Goðasteinn - 01.06.1977, Page 16

Goðasteinn - 01.06.1977, Page 16
En það mátti heita sérstök fræðigrein að kunna skil á legu vatn- anna og rekja sig eftir svonefndum brotum, þar sem grynnst var. Þá list hafa menn numið víðsvegar um land, þar sem svo háttaði tii og vötn voru víðast óbrúuð fram á seinni ár. Á þessari öld töpuðu tveir menn hestu.m í vctnin, niður um ís, annar fór í Markarfljót 1916 en hinn í Álana 1935. Lítilsháttar silaingsveiði var í Markarfljóti og Álum en ekki var það neitt stundað að ráði. Selur hélt sig talsvert við útfall Markar- fljóts og var farið einn eða tvo daga á sumri frá Brúnum, Tjörnum og Bakka í félagi að veiða selinn í nót. Stundum hittist á góðan feng, bæði fékkst af selnum lýsi og skæðaskinn og kjötið þótti all- gott úr salti, einkum af ungum sel en hreifarnir, þá jafnan kallaðir mákar, verulegt hnossgæti sem kunnugt er. Nú skal gerð grein fyrir ábúendum á Tjörnum og Brúnum eftir árið 1900: Loftur Guðmundsson, f. 1822, dáinn líklega fyrir 1910, mun hafa búið undir Eyjafjöllum um 50-60 ár, bjó í Seljalandsseli áður en hann fluttist að Tjörnum, en það mun hafa verið alllöngu fyrir aldamótin. Hann missti konu sína Vilborgu Þórðardóttur, en bjó eftir það með ráðskonu, Helgu Þorvaldsdóttur. Loftur var hag- ur vel bæði á tré og járn, hann fékkst m. a. við söðlasmíði. Hann varð geðveill í elli sinni, mun bú hans hafa sundrast 1906. Loftur bjó í vesturbænum á Tjörnum. Næsti ábúandinn í vesturbænum á Tjörnum var Bergsteinn Berg- steinsson frá Fitjarmýri, en hann bjó áður í Seljalandsseli. Berg- steinn var kvæntur Sigríði Tómasdóttur frá Svaðbæli, f. 1875 dáin 1927. Hann fór á vertíðir til Vestmannaeyja og var formaður á vélbát þar 1912 og fórst þar í vonskuveðri með skipverjum sínum, hann var fæddur árið 1877. Ekkja hans gift.ist Haraldi Jónssyni frá Vesturholtum, f. 1893 dáinn 1974, en Haraldur réðist ráðsmaður til Sigríðar nokkru eftir að hún missti mann sinn. Þau bjuggu í vesturbænum þar til Sigríður andaðist 1927. Haraldur kvæntist síðar Járngerði Jónsdóttur, systur Einars, sem þá bjó í austurbænum á Tjörnum. Hún var fædd 1891 og andað.ist sama ár og Haraldur, 1974. Þau. bjuggu á Tjörnum til ársins 1944, en fluttust það ár að Miðey í A-Landeyjum, þar sem þau bjuggu til ársins 1967, er sonur þeirra tók við búskapnum. 14 Goðasteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.