Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Side 86
fermetrar. Hins vegar setja fjörutíu millimetra þykkar hvítar
flísar sem ná upp á miðja veggi svolítið strik í reikninginn að
neðan. Það þjónar samt sem áður tilgangi sínum mætavel: að rúma
baðker, vask, ofn, klósett og tvo skápa fyrir handklæði og
þessháttar undir vaskinum og skilur eftir nóg pláss fyrir hana
að snúa sér við. Það er aðeins einn útveggur og á honum gluggi,
einn metri á breidd og einn metri komma tuttugu á hæðina. Það
er enginn sólbekkur eða eiginleg gluggakista, heldur tekur stór
og mikill ofninn við hlutverki þeirra. Hann nær frá gólfi og upp
að glugganum og er fimmtán sentimetrum breiöari en hann í hvorn
enda. Ofaná honum liggur hvítmáluð fjöl, hundrað og fjörutíu
sentimetra löng, tuttugu sentimetra breið, þykktin hálftomma.
Þar ofaná er síðan raðað hinum ýmsu nauðsynjum. Svitalyktareyðir,
klósettpappír, auka sápustykki og ókennileg kremdós standa í
noturri þyrpingu á öðrum enda fjalarinnar. Hárbursti og svampur
hvíla sig á hinum. Fyrir glugganum hanga tjöld úr vaxbornu lérefti
á stöng sem spennt er innaní umgjörðina. Einsog fjölin, sápan
og allt hitt nema hárburstinn, eru þau hvít. Burstinn er eiginlega
sérstakur kapítuli þarna inni. Skærgrænn með rauðu gúmmíi. Svo
hrópandi er ósamræmiðað við liggur að heppilegast sé að leiðahann
algerlega hjá sér, sem og flestir gera.
Niður að gólfi. Það er þakið hvítum flísum, samskonar og þeim
sem límdar eru á veggina og utanvert baðkerið. Fjórða hver flís
er skreytt mynd af fjöður. Einföld mynd af svörtum strikum.
Útflött fjöður og greypt í leirinn einsog steingerfingur. Baðkerið
er hvítt og kranarnir krómaðir. Vaskurinn er vitanlega sama
vörumerki og kerið og skápurinn undir honurn er hvítlakkaður
með hitabeltishurðum. Tveimur hitabeltisrimlahurðum. Þar fyrir
ofan hangir svo spegillinn. Hékk. Hún braut hann. Brýtur hann.
Græni hárburstinn, ósamræmið sjálft, er látinn brjóta hann. En
ekki að ástæðulausu. Hún hefur ástæðu. Hvaða? Hún hefur ástæðu.
Hefur ástæðu. Hefur.
Sannanir. Við viljum sannanir. Hvað er það þá? Flísarnar?
Hvítar flísar með fjöður í annarri hverri röð? Tannkremið búið?
Awacsvélin sem á sama andartaki sveimar yfir vestfjörðum?
Foreldrarnir? Skólinn? Félagarnir? Spegillinn? Eða kannski rnyndin
í speglinum? Tæplega neitt af þessu. Kannski allt. Líklega veit
hún það ekki einusinni sjálf, svo hvað erum við að tuða. En
84