Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Side 22
losna við úr frásögninni þar sem þær eru ómissandi fyrir hana.
Þegar leikkonan Barbara Bel Geddes ákvað að hætta að leika í
Dallas varð að fá aðra í hennar stað, því án ættföðurs eða móður
til að sameina fjölskylduna, hvað var þá til að halda saman hinum
andstæðuog stríðandi bræðrum J.R.og Bobby? Ogvið dauðaBobby,
sem var nauðsynlegur vegna leiðinda leikarans á ímynd hins
sykursæta bróður, sáum við greinilega hvernig hlutverk persónanna
í frásögninni virkar. í vikunum rétt fyrir dauðann var nokkrum
persónum gefið aukið vægi svo þær gætu keppt við J.R. Bobby
hafði haft eiginleika hins góða og heiðarlega bróðurs en heilindi
hans voru ögrun við sameiningu fjölskyldunnar þar sem hann
hafði gifst inn í samkeppnisfjölskyldu. Allt í einu var þessum
eiginleikum dreift á ýrnsar persónur, nýr Ewing-karl kemur til
sögunnar, Ewing-kona giftist inn í sörnu samkeppnisfjölskylduna
og Ray Crebbs er lyft upp og gerður að fullgildum Ewing með
heiðarleika og góðmennskueiginleika Bobbys.
Fjölskylduvandamálamyndir fjalla aðallega um ástarsambönd,
hjónabönd, einingu fjölskyldunnar, átök innan fjölskyldunnar,
sundrungu fjölskyldunnar sem venjulega verður vegna hnignunar
sem kernur fram vegna utanaðkomandi áreitni eða vegnauvandamála
nútímakonunnar". Sagan sem sögð er reynir sem mest að vera
hversdagsleg. Hún inniheldur ekki flóknar þrautir eða yfirnátt-
úrulega atburði, eins og bandaríska skopstælingin á sápu-óperum,
Soap (Löður), þar sem ein aðalpersónan var flutt með fjarhrifum
yfir í geimskip í rniðju fjölskyldurifrildi. Og fjölskyldu-
vandamálamyndir takast ekki á við stjórnmál, vinnustaðaerjur
eða þjóðfélagsvandamál nema þau snerti fjölskylduna beint.
Bæði í Dallas og Dynasty eru einstakar fjölskyldur upphafnar
sem fulltrúar allra fjölskyldna. Bæði Ewing og Carrington
fjölskyldurnar eru upphafnar með gífurlegum auði en þrátt fyrir
það snúast þættirnir um vandamál nútímafjölskyldunnar. Átök og
vandamál koma fram vegna andstæðna í sögunum. Það er síðan
hlutverk persónanna að taka á sig einn eða annan þátt and-
stæðnanna. Andstæðurnar í fjölskylduvandamálaþáttum eru oftast
uppreisn/íhaldssemi; lauslæti/trúmennska; góða móðirin/vonda
móðirin; góði sonurinn/vondi sonurinn eða góða dóttirin/vonda
dóttirin; yfirstétt/lágstétt; barátta urn arf eða erfðir. Þessi efni
20