Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 126
124
ÚRVAL
stað gátu þau ekki gert sér í hugar-
lund, hvað hefði gerst. Allt í kring
um fallinn ræningjann var snjórinn
sundursparkaður, troðinn og
blóðugur. Brotið byssuskefti lá þar í
flísum. En maðurinn, sem drap
varúlfinn hafði horfið á braut án þess
að taka með sér hina verðmætu veiði.
Þetta var óskiljanlegt og þess vegna
óttalegt.
A sama tíma lá Ivan Vjatsovoj á
hérðassjúkrahúsinu vafinn frá toppi
til táar eins og múmía, Aðeins sást í
annað augað út úr vefjunum, hvasst
með grænleitum blæ.
„Sasja,” sagði hann með erfiðis-
munum við Júrkin, ,,viltu gera það
fyrir mig að fljúga þangað aftur?
Leitaðu að hlaupunum í snjónum. Ég
ætla að gera við byssuna. Ef til vill
þarf ég enn á henni að halda ein-
hverntíma...” ★
„Allir sem ég þekki í skemmtanaiðnaðinum hafa gifst minnsta
kosti tvisvar, þrisvar sinnum. Ég hef átt sömu konuna í fimmtíu ár.
Hvað er eiginlega að mér?
Henny Youngman
Leikari, sem lék með Laurence Olivierí Othello, sagði frá því síðar að
ein sýningin hefði tekið öllum öðrum fram. Meðleikarar Oliviers vom
orðnir því vanir að hrífast af honum á sviðinu, en þetta kvöld var svo
óvenjulegt, að á eftir stóðu þeir þöglir að tjaldabaki, eins og eitthvað
alvarlegt hefði gerst.
Þegar Olivier hafði hneigt sig í síðasta sinn, og meðan
leikhússgestir vom enn að fagna honum með dynjandi lófataki,
skálmaði stórleikarinn til búningsklefa síns milli tveggja raða
meðleikara, sem einnig klöppuðu honum lof í lófa. Hann lét sem
hann sæi þá ekki og skellti hurðinni á eftir sér. Eftir nokkra bið barði
einhver dyra hjá honum og sagði: ,,Hvað er að, Larry? Þetta var
stórkostlegt!” Eftir örstutta stund barst þmmandi rödd hans út í
gegnum hurðina: ,,Ég veit að það var stórkostlegt, djöfullinn eigi
það! En ég veit ekki hvernig ég fór að því, svo hvernig í ósköpunum
get ég gert það aftur?”
Carl Sandburg var eitt sinn beðinn að staðfesta orðsveip þess efnis, að
tímarit nokkurt hefði ráðið hann til að yrkja enn eitt ljóð í Chicago-
ljóðaröðina sína. Hann svaraði:
,,Að skipa manni að yrkja ljóð er eins og að skipa óléttri konu að
fæða rauðhært barn. Það stendur ekki í mannlegu valdi — það er guð
einn, sem ræður.