Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 14

Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 14
Framhlið höfuðsins gengur í gegnum örstutt breytingaskeið, lokuð augun opnast og stara stingandi út í bláinn, augabrúnirnar lyftast biksvartar, slangan opnast og út skýst stór buna, langdregið öskur aftan úr iðrum forneskjunnar. í gatinu sjást skörðóttir ryðbrúnir tanngarðar. Hægri höndin rykkist útfyrir borðbrúnina að vinstra brjósti, nemur þar staðar andartak; bíður kreppt og spennt; þeytist fremst á sverum armi meðfram borðplötunni í stórum hring útfrá siginni öxl að diskunum sem hendast af stað, ýtast að bollum og undirskálum; höndin slengist í bollana, ryður öllu af stað. Kartöfluhýðið dettur úr skálinni og verður eftir á borðinu þegar borðbúnaðurinn skellur á flísalögðu gólfinu í þúsund molum; kurl sem korna öll til grafar. Kjökrandi starir konan út í bláinn og fettir enn varirnar meö máttlausa hönd teygða fram og nokkuð til hægri út við ystu rönd borðsins sem nú er autt að undanskilinni hönd og hýði. Konan lyppast saman líktog höggvið sé á hrygglengjuna, höfuðið dettur frarn á hina höndina, það sést niður á þykkar herðar hennar holdugar sem hristast innanundir rósóttum þunnum kjól. Sífur og snökt í armæðustíl leysir brothljóðin af hólmi. í loftinu blasir við spenna, barátta, þrá. Konan grætur um stund í hljóði sem þó heyrist; rofið af mislöngum andvörpum á stuttum óreglulegum fresti. Smárn saman bætist við taktfast suð sem við athugun reynist stafa af sífelldu iði hægri fótarins svo lærin núast saman í klúrum takti. Hún er í dökkbrúnum nælonsokkum, kjóllinn nær fram að bólgnum hnjám og sér í gild læri sem ná ekki sarnan nerna kannski undir kjólnum. Þessi kvenmynd er varla annað en hrúgald á stól. Mynd sem rís von bráðar upp, lítur yfir tómt borðið; um slönguendann læðist bælt bros; í dökkum augunum er hvorki svipur né sjón; ennið er slétt, í meðallagi hátt, hálfhulið líflausum hárlokkum. Konan snýr til dyra, gengur þangað stolt, í gegn. Eftir stendur dæld í setunni. Konan líður hnakkakert að sófa, sest, horfir beint fram fyrir sig, leggst, sofnar. Maður gæti haldið að hana dreymdi háan mann með svart hár og brún augu og heit faðmlög og ljúfar samfarir. En konuna dreymir skít, endalaust haf af brúnum skít, harðan skít og linan skít og sparðaskít og fljótandi skít sem hún veður hamingjusöm 12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.