Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 12
10
ÚRVAL
upplýsingum og gefi út fulla og
undanbragðalausa skýrslu um, hvað
þeir telji að gerst hafl.
Eða eins og stóð í The Guardian:
„Heimskautaflug er vandasöm list,
og mönnum verður á í messunni. En
til ætti að vera fullkomlega ömggt
kerfl, annað en skyttirí, til að herflug-
vélar geti gert flugmönnum borgara-
legra flugvéla ljóst, að þeir séu
komnir í óhelgi. Hvað fór úrskeiðis
með leiðarreikninginn? Var 121,5
megahertz bylgjan (neyðarbylgjan)
áreiðanleg eða ekki? Því fyrr sem
rússar svara þessum og þvílíkum
spumingum, því betra, því alþjóðleg-
ar aðgerðir geta verið undir svömnum
komnar. ’ ’ ★
^ -Ste.
7jv 7|v 7jv 7|v 7f* 7jv
UTANÚR HEIMI
Peningaprentstofnun Englands er að stómm hluta kynt upp með
seðlum sem þeir brenna.
L.M. Boyd.
í bæ í nágrenni Amsterdam reistu menn styttu af dreng nokkrum
sem enginn Hollendingur hafði nokkm sinni heyrt minnst á —
„Pétri.” Hann var hugrakki, litli hollenski drengurinn sem tróð
hendinni í gatið á flóðgarðinum og bjargaði þannig landinu frá flóði.
Sagan um Pétur er í rauninni amerísk uppfinning, en það vom svo
margir amerískir ferðamenn sem spurðu um Pétur, að hollending-
arnir ákváðu að hið eina skynsamlega væri að reisa styttu af honum,
honum til heiðurs.
Fataframleiðandi nokkur hafði efnast vel og ákvað að láta lífs síns
dýrasta draum rætast og stjórna hljómsveit. Hann leigði einn
trommuleikara, einn saxafónleikara og 33 fiðluleikara. Eftir fyrsta
samleikinn var stjórnunin svo slæm að trommuleikarinn stakk upp á
því við hina hljóðfæraleikarana að þeir hættu. „Nei, hann borgar
okkur vel,” sagði einn af fíðluleikurunum. „Auk þess hlýtur hann
að vita eitthvað um tónlist. ’ ’
Þeir héldu samleiknum áfram en stjórnandinn hélt engum takti.
Oskureiður trommarinn lamdi ákaflega á trommurnar. Stjórnandinn
klappaði til merkis um þögn starði á tónlistarfólkið og spurði: „Hver
var nú þetta?”