Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 46
gælir við að bjarga Hektori frá forlögunum. Allir verða að þekkja
takmörk sín og lúta því sem er þeim máttugra. Annars fátítt
æðruleysi Heru í áttunda þætti er til fyrirmyndar þegar hún segir:
„Drepist þeir, sem drepast eiga, og lifi þeir, sem þess verður
auðið." (II.: 159) Stúlkan í íslensku þjóðsögunni hefði bætt við:
ltMér og mínum að meinalausu."
Boðskapur kviðanna
Það ætti að vera orðið nokkuð ljóst af umfjölluninni urn róman-
tíska viðhorfið að það tengist á margan hátt húmaníska viðhorfinu
þar sem spurt er um siðferðilegan tilgang höfundar. Persónur
verks eru jafnan verkfæri I höndum höfundarins þannig að allt
sem sagt er um persónurnar má að einhverju leyti rekja til þess
hugar sem liggur að baki verkinu. Það veldur hins vegar ákveðnum
erfiðleikum í sambandi við Hómerskviður að margir fræðimenn
telja þær samsteypuverk, jafnvel verk margra skálda sem auk
þess hefðu mótast á vörum þeirra söngmanna sem varðveittu þær
um aldir. Þar með gæti öll umræða um boðskap höfundar verið
giska marklaus.
Þrjóskist menn engu síður við, og það geta þeir gert með því
að fjalla urn boðskap Hómerskviða fremur en skáldsins Hómers,
þá kernur fljótt í ljós að þær bjóða heim ólíkum og jafnvel and-
stæðum túlkunum. Þegar hefur reyndar verið ýjað að einum túlk-
unarmöguleika, þeim að kviðurnar boði mönnum að þekkja takmörk
sín. Á hofi véfréttarinnar í Dell'í stóðu þessu frægu orð: nÞekktu
sjálfan þig," og þótti sú dyggð miklu verð í grískri menningu.
Enda þótt hæfileikar og dugur manna séu guðs gjafir þá er undir
þeim sjálfum komið að nota þær skynsamlega en ofmetnast ekki.
Yfirleitt er lögð áhersla á tvö forngrísk hugtök í þessu sambandi;
hybris, það er hroki og ofstopi, og sofrosyne, það er stilling og
veglyndi. í Ilíonskviðu gerast menn oft sekir um hið fyrrnefnda;
hún fjallar að meginefni um „hina fársfullu heiftarreiði Akkils
Peleifssonar, þá er olli Akkeunt ótölulegra mannrauna". (II.: 1)
Agamemnon gerir sig sekan um hybris í garð Akkillesar þegar
hann sviptir hann sæmdargjöfinni en Akkilles verður sekur um
hybris þegar hann tekur ekki sáttaboði Agamemnons. Þegar hefur
að nokkru verið rakið hvernig vanþekking manna á takmörkunum
44