Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 8
6
ÚRVAL
reyndu hvað eftir annað að ná
sambandi við flugmennina á litlu
þotunum. En þeir fengu engin svör.
Vélin út af hægri vængnum hélt
þeirri stöðu í að minnsta kosti tíu
mínútur.
Svo beygði hún af leið, út í ljósa-
skiptin og skýin. Allt í einu heyrðist
dumbur skellur á vinstri hlið Boeing-
þotunnar. Fast á eftir brá fyrir snögg-
um, skærum ljósbjarma og ærandi
sprenging kvað við. Rauðheitar
málmflyksur fleygðust um vélina
utanverða og rifu göt á hana, frá
naglastærð upp í göt á stærð við
melónu. Málmbrot þeyttust um
afturhluta farþegarýmisins.
Choi Bong-ki, deildarstjóri í stóru,
kóreönsku verlunarfyrirtæki, hafði
hallað sér fram til að skrifa þýðingu á
myndavélarleiðbeiningum fyrir
samferðamann í sætinu fyrir framan.
Það bjargaði lífi hans. Málmbútur
þeyttist inn um gluggann við hlið
hans og særði hann lítillega á
hnakkanum. Hefði hann hallað sér að
sætisbakinu, hefði hún sneitt ofan af
höfði hans frá gagnaugum. I sæta-
röðinni fyrir framan bjargaðist
japanskur ferðamaður af því hann var
með þykkt kúrekabelti, sem stöðvaði
málmflís á stærð við byssukúlu.
En tveir samferðamannanna voru
ekki svona lánsamir. Bang Tai-hwan
hafði risið upp úr sæti sínu til þess að
ræða við kunningja sinn. Nú lá hann
deyjandi í ganginum milli sæta-
raðanna. Það vantaði ofan á höfuðið á
honum. Yoshitaka Sugano, kaffi-
hússeigandi í Yokohama — sem
nokkrum andartökum áður hafi haft
sætaskipti við eldri bróður sinn — féll
máttvana saman, særður banvænu
sári gegnum olnboga, brjóst og niður
í hné. Málmbrotin særðu 13 manns í
vélinni, suma alvarlega.
Óopinberar sovéskar heimildir
segja að ráðamenn í Moskvu hafi
óttast að í Boeingvélinni væru
rafeindatœki til njósna, og að vélinni
yrði bráðlega sveigt til vesturs svo hún
slyppi út yfir finnsku landamcerin.
Samkvœmt þessum heimildum
reyndu flugmennirnir á herþotunum,
hljóðfráum þotum af gerðinni Sukhoí
Sú 15s, árangurslaust að hafa
radíósamband við Kóreumennina.
Þeir fengu skipun um að ,,neyða
flugvélina með skotum til að lenda,
en færa hana til lendingar íþví ásig-
komulagi að hœgt yrði að rannsaka
hana gaumgæfilega. ”
Þessar fullyrðingar eru í meira lagi
vafasamar. Milli klukkan 6.35 og
6.41 tóku upptökutæki í flug-
turninum í Rovaniemi í Finnlandi
upp þrjár tilraunir Kóreumannanna
til þess að ná sambandi við sovésku
vélamar, en segulböndin sýna engar
tilraunir til radíósambands af rúss-
anna hálfu.
Svo virðist, sem það hafi verið eld-
flaug, sem rússarnir skutu að Boeing-
vélinni. Sprengingin stórskemmdi
væng og bol vélarinnar, Boeingvélin
valt ákaflega og stakkst svo á nefið og
tók að hrapa úr 35 þúsund feta hæð.