Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 43

Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 43
ekkert við mig virða, heldur mun hann drepa mig, svo sem annan kvenmann, ef eg legg af mér vopnin og geng til hans verjulaus, svona eins og eg stend. Það tjáir ekki að hjala við Akkilles ofan úr einhverju tré eða ofan af bjargi, svo sem meyjar og sveinar hjala hvort við annað. Nei, það er best að láta skríða til skarar; við skulum bráðum fá að vita, hvorum okkar Ólympsguð vill veita sigurinn." (II.:43 8-440) Þrátt fyrir þessa ákvörðun flýr hann undan Akkillesi, að vísu ekki inn í borgina, heldur hleypur hann í kringum hana. Þegar hann hefur fengið banasárið reynir hann líka samningaleiðina, biður Akkilles að þyrma líki sínu, en án árangurs. Að mínu mati sýna dæmin hér að framan hvernig hetjuskap- urinn er ætíð á mörkum fífldirfsku og bleyðuskapar en benda einnig til þess að hetjurnar séu við vissar aðstæður neyddar til að taka sómann fram yfir allt annað. Þær verða að axla ábyrgð á eigin mistökum og er það ójúft. í tilviki Akkillesar er þessu örlítið öðru vísi farið. Þegar sendisveit Agamemnons ber honum sáttarboð í níunda þætti segir hann: Gyðjan, hin silfurfætta Þetis, móðir mín, segir, að tvennar Vaikyrjur leiði mig til dauðans; ef eg verð hér kyrr eftir og berst hjá borg Trójumanna, þá á eg aldrei heimvon aftur, en þá mun eg öðlast ævarandi orðstír; en ef eg fer heim til minnar kæru föðurjarðar, missi eg hinn fræga orðstír, en ævi mín mun þá verða löng, og algjörlegur dauði ekki ná mér svo fljótt. (II.: 177) Akkilles veit að hann verður að velja milli sómans og langlífis en munurinn felst í að hann ber ekki sjálfur ábyrgð á þessum aðstæðum. Hann reynir sitt ítrasta til að finna einhverja lausn og sú er ein að allur herinn sigli heim, allir séu sömu lítilmennin. Akkilles fitjar líka upp á þeirri tillögu við sendimennina: Nú vil eg ráða hinum öðrum til að sigla heim aftur, með því yður mun ekki hér eftir auðið verða að vinna hina hávu Ilíonsborg, því hinn víðskyggni Seifur heldur hendi sinni yfir henni, og borgarlýðurinn er hughraustur. (II.: 177) 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.