Goðasteinn - 01.06.1977, Page 42
að gjiltur sandur kjæmi úr Heklugosi, en um saltvatn eða rigningu
talar ritið og kann jeg ekkji þar um að segja fleira, og hlít jeg að
biðja iður velvirð.ingar á þessari lítilfjörlegu úrlausn spursmálsins
er jeg hefi ekkji haft færi á betur að afleisa.
Ekkji hefi jeg ennþá haft tækjifæri að semja Skjírslu um fornu
búðir Árnesinga til hlítar og verður það að bíða seinni tíma, eru
hjer fieiri fornmenjar en það, er vert væri að lísa. - Hjer með læt
jeg filgja bréf til hins Konungliga forrifrceðafélags er jeg bið iður að
koma til gángs, því jeg gaf ei um að koma því í annað brjef þar jeg
vissi iður vera einn af þess forstjórum.
Nú gjet jeg ekki verið að betla á iður með bækur, og er jeg þó
meðtækjilegur firir þær, en þjer eruð búnir að gjöra vel þó hjer við
lendti, enda viti þjer og betur en jeg að velja þær er fróðleikur mætti
í vera. Ef jeg mætti biðja nokkurs þá lángar mig til að eignast
„Vandringer i det hellige land“ ef hún væri föl, en jeg legg á iðar
vald hvurt þjer hugsið til mín með fróðleiks bækur, en frá forn-
fræða fjelagjinu mun jeg eptir leiðis fá það er út kjemur þar jeg hefi
gjörst þess hluttektar maður.
Að endíngu hlít jeg að biðja iður forláts á masi þessu og vil með
bestu óskum finnast iðar hávirðugheita
skuldbundinn einlægur vinur:
Oddr Erlenzson
Til
Herr Etatsrád, Professor, Geheime arkivar F. Magnussen,
R. af Dbr. i Kjöbenhavn.
Þetta er síðasta bréf Odds í Þúfu til Finns Magnússonar að ætla má.
Það er frábrugðið öðrum bréfum Odds til Fin'ns um tvennt. Hinu
formlega og hefðbundna ávarpi er sleppt og hann kveður Finn sem vin.
Oddur hefur líka sakn'að vinar í stað, þvf bréfin frá Finni hafa verið
Oddi kærkomin, svo og allar bókasendingarnar. Þar sýndi Finnur bónd-
anum í Þúfu mikla góðvild og greiðasemi. Líklegt er að Finnur hafi
hvatt Odd til að senda sér handritið að Dagskrá um Heklugosið með
útgáfu í huga, en af henni varð ekki, af ástæðu sem fyrr greinir.
Tcikning Odds af Hekiugosinu, sem er í lit í handritinu, er birt í bók
dr. Sigurðar Þórarinssonar: Heklueldar, útgáfa Sögufélagsins, Rvík 1968
40
Goðasteinn