetta hefti lýsir því sjálft, að við höfum reynt að koma til
móts við óskir lesenda Goðasteins, hvað varðar breytta heftingu
og betri pappír, þótt nokkuð auki það útgjöld. Má þó segja, að
þar sé teflt á tæpt vað, því útgáfukostnaður hækkaði til muna
á síðasta ári.
Tvö hefti af Goðasteini munu koma út á þessu ári. Munu
þau verða nokkru efnismeiri en fyrri hefti. Verð þessa árgangs
höfum við ákveðið kr. 100,00. Vonum við, að fastir áskrifendur
greiði gjald sitt til umboðsmanna okkar eða beint til okkar
hingað að Skógum, eftir því sem bezt hentar, fyrir 1. júní þ. á.
Ogreidd áskriítargjöld verða innheimt með póstkröfu að upp-
hæð kr. 120,00 með hausthefti.
Við vonum, að Goðasteinn eignist marga nýja vini á þessu
ári og glati engum, sem hann á fyrir. Með alúðarþökk og beztu
kveðju.
Godasteinn
]ón R. H)álmarsson
Þórður Tómasson
93