Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 67

Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 67
En það sem Jóhanna vissi ekki, var að hún hafði sérstak- lega stóran skammt af því sem flest laglegt fólk hefur ekki, þessu því sem gerir það að verkum, að eftir skamma viðkynn- ingu er venjulegt og jafnvel ófrítt fólk fallegt í augum þess sem það er að tala við. Hún hafði sérstakan persónuleika og mikið skap, en að það væru einhverjir kostir, var hún alls óvitandi um.4) Ég hefði gjarnan viljað sjá og finna meira fyrir þessu mikla skapi í samskiptum hennar við Jonna; hún hefði t.d. mátt beita því þegar hann hættir, sökum peninga hennar, að tala við hana án þess að gefa henni kost á að svara fyrir sig. Jonni er vöðvastæltur verkamaður eins og flestallir karlmenn í sögum Snjólaugar. Hann er sjómaðurinn með veðurbarða andlitið og mýstíkina sem gerir hann umyrðalaust að sjarmör staðarins. Hann er „yfirþyrmandi" og hagar sér oft við Jóhönnu eins og hún sé barn (hann er samt ekki eins slæmur með það og John hjá Cavling). Hún fer suður eftir sambandsslitin með skottið á milli fótanna og reynir að eyða þessum peningum sem stungu sér upp á milli hennar og Jonna. Núna er kveikt á Jóhönnu, hún vinnur eins og brjáluð manneskja og tekst nær því að gleyma drengnum. En leið virkninnar er ekki leiðin að hamingjunni, eins og þarna er ýjað að, heldur er það karlmaðurinn sem er búinn að brjótast á bíl í desember vestan af fjörðum til að ná í elskuna sín sem fellur umyrðalaust í fang hans við fyrstu ástarjátningu. Þetta er ein leiðin til hamingjunnar. Eins og sjá má af framansögðu er dæmigerð kona í ástarsögu lítil, falleg, saklaus, ung og gersamlega óvirk í öllu því sem viðkemur ástarsambandinu, því nkonur eiga ekki að ákveða, taka og fá heldur bíða, vona og loks eftir langa mæðu, láta nerna sig á brott."5) Karlmaðurinn er eldri en konan, fallegur, hár og herða- breiður, dularfullur, fullur af reynslu og sá sem hefur úrslitavaldið í sambandinu. Ævintýri fyrir fullorðna Formúludægurbókmenntir, eins og þessar ástarsögur sem ég skoðaði, líkist mjög ævintýrunum gömlu góðu; passi allavega vel inní þau líkön og kerfi sem sett hafa verið fram um þau. 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.