Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 55
UNDRALAND DARWINS
53
hefur hann varpstöðvar. Og kaldur
Humboltsstraumurinn, sem leikur
um strendur eyjanna, gerir það að
verkum að mörgæsir þrífast þar mjög
vel, þótt innan við kílómeter sé til
miðbaugs.
Risaskjaldbakan, sem eyjarnar
draga nafn af (spánverjar kalla hana
galaþagó) hefur þróast á mismunandi
vegu á hinum ýmsu eyjum. A
Espanola eyju, sem er afbrigðilega
þurr, og lægstu laufin og kaktus-
blöðkurnar eru að minnsta kosti
rúman meter yfír jörð, hafa skjald-
bökurnar lengri fætur og skelin er
með háan, uppsveigðan kraga svo
dýrið geti teygt sig upp í matinn. Á
Santa Cruz, sem eru verulega votari,
er þéttur lággróður, sem skjald-
bökurnar geta naslað sig í gegnum án
þess að lyfta höfðinu. Þar eru
skeljarnar lágar allt um kring og dýrið
getur aðeins hreyft hausinn til
hliðanna meðan það nagar sig leiðar
sinnar gegnum gróðurinn.
Það var vegna áhuga á þessu og
öðru athyglisverðu lífi á Galapagos,
og því sem gert hefur verið til að
tryggja eðlilegt líf tegundanna, sem
við vorum í þessari flugvél sem kom
skoppandi inn á ósléttan flugvöllinn
á Baltraeyju. Þar réðum við frönsk
hjón, Max og Mariu Teresu Christen
til að flytja okkur á bátnum sínum,
rammgerðum 34 feta bát sem í senn
var fiskibátur og lystisnekkja, yfir til
Santa Cruz eyju, þar sem Darwin
rannsóknastöðin er.
Eftir tveggja stunda siglingu út af
Baltraflóa var sólin komin lágt á loft
og Max varpaði akkerum til nætur-
innar í lítilli vík. Mikilúðlegir svarrir
basalthraunklettar risu þverhníptir á
þrjá vegu, og uppi á þeim stóðu
draugalegar skuggamyndir
kaktusanna eins og verðir. Klettarnir
o Galápago;
Islands
•cuador
Bgl/ðtor
Punia £spinosa>
Fernandina
Isabela
Risaskjaldbökurnar frá Espanola eyju
eru háfættar og skjöldurinn sveigist
upp á við í hálsmálið til þess að þær
hafi tök á að ná sér í gróðurinn,
sem ekki er að hafa fyrr en í
rúmlega meters hæð.
0 BO
t=osœ=ra=Bl
Mites
San Salvador
Baltra
Rábidá "J\
■'- Santa Cruz
''Puerto Ayofö
j Santa fe
Chartes Datwin'
>. Basautch Stðtion .
San Crístób
% Pinta
Marchena
Genovesa
Espíthola
Sama (VTarí