Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 96

Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 96
maður þarf að ímynda sér, því það er grundvöllur ímyndunar- innar sem hér er lagður) þessa reynslu af vöntuninni sjálfri sem rökréttan undanfara veru og sjálfsvitundar - sjálfrar veru sjálfsvitundarinnar - þá skilur maður að úrkast, og jafnvel enn frekar úrkast sjálfsins, er eina táknmið hennar. Hún á sér ekki aðra táknmynd en bókmenntir. Dulspekileg kristni breytti þessu úrkasti sjálfsins í fullnaðarsönnun fyrir auðmýkt gagnvart Guði.6) Hið ómögulega verður enn sterkara í þessum draumi eftir að konan hefur reynt að samsama sig bæði því góða og illa, og sér að það eru ekki andstæður, heldur tvær hliðar á öðru sjálfi hennar sem líka vinnur gegn barninu; svo algert verður það ómögulega að um leið og konan lamast fyllist hún hryllingi og viðbjóði á göfgaðri mynd sinni. Hún er hvorki sjálfsvitund né viðfang og við þessa sáru reynslu af aðskilnaðinum skynjar hún að til að hún lifi verður hún (barnið) að deyja. í þessum draumi hefur hún reynt án árangurs að finna eitthvað til að samsama sig við. Fyrst guð, þá djöfulinn, síðan sjálfa sig og loks ekkert, enda er eini árangurinn lömun og lausnarorð sem þýðir ekki annað en frelsun til þeirrar harðýðgi sem birtist í draumnum og sem hún þráir frelsun frá. Enn er menningin dregin til ábyrgðar á kúguninni, með því að öflugustu táknmyndir hennar vinna saman að morði barnsins. Konan sjálf, manneskjan, er gerð sek, bæði með því að tákn- myndirnar eru hlutar af sjálfsvitund hennar, þ.e. meðvitund hennar (Guð) og dulvitund (djöfullinn), einsog sést þegar þessi tákn eru leyst upp og afhjúpuð sem hún sjálf, en ekki síður með því að það er enn önnur mynd konunnar sem að lokum drepur barnið. Konan er þannig mörg sjálf í einu, bæði sjálfsprottin einsog barnið, og sköpuð af menningunni, einsog konan sem drepur barnið; og því vandséð að hún sé ekki trú sjálfri sér, þeir hlutar hennar sem krefjast dauða barnsins eru bara fleiri og öflugri. Þótt hún samsami sig að lokum þeim hluta sem drap barnið og öðlist þannig heildstæða sjálfsmynd eitt andartak þá reynist sú mynd blekking ein: konan er og verður klofin. Með öðrum orðum þá lýtur konan í lægra haldi fyrir hinu einsleita 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.