Goðasteinn - 01.06.1977, Side 52

Goðasteinn - 01.06.1977, Side 52
í vinahópinn, en þá hittum við Ingibjörgu Scheving, sem komin var alla leið frá Seattle til að baka kleinur og vínartertur til að færa gestum og gangandi og kynna þann veg einn þáttinn í íslenskum matarvenjum. Foreldrar Ingibjargar eða Emmu eins og samborgarar hennar nefna hana, voru Valdimar Gíslason frá Akri í Húnavatns- sýlu og Ernstina Nicoline Skog- Hún var 8 ára,- þegar faðir hennar dó, og ólst síðan upp hjá Sigurlaugu Rögnvaldsdóttur frá Marbæli í Skagafirði. Ignibjörg er víst jafngömul öldinni, en ber það engan veginn með sér í útliti eða athöfn. Hún giftist Árna Scheving ættuð- um af Austurlandi. Er hann fyrir nokkru dáinn. Þriðjudaginn 22. júní unnum við Kristinn hörðum höndum að því að setja upp baðstofulíkanið að heiman undir tjaldhimninum, sem okkur var fenginn til umráða. Varð þar ýmsu við að auka, en alit komst þó í sómasamlegt lag undir lokin. Glaðasólskin var allan daginn og hafði ég ekki í annan tíma unnið í svo heitu veðri. Næsta dag kl. 11 hófst svo þjóðháttasýning okkar þremenninganna, og stóð til kl. 5. Bjuggum við vinnusvið okkar svo vel úr garði sem efni stóðu til, klæddum rúmstæði salúnsofnu ábreiðunum hennar Onnu frá Moldnúpi og settum upp fullunna hluti úr ull og hross- hári. Fyrir opnu tjaldi var svo unnið líkt og gerðist í gömlu sveita- baðstofunni, þar sem bóndinn kembdi ull í hendur konu sinni, svo hægt væri að þeyta rokkinn hvíldarlítið, og vinnumaðurinn - eða einhver annar - vann hrosshárið í hnappheldur, tögl og gjarðir. Þarna var vinnuskipting nokkur, því annað veifið greip Kristinn snælduna til að tvinna bandið eða kembdi og og lyppaði tog fram úr togkömbum og hrosshárið krafðist sinnar fjölbreytni í vinnu. Aldrei hef ég séð fínni þráð renna frá rokk en hjá Margréti Líndal og hélt hún vel uppi sæmd íslensku ullarinnar og formóður okkar, íslensku spunakonunnar. Mikill fjöldi manna gekk um hátíðarsvæðið daglangt og slitnaði sjaldan straumurinn framan við baðstofuna okkar. Þurftu ýmsir margs að spyrja um þetta framandi fólk og háttsemi þess, en við leystum úr eftir föngum. Öll menning er í rótum sínum alþjóðleg. Maður frá Perú, sem kom við hjá okkur og leit eftir hrosshársvinnu minni þekkti áþekk áhöld og háttsemi hjá Indíánum í Andesfjöll- um, og kom mér það raunar ekki á óvart. Annar gestur, sem sá mig 50 Goðasteinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.