Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 37
Jón bóndi Jónsson í Lúnansholti, i\ 1778, d. 19. okt. 1849. Foreldrar
hans voru séra Jón Jónsson í Fellsmúla 1786-1794, d. 1806 og seinni
kona hans, Ingibjörg Þorsteinsdóttir lögsagnara í Njarðvík Hákorrar-
sonar. Ingibjörg bjó í Lunansholti 1810-1817, en Jón sonur hennar
fyrrnefndur tók þá við búsforráðum, bóndi þar 1817-1850.
Jón bóndi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Þorvalds-
dóttir, f. 1787, d. 1815. Barnlaus. Seinni kona Jóns var Kristín Gísla-
dóttir, f. 1777, d. 7. maí 1853.
í Æviskrám PEÓl. stendur þetta um séra Jón í Fellsmúla: ,,Hann
var undarlegur í skapi og vanstilltur, heimilislífið mjög bágborið, enda
drykkfelldur, og kærðu 18 sóknarbændur hans hann' 1790, var honum
1791 fenginn aðstoðarprestur.“
Þúfu 10 dag Febr. 1845-
Hálærði herra Prófessor og Etazráð.
Fyrir bón og tilmæli heiðarlegs hreppstjóra Sgr. Gjísla Brinjúlfs-
sonar á Flagveltu legg jeg hér inn Grafminning eptir konu hans, sem
samin var við jarðarför hennar, sem heiðursverðrar Daindis- og
merkiiskvinnu, sárt saknaðrar af öllum viðkomandi skjildum og
vandalausum, rjett einsog minningjin ber ljósast vitni um, í þeirri
von og mcð þeim tilmælum að þér vilduð sína þá góóvild og veita
viðkomendum þá ánægju, firir sanngjarnt endurgjald að sjá til hún
irði prentuð í „Skírni" næst komanda; enda þótt við gétum nú
ekkji sent peninga þar firir, því við vitum ekkji prentunar kostnað-
inn, skulu þeir sendast með hvurjum iður þóknast, þegar þjer hafið
géfið mér ávísun þar um.
Menn eru farnir að óska að Jóns-lagabók kjæmi prentuð út frá
Bókmenta félaginu eptir elztu handritum sem máskje væru til er-
lendis, því hún er nú valla orðin til í landinu, nema hjá ifir völd-
unum og mundu margjir gjirnast hana ef út kjæmi frá fjelaginu, þar
ekkji er að iggja heldur að hún irði vönduð einsog allar bækur sem
frá því koma.
Með auðmjúkri forláts bón og farsældar óskum finst jeg iðar
þjenustu skjildugur og reiðubúinn:
O. Erlenzson.
Gísli Brynjúlfsson, bóndi og hreppstjóri í Flagbjarnarholti, var frá
Kirkjubæ vestri, sonur Brynjólfs bónda þar Stefánssonar. Gísli var fædd-
Goðasteinn
35