Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 119
117
ALLTAF ERU BRJÓSTIN
BEST
Á síðari árum hefur það færst æ
meira í vöxt að konur hefðu börn sín
á brjósti, eftir aldalanga tlsku að gera
það ekki. En er það betra heldur en
gefa þeim pela? Já, segir Akademía
bandarískra barnalækna, sem mæla
eindregið með brjóstamjólkinni,
nema sérstakar líkamlegar ástæður
hjá móður eða barni komi til.
Þeir hafa nýlega hafíð mikla
herferð fyrir brjóstagjöf og segja
meðal annars: Allir vinnustaðir ættu
að koma upp aðstöðu fyrir mæður til
að gefa börnum sínum brjóst, þar sem
þau eru í daggæslu. Á fæðingarstofn-
unum ættu mæður að fá að leggja
börn sín á brjóst strax er þau eru
nýfædd. Börn eiga að fá að sjúga
þegar þau sýna löngun til —
læknarnir eru á móti ákveðnum
stundatöflum til að fóðra börnin
eftir.
Vonast er til að barátta læknanna
hafi góð áhrif heima fyrir, en þeir
hafa lagt sig fram um að koma á
bættum brjóstaháttum í vanþróuðu
löndunum líka, þar sem of mikil
áhersla á þurrmjólk til dæmis hefur
valdið ónauðsynlega mikilli van-
næringu ungbarna.
Úr Chicago Sun Times.
AUMUR EN EKKIELLLÆR
Allt of oft er því slegið föstu, að
aldrað fólk sem hegðar sér einkenni-
lega, dregur barnalega rangar
ályktanir eða man illa, sé einfaldlega
elliært. En ef allar þær milljónir aldr-
aðra, sem við erum að ergja okkur yfír
eða hlæja að, er einfaldlega afgreitt á
þann hátt án þess að kanna
ástæðurnar nánar, er verulegur hluti
þess sviptur því sem við köllum eðli-
legt og nytsamlegt líf. „Næstum því
vikulega,” segir öldrunarfræðing-
urinn Richard W. Besdine hjá lækna-
skóla Harvard, ,,fæ ég öldung til
meðferðar — sjúkling, sem kallaður
er elliær, en á verulega batavon með
réttri lyfjameðferð.
Með nákvæmri rannsókn má
komast að því, hvort sjúklingurinn er
raunverulega orðinn ær af elli eða
hvort eitthvað annað framkallar þessi
einkenni. Þar kemur margt til greina:
Bólgur, slök starfsemi nýrna eða
lifrar, ofnæmi fyrir lyfjum og ýmis-
legt fleira, sem kemur fram í brengl-
aðri hugarstarfsemi. Gamla fólkið
okkar á skilið að vera rannsakað og
metið vandlega, ekki bara skákað út í
horn sem elliæru. King Features
VARIÐ YKKUR Á VESKINU
I mars hefti Úrvals var sagt frá