Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 64
Einmana kom út á íslensku 1983: Lónu, tæplega 18 ára skóla-
stúlku, er rænt af Tom sem sökum peningaleysis lætur leiðast út
á glæpabrautina. Þau hrífast hvort af öðru og hann bjargar henni
frá höfuðpaurum ránsins. Hinn strangi faðir Lónu deyr úr hjarta-
slagi við þetta áfall og Lóna erfir allar eignir hans. Lóna verður
ófrísk eftir Tom sem alltaf er í felum fyrir lögreglunni, en það
kemur í ljós að hún er haldin sjúkdómi sem getur kostað hana
og barnið lífið. Frændi Lónu, Róbert, vill fá sinn skerf af arfinum
og hefnir sín á henni með því að segja til Toms. í fangelsinu
kemst Tom á snoðir um sjúkdóm Lónu og flýr til hennar. Þegar
læknirinn gefur meiri von gefur Tom sig fram, situr sinn dóm
og kemur til baka þegar Lóna er búin að eignast barnið og læknast
af sjúkdómnum.
Allir eru ógiltir í verinu kom út 1974 og segir frá Jóhönnu
sem erfir rnikil auðæfi eftir afa sinn og lendir í sollinum í
Reykjavík. Hún flýr þaðan vestur á firði í leit að tilbreytingu og
föður sínum. Þar kynnist hún Jonna, verður ástfangin og allt gengur
vel en þegar upp kemst um auðæfin finnst Jonna hann hafa verið
svikinn og Jóhanna hverfur aftur suður frá sex hálfsystkinum,
föður og draumaprinsinum. Þar gerir hún heiðarlega tilraun til að
eyða þessum peningum og finna sér fótfestu í lífinu. Þegar það
er að takast birtist Jonni í samningahugleiðingum og honum er
tekið með opnurn örmum.
Hár og herðabreiður, lítil og grönn
Rosalind Brunt kemst að þeirri niðurstööu*) eftir að hafa skoðað
nokkrar bækur eftir Barböru Cartland að aðalkostir kvennanna í
bókunum séu eðlishvöt, innsæi og tilfinningasemi, allt kostir sem
auðvelt er að fella að þörfum karlanna. Örlög kvennanna er ást
á einum karlmanni burtséð frá því hvort þær telja sig frjálsar
eða menntaðar. Kynhvöt þeirra er í dvala þar til þeim eldri og
reyndari karlmaður vekur hana upp. Fyrir vikið verða þær virtar,
dáðar og í uppáhaldi hjá karlmönnum. Til að undirstrika þessar
dyggðir setur Cartland eina illa konu með sem ekki getur státað
af þessum eiginleikum. Karlmenn eru aftur á móti í eðli sínu
hellisbúar og daðrarar sem uppá eigin spýtur geta ekki barist
við eðli sitt. Þá kemur til kasta konunnar: Með andlegum hreinleika
62