Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 40
ber og það hef jeg gjört líka og haldið dagbók ifir það, en eitt
þikir mjer vanta en það er að taka mind af Heklu meðan hún var
í mestum blóma, en það veit jeg aungvan gjöra, munu og vera fáir
sem kunna hjer nálægt-
Nú hlít jeg að biðja auðmjúklega forláts á þessari mælgji - með
farsældar og heilla óskum er jeg iðar margskuldbundinn
Oddur Erlenzson.
Utanáskrift: Herr Etatsraad, Professor, Gehe.imearchiwar
Dr. Philos. F. Magnussen R. Dbr.
D. brm. Kjöbenhavn.
,,Með síðustu skjipum". Bréf sem Oddur nefnir að hann hafi sent
haustið 1845 er ekki meðal bréfa Odds til Finns Magnússonar.
Finnur hefur skrifað á bréf Odds dags. 10. febrúar 1845 og bréfið
frá 27. jan. 1846: .,Svarað 24. apríl 1846.“
Um ,,Þingholt“ stendur þetta í bók dr. Haralds Matthíassonar: Rang-
árvallasýsla vestan Markarfljóts. Árbók Ferðafélags íslands 1966:
,,Fyrir vestan bæinn (þ. e. Flagbjarn'arholt), skammt frá ánni, er holt
er nefnist Þingholt. Þar eru mjög fornar tóftir. Taldi Sigurður Vigfússon
fornfræðingur, að þær væri alls 9, enn fremur hringmynduð hleðsla.
Talið er fullvíst, að hér hafi eitt sinn verið þinghald, en engar ritaðar
hcimildir eru um það. Þetta er þó undarlegt. Árn'esþing var fast austur
við Þjórsá gegnt efsta odda Árnessin's. Er því örskammt milli þingstað-
anna. Auk þess væri einkennilegt, ef Rangæingar hefði valið sér þing-
stað svo mjög út á jaðri héraðsins, enda var þingstaður þeirra að Þing-
skálum. Menn vita því alls ekki, hvernig á þessum búðatóftum stetdur,
en giskað hefur verið á, að Árnesingar og Rangæingar hafi upphaflega
átt þarna þing samciginlega, en er föst þingaskipan kom, hafi Árnesingar
sett sitt þing vestan við ána hjá Búðatossi, en Rangæingar að Þing-
skálum.“
Þúfu, 22 Febr. 1847.
Jeg þakka iður auðmjúklegast firir iðar góða brjef af 24. Apr.
f. á. ásamt meðfilgjandi bækur, „om indeling af dagens tider“ og
,,Antiqvarisk tidsskrift“ sem mjer voru mjög kærkomnar.
Nú kjemur loksins að því að jeg sendi iður ,,Dagskrá“ mína um
Heklugosið og bið iður forláts að jeg gat það ekkji firri, vegna um-
svifa og annríkja, og þar hjá varð hún stærri en mig varði þegar jeg
fór að hreinskrifa hana og gat þó ekkji innibundið það í færri orð-
38
Goðasteinn